Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 53

Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 53
Þær voru glaðbeittar, ritararnir á fundinum, þær Bjarnfríður frá Akranesi, í kaffihléi: „Hjá okkur á Egilsstöðum er búið að vera sumar í allan vetur,“ Kristín frá Kópavogi og Björg frá Akureyri. sagði Brynjólfur ffá Fljótsdalshéraði „Eruð þið þá ekki orðnir langeygðir eftir vetrinum," varð Kristófer frá Borgarnesi að orði. Uppbygging þjónustu til að styðja sjálfstæða búsetu aldraðra Þjónustan verði öll á einni hendi, þ.e. hjá sveitarfélögum Heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta verði samþætt og hægt verði að fá þjónustu allan sólarhringinn. Efla ber þjón- ustu heilsugæslunnar, m.a. með aukinni áherslu á heilsuefl- andi heimsóknir, reglubundnum heimsóknum heimilislækna til aldraðra sem njóta heimahjúkrunar og með ráðningu iðjuþjálfa. Félagsleg heimaþjónusta sé gjaldffjáls. Akstursþjónustan sé með ákveðinn ferðafjölda á mánuði, en rígbindi ekki við ákveðnar heimsóknir. Fjölgun þjónustuíbúða. Ýtt verði undir aukið framboð þjónustu- íbúða fyrir aldraða með fjölbreyttri þjónustu og nauðsynlegum öryggisþáttum. Fjölbreytni eignarforms verði tryggð með hlið- sjón af ólíkum efnahag aldraðra, s.s. með eignaríbúðum, leigu- íbúðum eða búseturéttaríbúðum. Aðlögun, breytingar á íbúðarhúsnæði aldraðra. Við gerð vistunarmats verði aukin áhersla lögð á framkvæmd húsnæðis- úttektar hjá öldruðum með það markmið að gera breytingar og endurbætur sem auðvelda athafnir dagslegs lífs. Teymi fagfólks verði stofnað til að sinna þessum úttektum, t.d. iðjuþjálfar og fólk með tækni- og eða iðnmenntun. Skoðað verði sérstaklega hvort og hvernig megi koma til móts við aldraða vegna kostnaðar af slíkum breytingum og endurbótum. Öryggishnappar. Skoðað verði sérstaklega hvort öryggis- hnappar geti nýst fleiri öldruðum, sé svo verði gert átak í að auka notkun þeirra. Ennfremur þarf að rýmka reglur TR um niður- greiðslu á öryggishnöppum svo að þær nái líka til þeirra sem búa í sérhönnuðu húsnæði fyrir aldraða og séu ekki aðeins bundnar við þá sem búa einir. Dagvistarrýmum og rýmum fyrir hvíldarinnlagnir þarf að fjölga til að létta á maka og aðstandendum sjúkra, aldraðra. Samráðshópur um öldrunarþjónustu. Komið verði á reglu- bundnu samráði allra þeirra sem koma á einhvern hátt að þjón- ustu við aldraða. Upplýsinga- og ráðgjafarþjónustu verði komið á fyrir aldr- aða og aðstandendur þeirra þar sem fólk getur komið eða hringt í gjaldfrjálst símanúmer og fengið allar helstu upplýsingar, hvert eigi að leita eftir tiltekinni þjónustu, ásamt upplýsingum um rétt- indamál aldraðra, fjármálaráðgjöf o.s.frv. Við undirbúning upp- lýsinga- og ráðgjafarþjónustu verði náið samráð milli allra þeirra aðila sem koma að þjónustu við aldraða eða sinna málefnum sem varða hagsmuni aldraðra á einhvern hátt. Kröfur Landssambands eldri borgara í kjaramálum Langan tíma mun taka að breyta og einfalda Iífeyriskerfið. LEB fer því fram á að nú þegar verði greiðslum lífeyris frá TR breytt þannig: GEÐSJÚKDÓMAR ERU EKKI SMITANDI Öllum getur liðið illa - sumum mjög illa. Oft getur hjálpað mikið að vera til staðar og hlusta á og hlúa að þeim sem á erfitt. LÝÐH E I LSUSTÖÐ - lifið heil 53

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.