Listin að lifa - 01.06.2006, Page 44
Geysileg hugarfarsbreyting!
„Nútíminn er að halda innreið sína í
hjúkrunarheimilin,“ segir Ingibjörg Bernhöft,
forstöðumaður á Droplaugarstöðum
Einhvern tíma á lífsleiðinni hendir marga að bíða lægri
hlut íyrir sjúkdómum. Oftast eru það aldraðir einstak-
lingar sem eiga þá erfitt með að sjá um sig sjálfir, en allir
vilja eiga fastan samastað, þar sem þeim líður vel og mæta
hlýju viðmóti. Með öðrum orðum - allir vilja eiga heimili!
Mikil umræða um hjúkrunarheimili heíúr átt sér stað í þjóð-
félaginu. Margir bíða eftir að komast á stað þar sem vel er hugsað
um þá, enginn vill vera baggi á afkomendum sínum. Svarið
hlýtur að vera: Byggjum notaleg heimili fyrir þá einstaklinga
sem geta ekki séð um sig sjálfir. Stofnun er úrelt fyrirbæri.
Ingibjörg tekur á móti gesti inn á hlýlega skrifstofii og gerir grein
fýrir hugmyndafræðinni á bak við ný viðhorf á Droplaugarstöðum.
Síðan er gengið um heimilið. Einstaklega áhugavert er að sjá breyt-
inguna ffá gömlum gildum til mannúðlegra nútímaviðhorfa.
Heimilislegt umhverfi er stór þáttur. Merkingar á hurðum,
eins og skol, lín, aðeins fyrir starfsfólk, hafa verið fjarlægðar á
Droplaugarstöðum. Starfsfólkið situr innan um sjúklingana,
dregur sig ekki afsíðis með sína kaffibolla.
„Á stofnunum situr starfsfólkið iðulega inni á vaktherbergi
yfir kaffibolla, skilur sig frá „íbúum“. Hér vil ég að allir sitji við
Sæferðir
Skemmtislglingar
og veisluferðir
Skemmtisigling með Sæferðum um Breiðafjörð er
frábær skemmtun og einstök upplifun.
Við skoðum m.a. sérstæðar klettamyndanir og
fjölbreytt fuglalíf í nálægð auk sterkustu
sjávarfallastrauma við ísland. Hápunktur ferðarinnar
er þegar við kynnumst í návígi, lífríki undirdjúpanna
....og þeir sem þora geta SMAKKAÐ !
Skelltu þér í Hólminn !
Daglegar ferðir, bókanir í síma 433-2254
Sími 438-1450 - seatours@seatours.is - www.seatours.is
Sæferðir ehf - Smiðjustíg 3 (við höfnina) - 340 Stykkishólmur - Snæfellsnes
sama borð, heimilismenn og starfsfólk,” segir Ingibjörg.
Á hjúkrunarheimili má ekki tala um vistmenn
eða sjúklinga
- hér eru allir heimilismenn eða íbúar!
„Hvernigviltu hafa heimilið þittftx hugmyndafræðin á bak
við breytingarnar. Eg studdist ekki við kennisetningar erlendra sér-
ffæðinga. Ég byrjaði að vinna hérna íyrir ellefu árum og var þá alls
ekki sátt við allt. Sagði oft við sjálfa mig: Ef ég ætti Droplaugarstaði,
þá myndi ég vilja breyta svona og svona. Alveg frábært að hafa
fengið að endurmóta heimilið í anda nútímaviðhorfa."
Framtíðarsýn Ingibjargar hefur mótast á þessum ellefu árum.
Margir geta leitað í viskubrunn hennar, kvenlega innsæið fýrir
fallegu heimili þar sem allt er gert til að fólki líði vel. Á hverri
hæð eru þrjár einingar þar sem 8 eða 10 manns búa saman. Allir
í einbýli með baði. Á hverri einingu er borðstofa og dagstofa.
„Maður sér sjálfan sig í anda, hvort maður vilji borða daglega
með tugum fólks eða í notalegri borðstofu með átta til tíu einstak-
lingum. Hver máltíð á að vera sérathöfn með heimilislegu and-
rúmi. Kaffi er ávallt á könnunni og heimilisfólkið getur boðið
gestum sínum upp á kaffisopa,“ segir Ingibjörg.
Á neðstu hæð Droplaugarstaða er stór matsalur þar sem sam-
eiginlegar samkomur eru haldnar. Ur borðsalnum má ganga út í
garðinn, en þar er lítið gróðurhús með vínberjum, tómötum, litlu
eplatré, jarðarberjum og fleiri gróðursprotar. I garðinum eru borð
og stólar svo að hægt sé að njóta útiverunnar.
„ Viljum við hafa þetta svona heima hjá okkuri - var
önnur spurning sem ég lagði upp með, þegar kom að endurnýjun
á húsbúnaði, borðbúnaði og öðru,“ segir Ingibjörg.
Nýju húsgögnin á Droplaugarstöðum eru úr dökkum viði i
hefðarstíl fínni heimila, afar ólík hlutlausum húsgögnum sem oft-
ast sjást á stofnunum. Stólarnir eru sérvaldir - valið miðast við
hve gott er að sitja og standa upp úr þeim. Efnið er ýmist leður
eða nýja efnið sem þarf aðeins að þvo með volgu sápuvatni til að
ná blettum úr. Búið er að skipta pappírsservéttum út fyrir hvítar
tauservéttur. Á borðstofuborðinu eru diskamottur úr dökku leðri,
svo fallegar að freistandi væri að eignast slíkar. Fallegir matar-
bakkar eru notaðir, mjög ólíkir hefðbundnum bökkum.
Droplaugarstaðir eru eina hjúkrunarheimilið sem
Reykjavíkurborg á og rekur. Ein hæð var byggð ofan á húsið, en
hinar hæðirnar þrjár endurnýjaðar. Nú eru allir heimilismenn í
einbýlum með sérbaði.
„Reykjavíkurborg á mikinn heiður skilið fyrir að taka heimilið
í gegn og færa það í nútímalegt horf, ekki eingöngu að stækka og
bæta við plássum, en líka að endurnýja allt húsið. Við erum að fara
inn í nútímann með því að koma öllum heimilismönnum í sérbýli.
Þótt 26 pláss skapist með nýrri hæð, þá er aukningin ekki nema 14
herbergi. Fjöldi heimilismanna var 68 manns, en fer nú upp í 82.
Það er búið að endurnýja þriðju hæðina og verið að byrja á annarri
hæð. Áætlað er að því verki verði lokið i ágúst á þessu ári.“