Listin að lifa - 01.06.2006, Side 29
Hvernig leggst svo íþig að taka við félaginu ?
„Eg hef mestan áhuga á að finna góðan samastað fyrir félagið.
I augnablikinu erum við með skrifstofuaðstöðu í Hlégarði, en
okkur vantar tilfinnanlega síma og nettengingu. Pað er líka
erfitt að byggja upp öflugt félagsstarf þegar húsnæði vantar.
Spilaklúbburinn er á hrakhólum, en samkomulag náðist við for-
stöðukonuna í Hlaðhömrum um að fá að spila í matsalnum eftir
kvöldmat. Nú er kona hjá bænum í hálfu starfi að sinna félags-
þjónustu fyrir 67 ára og eldri. Ég bind vonir við góða samvinnu
með henni.
Fjárhagurinn er þannig, að við eigum varla fyrir frímerkjum.
Einu sinni auglýstum við í útvarpinu sem reyndist alltof dýrt.
Félagsþjónustan auglýsir í staðarblaðinu Mosfellingi og í þeim
dálki fáum við pláss fyrir okkar tilkynningar.
Nú ert þú búin að vera bjúkrunarforstjóri á Reykjalundi.
Hvað er mikilvcegast jyrir eldrafólkið tilað halda heilsu?
„Þetta sígilda: að lifa hófsömu lífi, borða hollan mat og hreyfa sig
nóg. Þannig er hægt að halda ýmsum kvillum frá, en ekki er hægt
að rekja alla sjúkdóma til lífernis. Maður getur heldur ekki rétt
allt fram á fati og sagt - svona áttu að lifa! Fólk verður að leita
eftir þessu sjálft.“ Gréta sér félagið fyrir sér sem sjónarhól eða
ráðgefandi miðstöð sem fólk getur leitað til.
„Svona félag á að standa fyrir fræðslufundum. Reykjalundur
býr yfir svo góðu fagfólki að þangað er auðvelt að leita.
Sundleikfimi og afnot af þjálfunarsal einu sinni í viku fyrir eldri
borgara í Mosfellsbæ er til reiðu á Reykjalundi, en kannski þyrfti
þjálfunin að vera oftar, þetta þarf að athuga.
Við getum líka beðið sveitarfélagið að veita ráðgjöf um hvert
fólk á að leita, t.d. í sambandi við þrif, matarinnkaup og fleira.
Félagið á fyrst og fremst að vera ráðgefandi og hvetjandi."
Hlaðhamrar standa hér í miðjum bce. Eru þetta ekki íbúðir
með þjónustukjarna?
„Jú, Lionsklúbburinn átti forgöngu um að byggja íbúðir fyrir
aldraða. Bæjarfélagið byggði síðan við, svo að nú rúmast þarna
um 20 manns. Segja má bæjarfélaginu til hróss að á Hlaðhömrum
er meiri þjónusta en gengur og gerist. Þarna er til dæmis vakt
allan sólarhringinn. Starfsfólkið kynnir sér líðan íbúanna og
hjálpar fólki að klæða sig ef þess er þörf.
Éitt stöðugildi í viðbót vantar til að sinna daglegum þörfum
íbúanna. Það getur skipt sköpum fyrir íbúana sem annars gætu
þurft að flytja burt. Þetta álít ég mjög mikið hagsmunamál fyrir
eldra fólkið í Mosfellsbæ. Heimaþjónustan þarf að vera mjög
öflug.
Nú eru Eir og Hlaðhamrar komnir í samvinnu um að byggja
hér öryggisíbúðir. Eir er að byggja 48 íbúðir í samvinnu við
Mosfellsbæ. Og framtíðarsýnin er - að byggja hjúkrunarheimili í
tengslum við Hlaðhamra."
Eldri Mosfellingar sýnast vera komnir með sterka konu í for-
ystusveit sína. Gréta á eftir að fylgjast vel með, bæði í heilbrigðis-
og félagsmálum bæjarins.
Gréta biður fyrir kveðju til Margrétar, segist vera algjörlega
sammála henni um að - félagsþjónusta og heilbrigðisþjónusta
verði að vera á einni hendi. Nauðsynlegt er að hægri höndin viti
hvað sú vinstri gerir.
O.Sv.B.
BVGGbASAFN GAkbSKAGA
Skagabraut 100 250 Garði.
Opiðalla daga kl 13:00-17:00
fró l.apríl-31.október.
A öðrum tíma eftir samkomulagi.
Glcesilegt véla og sjóminjasafn.
Stóri vitinn er opin d sama tíma
Sími 4227220 & 8942135 netfang
gardskagi@simnet.is
FLÖSIN
glcesileg kaffitería, þar sem boðið
er upp ó léttar veitingar við hafið.
Öflugur sjónauki og útsýnismyndir ó
rúmgóðum svölum.
Opið alla daga 13:00-24:00
fró l.apríl-31.október.
A öðrum tíma eftir samkomulagi
Sími 4227214 & 6911615