Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 60
Þjónusta í trú, von
og kærleika
að er sérstakt ánægjuefni að fá að rita nokkur orð í þetta
ágæta blað eldri borgara, til kynningar á því starfi sem ég
starfa að sem héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra.
Ahersla er lögð á starf að málefnum eldri borgara í samvinnu
við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Þar má meðal annars nefna
menningar- og fræðsludagskrá i þjónustumiðstöðvum aldraðra
auk sálgæslu og umsjá helgistunda þar. Þá má nefna reglubundið
helgihald og sálgæslu í Seljahlíð, hjúkrunarheimili aldraðra. Það
er mjög áhugavert og gefandi að vera kominn inn á þetta svið að
starfa að málefnum eldri borgara eða heldri borgara þessa lands,
eins og stundum er sagt, sem svo mjög eru í umræðunni þessa
dagana.
Þegar litið er til hagsmuna eldri borgara eins og þeir blasa nú
við, þá er alveg ljóst að afar margt má betur fara. Ætla ég nú ekki
að fara að telja það allt upp hér, enda hefir það verið gert
allmyndarlega í fjölmiðlum landsins undanfarna daga. Legg ég
þá von til að ýmislegt sem þar hefir verið skrifað gleymist ekki
fljótlega eftir kosningarnar sem framundan eru.
Það að fara á eftirlaun getur verið afskaplega mismunandi
og þar má nefna heilsufar, húsnæði, fjárhag og síðan tómstundir.
Margt af því fólki sem er að ljúka starfsævinni býr enn við mikla
starfsgetu og býr að mikilli þekkingu sem gæti hæglega nýst þjóð-
félaginu með margvíslegum hætti. Það væri hollt fyrir nútíma-
samfélagið að horfa til aðstæðna hjá jafnvel mjög frumstæðum
þjóðflokkum. Þar eru engar meiriháttar ákvarðanir teknar án
samráðs við öldunga ættflokksins, því að þar er þekkingin og
reynslan fyrir hendi. Já, jarðsambandið er í lagi hjá ættflokknum
og engar ákvarðanir teknar nema með heildarhagsmuni sam-
félagsins í huga.
Það getur því ekki verið hagstætt háhraðasamfélagi nútímans
að taka eldri borgara og koma þeim fyrir á afmörkuðum stofn-
unum, í svo miklum mæli sem gert er, þar sem tengslin við sam-
félagið geta aldrei orðið eins náin eins og þegar fólkið fær að
taka þátt í atburðum hversdagsins, hver á sínum forsendum, eftir
getu og áhuga. Mjög krefjandi starf er unnið á dvalarheimilum
og hjúkrunarheimilum fyrir eldri borgara. Mikið álag er á starfs-
fólkinu og mikilvægt að gera vel við það, því að oft mun hafa
verið erfitt að manna allar stöður í þessum mikilvægu umönnun-
arstörfum.
Þau tímamót sem verða við starfslok eru mjög afgerandi og
því er nauðsynlegt að undirbúa þau eins og kostur er. Staðreyndin
er hins vegar sú að það vill oft farast fyrir og í samtölum mínum
við eldri borgara hefur komið í ljós að margir eru mjög ráðvilltir
og virðist margt koma á óvart í þessum aðstæðum. Huga þarf að
hagsmunum þessa fólks í félagslegum, andlegum og trúarlegum
skilningi, af mikilli virðingu. Þar geta hin ýmsu námskeið komið
að gagni og því er ég með meðal annars í boði fyrirlestur um
starfslok, fyrir þetta ágæta fólk. Þar er leitast við að upplýsa um
möguleika i stöðunni og aðstoða fólk við að leysa úr oft erfiðum
tilfinningum þessu samfara.
Meginþunginn í starfi mínu er starf með eldri borgurum og
samvinna með þeim sem starfa að þjónustu við þennan merka
aldurshóp. Því er það að ég hefi leitast við að aðlaga það fræðslu-
efni sem ég hef upp á að bjóða að hagsmunum bæði eldri borg-
ara og starfsfólks í þjónustugreinum. Má þar nefna, auk fyrirlest-
urs um undirbúning vegna starfsloka, námskeið sem stuðlar að
auknum skilningi á manneskjunni sem tilfinningaveru „Dansaðu
eftir þinni eigin músik“ sem nýtist bæði eldri borgurum og starfs-
fólki, námskeið um sálgæslu og sorgarúrvinnslu (streituúrvinnsla),
fýrirlestur um áföll og áfallahjálp, fyrirlestur um öryggismál eldri
borgara, námskeið um að vinna úr fjármálastöðu við missi maka
í samvinnu við viðskiptabanka, fyrirlestrar um trúarleg málefni,
svo sem „Hin helgu trúartákn og trúin.” Alfanámskeið sem fjalla
um Kristna trú og miða að því að gera trúna að meira gildandi
þætti í lífi olckar. Hafa Alfanámskeiðin farið sigurför um heiminn
og verið tekið fagnandi af kristnum kirkjudeildum mjög víða.
Það er mér sérstakt gleðiefni að geta sagt frá því að ég upplifi
mjög jákvæðar væntingar frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar
og frá Félagi eldri borgara í Reykjavík til starfa minna að hags-
munum eldri borgara. Kem ég með útrétta vinarhönd til þess
stóra hóps sem starfar að þjónustu við eldri borgara í þeirri von
að við getum snúið bökum saman i hinu mikilvæga starfi okkar.
Gott væri að heyra frá góðum samherjum til samhæfingar og
samstarfs í kærleika.
Eg er með aðsetur í kjallara safnaðarheimilis Grensáskirkju.
Þar er ég til staðar fyrir fólkið og með viðtalstíma eftir þörfum.
Einnig er hægt að leita til mín þegar á þarf að halda, á nóttu
sem degi í síma 897-6545. Geng ég fram í þessari þjónustu til
fulltingis hagsmunum eldri borgara sérstaklega, í trú sem aldrei
efast, von sem aldrei bregst og kærleika sem umvefur systur og
bræður í Kristi.
Hans Markús Hafsteinsson,
Héraðsprestur.
GSM 897-6545.
Netfang: hansmark@centrum.is
SafnasvæðiðAkranesi
Görðum, 300 Akrancs
Sími: 431 5566/431 1255
www.museum.is
muscum@muscum.is
REGATTA >