Listin að lifa - 01.06.2006, Page 30

Listin að lifa - 01.06.2006, Page 30
Heilsuhornið I Hreyfing utandyra! Nú er það hreyfing úti undir berum himni, að teyga að sér súrefnið og njóta náttúrunnar. Bara 1 0 mínútur á dag er betra en ekki neitt. Vorið er komið og grundirnar gróa. Já, vorið er komið, kæru lesendur, sumarið jafinvel líka þar sem sumardag- urinn fyrsti var í síðasta mánuði. Þvílíkar væntingar sem við höfum til sumarsins og þvílík tækifæri sem við höfum. Bjartar nætur og langir dagar eru ffamundan og engin afsökun fyrir þvi að hreyfa sig ekki, auðvitað svo ffamarlega sem lík- amleg hömlun háir ekki hreyfingu. í síðasta blaði var talað um hreyfingu innanhúss og minnt á að nútima heilsuefling felst m.a. í því að hreyfa sig markvisst á hverjum einasta degi í a.m.k. 30 mínútur og þaðan af meira. Tækifærin eru svo mörg að ekki er unnt að nefna þau öll og því aðeins drepið á nokkur. Meginmálið er að taka virka ábyrgð á eigin heilsu og skilja gildi hreyfingar í hvaða mynd sem hún er, finna hvernig hreyfingin virkar vel á öll líffæri og skynja hvað líkaminn og sálin verða glöð við aukna hreyfingu. Ganga er efst á blaði hjá mér, því að flestir geta gengið og gangan gefur alhliða hreyfingu. Gönguferð kostar ekkert, þarf engan sérstakan útbúnað, aðeins þarf að huga að góðum skóm, en það á hvort sem er alltaf við. Hægt er að fara í gönguferð hvenær sem er, má vera stutt eða löng, og það er hægt að ganga í hvaða veðri sem er. Við getum verið í félagsskap annarra, en það er samt alls ekki nauðsynlegt. Maður getur ráðið gönguhraðanum og hvert farið er. Eftir hverju erum við þá að híða ? Ég legg til að gönguferð sé sett á dagskrá hvers dags og tíma- sett, svo að hún verði ekki útundan, því að maður ætlar alltaf að gera eitthvað annað fyrst. - Að ekki sé alltaf farinn sami hringurinn, heldur skipt um gönguleiðir til að efla og skerpa hugann með því að sjá nýtt umhverfi eða nýtt landslag. Fallegur gróður gefur nýja orku, sérstaklega græni liturinn. Gangan getur leitt mann í ný æfin- týri um dali og hóla og jafnvel á fjallatinda. - Að nota göngustafi til að létta gönguna og reyna um leið meira á allan líkamann. Vert er að minna á að húfa og vettlingar koma sér ótrúlega oft vel, þótt sumar sé, og þessir einföldu hlutir geta auðveldað manni að ganga lengra og vera lengur úti. Hæfilegur tími fyrir flesta er 30-40 mín. á dag (auðvitað meira fyrir þá hressu) en 10 mínútur duga í byrjun á meðan verið er að þjálfa sig upp. Svo er að muna eftir að anda djúpt og rétt (þenja kviðinn út við innöndun) og teyga súrefnið til að opna fyrir orkulindir lík- amans og að teygja sig vel á eftir. Þeir sem kjósa að stunda hlaup þurfa að athuga að hlaup reynir meira á hné og ökkla og því ekki eins ákjósanlegt fýrir eldra fólk nema maður sé vanur hlaupari. Sund er vinsælt og líka gott sem alhliða hreyfing og hér á landi bjóðast ótrúleg tækifæri til að iðka sund innan og utan dyra. Ég hef óbilandi trú á vatninu sem heilsueflingu. Bara fara í sund- laug (helst útilaug) og hreyfa sig þar er frábært, jafnvel þó að ekki sé synt mikið og víða gefst kostur á að iðka sundleikfimi rneð leiðsögn. Margt eldra fólk á erfitt með að synda bringusund og jafnvel baksund og hafa því fleiri og fleiri farið að læra skriðsund sem virðist auðveldara þar sem blöðkurnar létta ótrúlega álagið. Golf er vaxandi íþrótt og vinsælt hjá öllum aldursflokkum. Það er sérstaklega gott þar sem það býður upp á útiveru og göngur, sveiflu og teygjur fyrir bol og handleggi, skerpu hugans og nákvæmni ásamt félagsskap við alla aldurshópa sem er svo hollt og gefandi. Garðvinna og trjárækt dugar sumum sem hreyfing. Það er dásamleg útivera, en svolítið öðruvísi hreyfing og oft talsvert álag, og því þarf að passa að beygja sig rétt og hlífa baki og hnjám. En útiveran og fegurðin næra. Hjólreiðar læra flestir læra ungir, en hætta þeim þegar kemur fram á fullorðinsaldur. Þá tekur bíllinn við. Þetta er afleitt því að hjólaferðir er frábær íþrótt. Margir setja fyrir sig veður og vind, en ég held að það sé fyrst og fremst aðstöðuleysi sem hefur orsakað það hvað margir hætta að hjóla. Nú eru hins vegar komnar hjóla- brautir víða og því ekkert til fyrirstöðu að reyna. Þá notum við hjálm, sem er rétt settur á höfuðið, svo og hlífar á hné, úlnliði og olnboga. Svo er bara að leggja í hann! Góða ferð. Eftir alla hreyfingu er nauðsynlegt að teygja vel á líkamanum, drekka vatn til að bæta upp útgufunina og anda djúpt. „Að anda rétt er að lifa rétt.“ Taktu ábyrgð á eigin heilsu, það gerir enginn annar. Sumarkveðjur Hertha W. Jónsdóttir, B S-hjúkrunarfmðingur TQSKllVIÖCiFRDIN ÁHMÚLA 34 ©581 4303 , Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki HJÓLKÓ HjólbarðaviSgerS Kópavogs Smiðjuvegi 26 (graen gata) • sfmi 557 7200 30

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.