Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 45
Um gömlu tvíbýlin á hjúkrunarheimilum segir Ingibjörg:
„Allflestir óska eftir einbýli með sérbaði. Einn og einn óskar
eftir að vera í tvibýli, en oftast er erfitt að finna herbergisfélaga
þannig að báðir aðilar séu sáttir.
Þetta er vandinn í hnotskurn! - Að velja tvo einstaklinga sem
passa saman. Fólk er að borga með sér allt upp í 188 þúsund
krónur á mánuði (miðað við janúar 2006), en ræður svo ekki
hvort því er skipað i margbýli með ókunnugum sem það eiga erf-
itt með að umbera."
Af hverju fer fólk almennt inn á hjúkrunarheimili?
„Heilsufar segir alfarið til um, hvenær einstaklingur þarf á hjúkr-
unarvist að halda. Þegar heilsufari fer að hraka er gert svokallað
vistunarmat. Vistunarmatið segir til um, hvort einstaklingur sé
í þörf fyrir hjúkrun eða annars konar aðstoð. Allir sem koma
hingað eru í brýnni þörf fyrir hjúkrun.
Heimilið er rekið á daggjöldum frá ríkinu og eru daggjöldin
reiknuð út frá hjúkrunarþyngd hvers heimilis. Svokallað RAI-
mat er gert, þar sem hjúkrunarþyngd er mæld og greiðslur til
heimilisins reiknaðar út frá því.
Þegar einstaklingur kemur á hjúkrunarheimili þá er
Tryggingastofnun ríkisins látin vita. TR reiknar út frá tekjum
viðkomandi eftir síðasta skattaframtali, hvort viðkomandi
skal greiða með sér vegna búsetu á hjúkrunarheimili eða ekki.
Greiðslur reiknast á þennan hátt:
Nýju húsgögnin á Droplaugarstöðum eru virðuleg og heimilisleg, afar
ólík „hlutlausum stofnanahúsgögnum“.
Ellilaun falla niður við komu á hjúkrunarheimili.
Ef einstaklingur er með einhverjar tekjur (lífeyrissjóð, fjár-
magnstekjur, leigutekjur eða aðrar tekjur) þarf hann að greiða rík-
inu hluta kostnaðar við að búa á hjúkrunarheimilinu. Sú upphæð
er reiknað út hjá TR eftir síðasta skattaffamtali. Hjúkrunarheimilið
þarf að innheimta upphæðina og skila til TR. Upphæðin fer
eftir tekjum viðkomandi og er að hámarki 188.979.- á mánuði.
Einstaklingur má halda eftir af tekjum sínum 50.112.- kr. (jan.06.)
Dæmi 1: Einstaklingur með engan lífeyrissjóð eða aðrar
tekjur. Ellilaun falla niður eins og alltaf, en hann getur sótt
um vasapeninga sem eru kr. 22.873.- á mánuði.
Dæmi 2: Einstaklingur með 50 þúsund frá Iífeyrissjóði
heldur öllu eftir og greiðir ekkert til ríkisins.
Dæmi 3: Einstaklingur með 150.000 í tekjur kemur á hjúkr-
unarheimili. Hann greiðir tæplega 100.000 til ríkisins og
heldur eftir kr. 50.112.-.
Dæmi 4: Einstaklingur með 300.000 í tekjur greiðir 188.979.-
til ríkisins, en heldur eftir því sem eftir stendur.
Um sérstöðu Droplaugarstaða segir Ingibjörg:
Við leggjum áherslu á: Sjálfræði einstaklingsins, heimilislegt
umhverfi, virðingu fyrir einkalífi, athafnasemi - að öryggi og vel-
Börnin á leikskólanum Sólhlíð koma mánaðarlega i heimsókn og
skemmtilegar samverustundir verða til.
líðan sé í fyrirrúmi. Sjúkraþjálfun er mjög virk á heimilinu. Allur
matur er eldaður í eldhúsi heimilisins sem mér finnst stór kostur
og mikil ánægja er með.
Droplaugarstaðir hafa um þriggja ára skeið verið í samvinnu
við leikskólann Sólhlíð. Börnin koma í heimsókn til okkar frá
hausti fram á vor þriðju hverja viku. Skemmtilegar samveru-
stumdir ungra og aldinna skapast við ýmis störf. Það er spilað,
lesið, sungið, bakað, gróðursett, föndrað og margt fleira, öllum til
mikillar gleði. Iðjuþjálfar Droplaugarstaða halda utan um þessar
stundir ásamt fóstrunum í Sólhlið.
Það er margt skemmtilegt gert hjá okkur og ég vil benda á heima-
síðuna okkar á Netinu www.droplaugarstadir.is. Þar er hægt að sjá
hvað er um að vera og það helsta sem er á döfinni hverju sinni.
O.Sv.B.
LínDesign selur léttar og mjúkar dúnsængur
á einstaklega hagstæöu verði
Sængurnarfrá LínDesign innihalda einungis hreina náttúruafurð sem er
algjörlega laus við efnasamsetningar. f sængunum er 90% hvítur
sérvalin andadúnn og 10% dúnurt. Ytra byrðið er úr 100% tvöföldu
hvítu úrvalslíni. Sængurnar fást í ýmsum stærðum (allt frá vöggustærð
70x100 upp í 240x220). ^ . . . * —
-4 *■
V_____________________
LínDesign býður upp
á fallega heildarlausn í svefnherbergið
(slenskur textílhönnuður hefur útfært nokkur blómamynstur, fífuna,
gleym-mér-ei og síðast en ekki síst, íslenska þjóðarblómið, holtasóley, á
sængurfatnað. Línið sjálft, sem er ofið og saumað í Kína, er úr úrvals
silkilíni og yndislegt viðkomu.