Listin að lifa - 01.06.2006, Page 40
Áskoranir til heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra
Fyrsta áskorun!
Skorað er á heilbrigðis- og tryggingaráðherra að tvöfalda ráðstöf-
unarfé, vasapeninga, íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum aldr-
aðra - eða sem svarar tvöföldum grunnlífeyri.
Greinargerð: Félag eldri borgara hefur lagt á það þunga áherslu
að greiðslufyrirkomulagi verði breytt, hvað varðar íbúa á dvalar-
og hjúkrunarheimilum, þannig að þeir haldi áfram fullri reisn og
fjárhagslegu sjálfræði sínu, þó þeir þurfi að dveljast á stofnun.
Meðan sú skipan mála helst að íbúar fái greidda svokallaða vasa-
peninga vill félagið að þetta verði kallað ráðstöfunarfé, sem verði
lagt inn á reikning viðkomandi. Við erum minnug þess að fyrir
nokkrum árum voru þessar fjárhæðir hækkaðar um 50% með
einni ákvörðun ráðherra. Slík hækkun skiptir þá afar miklu sem
hennar munu njóta. Tvöföldunin er miðuð við það að færa upp-
hæð ráðstöfunarfjár sem næst því sem íbúar á dvalarstofnunum
halda eftir af greiðslum úr lífeyrissjóði.
Önnur áskorun!
Að gerður verði tafarlaust bindandi samningur við Tannlækna-
félag íslands um gjaldskrá fyrir tannlækningar og fellt verði úr
gildi ákvæði 4. gr. reglugerðar um þátttöku TR í kostnaði við
tannlækningar (nr. 815 frá 22. nóvember 2002) um að TR taki
ekki þátt í kostnaði við gerð fyllingar í tönn, ef minna en þrjú
ár eru liðin frá því að fylling eða skorufylla var sett í sama flöt
tannar.
Endalaus orka!
Loksins má finna í einni bók Ijúffenga drykki þar sem
hver og einn hefur sín sérstöku áhrif.
• fyrirbyggjandi og stuðla að bættri heilsu
• eiturefna- og vatnslosandi
• kjörnir fyrir smáfólkið
• frábær viðbót í veisluna
Endalaus orka er bók um holla lifnaóarhætti,
fagurfræði og lifsgleði.
Armúla 20 * s. 552 1122
www.salkaforlag.is
Yfir 200 bráðhollir ávaxta- og grænmetissafar
sem bæta,
grenna
og kæta
Endalaus
orka!
Vfir 200 bráðlionir ávaxta-og grænmetissafar
40
Pétur H. Ólafsson var heiðraður á 20 ára afmælishátíð félagsins fyrir frá-
bær störf í þágu félagsins - og hann er enn að!
Greinargerð: Hætta er á að tannheilsa eldri borgara fari versn-
andi vegna þess að tannlækningar eru orðnar svo dýrar að margir
lífeyrisþegar hafa ekki efni á að leita sér lækninga. Það eykur enn
á vandann, ef TR tekur ekki þátt í kostnaði við viðgerð á tönn
sem reynist þörf á að gera aftur við ef meira en þrjú ár eru liðin
frá fyrri viðgerð.
Þriðja áskorun!
Að láta nú þegar fara fram endurskoðun á lögum um almanna-
tryggingar með það m.a. að markmiði:
• Áð einfalda kerfi lífeyristrygginga svo það verði sem auðskild-
ast og jafnframt virkast fyrir þá sem byggja meginafkomu
sína á því.
• Að fækka bótaflokkum og skilgreina þá upp á nýtt.
• Að stefna markvisst að því að fella niður eða draga verulega
úr tekjutengingum bótaflokka með tilliti til þess að áhrif jað-
arskatta verði ekki svo tilfinnanleg sem þau eru í dag.
• Að tryggja að öryrkjar, sem hafa til 67 ára aldurs notið ald-
urstengdrar örorkuuppbótar, fái haldið þessum áunna bóta-
flokki áfram.
• Að endurskoða ákvæðið um endurkröfu lífeyrisgreiðslna TR
þar sem heimildin er alltof rúm í dag.
Stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík fór fram á að afstaða
ráðherra til ofangreindra mála lægi fyrir eigi síðar en 1. apríl,
rúmum mánuði eftir aðalfundinn. Ennþá hefúr ekkert svar bor-
ist til stjórnar. Margrét Margeirsdóttir formaður orðar þetta
þannig: „Heilbrigðisráðherra og stjórnvöld hafa hunsað allar
okkar áskoranir."
Myndirnar semfylgja voru teknar á afmxlishátíð félagsim.