Listin að lifa - 01.06.2006, Page 36

Listin að lifa - 01.06.2006, Page 36
Átakshópar aldraðra Síðasti aðalfundur FEB í Reykjavík var sá fyrsti sem ég hef sótt. Satt best að segja hefur mér gengið seint og illa að gera mér grein fyrir því að ég sé farinn að eldast og eigi því samleið með öðrum aldurhnignum borgurum þessa samfélags sem sérhagsmunahópi. En við móttöku bréfs frá Trygginga- stofnun ríkisins með kröfu um endurgreiðslu tekjutryggingar fyrir árið 2004, sem klipin verði af svonefndum grunnlífeyri mínum á næstu árum, var mér nóg boðið. Eg gerði mér ljóst að ég hefði ekki fylgst nægilega með í málefnum aldraðra og afskiptum stjómmálamanna og reglugerðaskriffinna ráðuneyta af kjörum þeirra og aðbúnaði. Svo að ég ákvað að reyna að bæta úr þessu með virkri þátttöku í félagsstarfi aldraðra, sem ég hafði þangað til aðeins fylgst með úr fjarlægð, án þess að mér fyndist það snerta mig og mína hagsmuni sérstaklega. Á aðalfundinum flutti formaður félagsins, Margrét Margeirs- dóttir, greinargóða skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á síð- astliðnu ári. Ekki vantaði að margt bréfið hafði verið skrifað, mörg nefndin starfað, staðreyndum safnað og skrifaðar skýrslur. Einnig benti Margrét á að „fjölmiðlar hafa sýnt málefnum eldri Handverksfólk rnttio Laugavegi 29 sími 552 4320 www.brynja.is brynja@brynja.is ■ Stubai tréskuröarjárn ■ C.l. Fall rennistál ■ Noratel brennipennar ■ Mora tálguhnífar ■ Bækur um útskurð ■ Myndbönd um rennsli borgara gríðarmikinn áhuga og fjallað um þau á málefnalegan og fræðandi hátt. Petta gildir bæði um sjónvarp, útvarp og dag- blöð.“ En þegar Margrét taldi upp ýmis dæmi um samskipti full- trúa félagsins við tímabundna handhafa valdsins, þ.e.a.s. þá sem við á fjögurra ára fresti ráðum í vinnu til að hrinda í framkvæmd umbótum á hag okkar, blöskraði mér virðingarleysið og hrokinn sem þessir valdhafar telja sig geta sýnt samtökum eins og okkar, án þess að þurfa að svara nokkurntíma og nokkurs staðar fyrir það - nema þá í næstu kosningum. Ég ætla að tína hér til nokkur dæmi úr skýrslu Margrétar: „Aðalfundur FEB 2005 samþykkti áskorun á heilbrigðisráð- herra um að skipa starfshóp til að endurskoða frá grunni lög um málefni aldraðra, sem væru gersamlega úrelt.“ „Framkvæmdastjórn FEB (sjö manns) gekk á fund heilbrigð- isráðherra Jóns Kristjánssonar 2. mars, nokkrum dögum eftir aðalfund FEB, og kynnti honum áskoranir félagsins í viðurvist fimm æðstu embættismanna ráðuneytisins." Viðbrögð: „Pegar engin viðbrögð höfðu borist frá ráðuneyt- inu i september fór framkvæmdastjórn aftur á fund ráðherra og ítrekaði kröfur sínar og áskoranir. Nú, ári síðar, hefur ráðuneytið ekki sýnt viðbrögð við erindi okkar.“ Hér dugar greinilega ekkert minna en lífgun úr dauðadái! Pann 30. mars 2005 átti framkvæmdastjórn íúnd með borg- arstjóra, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, og kynnti áskoranir aðalfúndar sem „fólu meðal annars í sér að fjölga verulega þjón- ustuíbúðum í Reykjavik og stórefla heimaþjónustu, einkum í fjöl- býlishúsum, sem hafa verið byggð fýrir eldri borgara, koma á akst- ursþjónustu fýrir aldraða og sama akstursgjaldi fyrir aldraða og öryrkja." Þá var lögð ffarn beiðni um lóð fyrir fjölbýlishús, sem FEB stæði fyrir byggingu á. Einnig var lögð ffam beiðni um 10 milljón króna styrk til kaupa á húsi félagsins við Stangarhyl. Viðbrögð: Borgin veitti 7,2 milljónir króna styrk til húsakaup- anna, effir að fast var gengið effir svari. Ekkert tillit hefúr verið tekið til fjölgunar þjónusmíbúða. Engar þjónustuíbúðir eru á döf- inni af hálfu borgarinnar og hafa engar verið byggðar síðan 1996. Borgarstjóm hefur hins vegar orðið við áskoruninni um aksturs- þjónustu og ffá 1. janúar 2006 greiða aldraðir sama strætógjald og öryrkjar. í desember 2004 hafði félagið sent bréf til heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytisins vegna kerfisbreytmgar á íbúðalánasjóði. I apríl 2005 fóm fulltrúar FEB á fúnd forstjóra íbúðalánasjóðs, Tryggmgastofnunar rikisins og ríkisskattstjóra til að fara yfir þær afleiðingar sem það hefði í för með sér fýrir lífeyrisþega að skipta húsbréfúm fýrir íbúðabréf. Um var að ræða kerfisbreytingu, sem hafði áhrif á útreikning bóta TR. Ætlunin var að fara til fjármála- ráðuneytisms, en ekki fékkst tími hjá ráðherra. Því sendi félagið bréf þangað í júlí 2005. Svar barst ekki fýrr en í desember sl. þar sem erindinu var vísað til heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisms. 36

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.