Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 34

Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 34
Jón Þorsteinsson virðir hér fyrir sér glerkrossinn á altari Mosfellskirkju. Krossinn á altari Mosfellskirkju Séra Jón Þorsteinsson, sóknarprestur í Mosfellsprestakalli, segir hérfrásterkri trúarupplifun kirkjugestaþegar krossinn var helgaður á altarinu og lítil stúlka færð til skírnar r altari Mosfellskirkju í Mosfellssveit er fallegur glerkross á steyptum stöpli. Þetta Iistaverk er eftir Ingu Elínu glerlistakonu og er gjöf hennar og fjölskyldu hennar til minningar um systur hennar Ólöfu Kristjánsdóttur sem lést í bílslysi aðeins 18 ára gömul. Á sinni tíð hafði Inga Elín samband við mig og kynnti vilja sinn til þessa verkefnis. Eftir að hafa unnið að gerð krossins um nokkurt skeið hringdi hún og sagðist hafa lokið gerð hans og spurði hvenær væri hentugur tími til að afhenda gripinn. Ég leit í dagbókina mína og við völdum næsta messudag í Mosfellskirkju sem bar upp á sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl árið 1996. Við Mosfellskirkja er einstakt listaverk, en veggir og þak kirkjunnar mynda þríhyrninga, eins og vel má sjá á þessari mynd. hittumst í kirkjunni daginn áður, komum krossinum fyrir á alt- arinu og glöddumst yfir góðu verki sem sómir sér afar vel. Þannig vildi til að fyrir þessa guðsþjónustu hafði hringt í mig ung móðir, Ásdís Ómarsdóttir, og beðið mig að skíra litla telpu og þar sem hún á rætur í Mosfellsdalnum vildi hún að skírnin færi fram í Mosfellskirkju. í fyrstu hafði hún aðra dagsetningu í huga, en niðurstaðan varð sú að þessi stund var valin. Ég tók niður upplýsingar á skírnarskýrslu á venjubundinn hátt og færði til bókar. Dagurinn rann upp og vel var mætt til guðsþjónustu. í sveitinni þekkist fólkið vel og glaðværð og vinarhugur er í við- móti þess þegar það heilsast við kirkjudyr. Guðsþjónustan hefst með því að klukkunni góðu er hringt. Klukka þessi er merkur gripur, sannarlega ffá því fyrir siðaskipti 1550, að sumra mati jafngömul kirkjustaðnum eða frá seinni hluta 12. aldar. Inga Elín er ættuð frá Hrísbrú, en þar var klukkan varðveitt frá því að gamla kirkjan var rifin 1889 og þar til að kirkjan, sem nú stendur á Mosfelli, var reist. Klukkunni var komið fyrir í kirkjunni daginn fyrir vígsludag hennar, þann 4. apríl árið 1965. Forspil er leikið og upphafsbæn flutt. Fyrsti sálmurinn er skírnarsálmur og fjölskylda skírnarbarnsins gengur að skírnar- fonti. Þegar nafn barnsins er nefnt, en um það vita ekki aðrir en foreldrar barnsins og presturinn, þá verður til í kirkjunni einhver óljós og undarleg spenna sem presturinn getur aðeins skýrt fyrir sjálfum sér með kröfugri nærveru heilags anda. Skírnarathöfn lýkur og unga fjölskyldan fær sér sæti. I lok prédikunar dagsins geri ég grein fyrir gjöfinni fögru frá Ingu Elínu og fjölskyldu hennar, greini frá því í minningu hvers gjöfin er gefin, þakka hana fýrir hönd safnaðarins og bið að hún megi blessast til þjónustu í helgidómi Drottins. Enn skynja ég þessa sterku tilfinningu í kirkjunni sem ég kann ekki að skýra til fulls, en finn aðeins góð hughrif og gefandi og djúpa og kröftuga helgi stundarinnar. Guðsþjónustunni lýkur og prestur gengur úr kirkju undir útspili organista. 34

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.