Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 50
Fimmta nóttin án
endurgjalds!
Hótel Edda er keðja sumarhótela
sem nær hringinn í kringum
landið. Þau varða veginn og alls
staðar ættu ungir sem aldnir að finna
eitthvað við sitt hæfi i fallegri náttúru
íslands.
Hótel Edda er nú starfrækt á fimmtán
stöðum, víðast í heimavistarskólum, en
einnig i sérbyggðu hótelhúsnæði. Gisting
er ýmist í herbergjum með baði, í her-
bergjum með handlaug eða svefnpoka-
plássi. A nokkrum hótelanna er að finna
„Eddu PLÚS herbergi11 sem uppfylla þrjár
stjörnur, en þau eru vel búin með baði,
síma og sjónvarpi.
Að sögn Arngríms Fannars, sölustjóra
Edduhótelanna, fá eldri borgarar, sem
ferðast í hópum, bestu mögulegu kjör á
Edduhótelunum.
„Um árabil hafa eldri borgarar verið
hluti af ánægðum viðskiptavinum okkar.
Við þjónum mörgum hópum þeirra sem
gista hjá okkur á hverju sumri og hafa gert
í fjölda ára,“ segir Amgrímur.
„Einstaklingar á eigin vegum geta líka
nýtt sér góð kjör Edduhótelanna. Ef gist er
í 4 nætur á einhverju Edduhótelanna fæst 5.
nóttin án endurgjalds. Til dæmis má gista
á IKI Laugarvatni í 2 nætur, á Hótel Eddu
Skógum, í 2 nætur, gista svo frítt á Hótel
Eddu, Vík í Mýrdal," segir Arngrímur og er
bjartsýnn á gott ferðasumar.
Edduhótelin eru í fiigru umhverfi og
heillandi náttúru. Á hótelunum er að
finna hagstætt verð, veitingasölu og góða
þjónustu.