Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 54
• Byrjað verði strax á því að slaka á klónni varðandi skerðingar
með því að fyrstu 30.000 krónur í tekjur á mánuði, hvaðan
sem þær koma, verði undanþegnar skerðingum á tekjutrygg-
ingarauka, og samsvarandi hækkun á frítekjumörkum tekju-
tryggingar.
• Grunnlífeyrir verði hækkaður um 13.500 krónur á mánuði.
• Tekjutryggingarauki hjá hvoru hjóna verði sá sami og hjá
einstaklingum.
• Tekjutryggingarauki verði hækkaður um 645 krónur á mán-
uði, þannig að samfella sé á milli tekjutryggingar og tekju-
tryggingarauka, þó svo að ennþá sé litið á þessa bótaflokka
sem aðgreindar einingar, vegna hliðarverkana.
• Heimilisuppbót einstaklinga verði hækkuð um 5.000 krónur á
mánuði.
Þetta er nauðvörn til handa þeim allra verst settu í dag, einnig
til þess að aðrir fái nokkra hækkun lífeyris, en það eru þeir sem
fengu sáralitla hækkun með samkomulaginu 19. nóvember 2002.
Krafan er að þetta komi til framkvæmda strax á þessu ári.
Hækkun tekjutryggingarauka þýðir að bætur hvors hjóna
hækka um 4.361+645 kr. eða samtals um 5.006 kr. á mánuði.
Kostnaður ríkisins er um 380 milljónir á ári, en með tilliti til
tekjuskatts um 280 milljónir á ári. Hækkun heimilisuppbótar
þýðir 174 milljón króna á ári, en með tilliti til tekjuskatta 130
milljónir á ári.
30.000 króna frítekjumark þýðir 13.500 kr. hækkun á lífeyri
flestra þeirra sem tekjutryggingar og tekjutryggingarauka njóta í
dag og mun kosta um 3,3 milljarð króna, en með tilliti til tekju-
skatts er raunkostnaður nálægt 2,0 milljörðum króna á ári. Þessar
Sigviildi Snær Knldalóns
Reykjavík
„Ég hef notað SagaPro um
nokkum tíma og er afar
ánægður með árangurinn. Ég
tek eina töflu áður en ég fer að
sofa og hefverið nær laus við
salernisferðir á nóttunni og
þakka það notkun á SagaPro."
Vaknar þú oft á nóttunni?
SagaPro er náttúruvara frá SagaMedica,
einkum ætluð karlmönnum
sem vakna oft á nóttunni.
Vísbendingar eru um að
SagaPro geti einnig
gagnast konum. SagaPro
er unnin úr íslenskri
ætihvönn.
SAGAMfcDICA
Sækjum styrk
í íslenskt náttúruafl!
sagaMedica
www.sagamedica.is
hófsömu kröfur eru nálægt þeim mörkum að greiðslur ríkisins til
lífeyrisþega verði sama hlutfall af tekjum ríkissjóðs og var á síð-
asta ári. Kröfur þessar eru aðeins fyrsta skref í frekari kröfugerð
til lagfæringar á kjörum eldri borgara.
Krafa LEB er að grunnlífeyrir verði skattffjáls. Einnig að
hann verði hækkaður til samræmis við það sem hann var í
upphafi og greiddur óskertur til allra. Samhliða ofangreindum
breytingum verði 66 ára og eldri gefinn kostur á að ffesta töku
lífeyris gegn hækkun lífeyrisgreiðslna. Horfið verði í áföngum
ffá því fyrirkomulagi að leggja saman tekjur hjóna, deila í með
tveimur og miða álögur við það.
Benedikt heiðursfélagi LEB
Sambandsstjórn LEB ákvað á fundi sínum að gera Benedikt
Davíðsson, fyrrverandi formann og ffamkvæmdastjóra
Landssambandsins, að heiðursfélaga sinum.
Störf Benedikt eru mönnum vel kunn. Hann tók þátt í rót-
tækum breytingum á starfsemi Trésmiðafélags Reykjavíkur á
6. áratug síðustu aldar og gerði það að stéttarfélagi. Hann var
um áratugaskeið formaður Sambands byggingamanna. Forseti
Alþýðusambands íslands á árunum 1992 til 1996. Benedikt hefur
sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum um ævina, sat meðal annars
f stjórn Norræna bygginga- og tréiðnaðarmannasambandsins, var
formaður bankaráðs Alþýðubankans, formaður Landssambands
lífeyrissjóða og átti lengi sæti í miðstjórn ASÍ.
Stjórn Landssambandsins óskar Benedikt og fjölskyldu
hans allra heilla um ókomin ár og væntir þess að mega leita til
hans þegar góðra ráða gerist þörf.