Listin að lifa - 01.06.2006, Qupperneq 38
Skorað á ríkisstjórn
og ráðuneyti
Aóalfundur Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni var haldinn á
Hótel Sögu laugardaginn 18. febrúar
síðastliðinn. Fundinn sóttu vel yfir 200
manns og voru eftirfarandi ályktanir og
áskoranir samþykktar samhljóða:
Áskorun til borgarstjórnar
• Að fjölga verulega þjónustuíbúðum, dagvistarplássum og að
efla heimaþjónustu við eldri borgara í Reykjavík.
• Að tekjuviðmiðun vegna afsláttar eldri þorgara á fasteigna-
gjöldum verði hækkuð til samræmis við hækkun fasteigna-
mats í ársbyrjun 2006.
• Að úthluta Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni bygg-
ingarlóð undir fjölbýlishús á góðum stað í borginni þar sem
skammt er í þjónustumiðstöð og góðar almennar samgöngur.
Greinargerð: A árunum 1988-1998 voru byggðar 386 íbúðir
á vegum félagsins í samvinnu við Gylfa og Gunnar ehf. Síðan
hefur félagið ekki fengið úthlutað lóð. Reynslan af byggingu þess-
ara íbúða er mjög góð og stöðugt er spurt hvort félagið ætli ekki
• # SYNCRO
Heyrnortœki með gervigreind
• Afgreiðslutími innan þriggja vikna
• Bjóðum margar tegundir af sjólfvirkum, stafrœnum
heyrnartœkjum
• Verð fró 47.000 - 170.000 kr fyrir eitt tœki
Erum meO þjónustu á Akureyri - ísafirði - EgilsstöOum
M Heymurtœkni
www.heyrnartaekni.is
Glæsibær Álfheimum 74 104 Reykjavík sími: 568 6880
Tryggvabraut 22 600 Akureyri simi: 893 5960
Margrét Margeirsdóttir formaður og Helgi Seljan varaformaður á rök-
stólum.
að halda áfram að byggja. Ætla má að unnt sé að byggja ódýr-
ari íbúðir en eru á almennum markaði og þær sniðnar betur að
þörfum eldri borgara. Stórt hagsmunamál er fyrir eldri borgara
að geta komist í hagkvæmar íbúðir, en sumir búa í of stórum og
óhagkvæmum íbúðum.
Fyrsta áskorun til ríkisstjórnar!
Félag eldri borgara telur að lög um málefni aldraðra séu byggð á
úreltum sjónarmiðum sem eru ekki í takt við nútímaleg viðhorf
og því dragbítur á eðlilega og nauðsynlega framþróun í þessum
málaflokki. Fundurinn skorar því á ríkisstjórnina - að skipa nú
þegar starfshóp til að endurskoða frá grunni lög nr. 125/1999 um
málefni aldraðra. Hlutverk starfshópsins verði m.a.:
1. Að undirbúa flutning málefna aldraðra til sveitarfélaga.
2. Að marka heildarstefnu í málum aldraðra sem byggir á hug-
myndafræði um jafnrétti og mannréttindi.
3. Að stjórnsýsla málaflokksins verði skýr og afdráttarlaus varð-
andi skyldur og ábyrgð opinberra aðila.
4. Að samræma ákvæði sem er að finna í hinum ýmsu laga-
bálkum og snerta málefni aldraðra.
5. Að marka þá stefnu í búsetumálum aldraðra að ýmsir val-
kostir verði til staðar í samræmi við óskir og þarfir eldri borg-
ara, s.s. sambýli, þjónustuíbúðir, leiguíbúðir o.fl. Mikilvægt
er að tryggja öryggi og sjálfræði aldraðra í sjálfstæðri búsetu.
6. Að setja skýr ákvæði um heimaþjónustu, dagdvöl (dagvistun),
og hvíldarinnlagnir (skammtímavistun).
7. að sett verði ákvæði í lögin um réttindagæslu aldraðra. Vitað
er að réttindi þeirra eru oft fyrir borð borin, bæði utan stofn-
ana sem og innan þeirra.
8. að breyta fyrirkomulagi greiðslna íbúa á dvalar- og hjúkrun-
arheimilum þannig að þeir haldi áfram fjárforræði sínu.
Önnur áskorun til ríkisstjórnar!
Skattleysismörk verði hækkuð, þannig að þau nái sama verðgildi
og þau gjörðu við upptöku staðgreiðslukerfis skatta. Þetta verði
eitt helsta viðfangsefni nefndar þeirrar sem ríkisstjórnin hefúr
skipað undir forystu Ásmundar Stefánssonar að finna þeirri fram-
kvæmd sem skjótastan og farsælastan farveg. Hækkun skattleys-
ismarka er heillavænlegasta leið hins opinbera til tekjujöfnunar
enda kemur hún þeim helst til góða sem lægstar hafa tekjur.
Greinargerð: í hinni miklu skattaumræðu undangenginna vikna
hefur það komið óyggjandi fram að skattbyrði þeirra tekjuminnstu
hefur aukist mjög verulega. Þar veldur mestu að skattleysismörk