Listin að lifa - 01.06.2006, Síða 63
þetta umdeilda landsvæði. Frá virkjunarsvæðinu er ekið austur
Fljótsdalsheiði með viðkomu í Snæfellsskála (ef skyggni er gott)
ennfremur reynum við að komast sem næst Eyjabakkasvæðinu
áður en við förum niður af heiðinni að Skriðuklaustri og
Valþjófsstað. Komið að Eiðum síðla kvölds.
Þriðji dagur: Eftir morgunmat er ekið til Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar. Framkvæmdir skoðaðar hjá Alcoa og annað mark-
vert. Áætlað að fara um nýju jarðgöngin milli Reyðarfjarðar
og Fáskrúðsfjarðar - til Stöðvarfjarðar (steinasaíh Petru),
Breiðdalsvíkur, Djúpavogs og um nýju jarðgöngin undir
Almannaskarð að Höfn í Hornafirði. Kvöldmatur og gisting að
Hrollaugsstöðum í Suðursveit. Stoppað á markverðum stöðum á
leiðinni.
Fjórði dagur: Eftir morgunmat er ekið eftir suðurströndinni um
Suðursveit og Fagurhólsmýri. Stoppað í Skaftafelli áður en lagt
er á Skeiðarársand. Ekið um Kirkjubæjarklaustur og Vík, borðað
á Hvolsvelli. Komið heim síðla kvölds. Stoppað á markverðum
stöðum á leiðinni.
Berjaferð í ágúst eða byrjun september, fer
eftir berjasprettu!
Dagsferð 15.-16. september í Hruna- eða
Skeiðaréttir eða aðrar nálægar réttir.
Fyrst förum við í réttirnar - og verðum þar þann tíma sem þarf.
Síðan gerum við aðra tilraun að fá gott veður í Tungufellsdal, en
veðrið sveik okkur í fyrra. Skoðum Gullfoss og förum síðan að
Hótel Gullfossi, Brattholti. Borðum þar rétt dagsins, kjötsúpu.
Heimleiðis um Geysi (skoðum svæðið), Reykholt, Þrastalund og
Hellisheiði.
Haustlitaferð í endaðan september eða byrjun
október. Um Þingvelli að Húsafelli.
Ekinn Kaldidalur (ef fær), annars Uxahryggir og Lundarreykj adalur
að Húsafelli, Hraunfossum, Reykholt. Kaffihlaðborð á heimleið.
Athugið! Staðfesta þarf lengri ferðir með inn-
borgun minnst mánuði fyrir brottför. Nánari
upplýsingar hjá ferðanefnd.
Ferðanefhdin bendir á ferðir eldri borgara í samvinnu við Emil
Guðmundsson og Icelandair.
St. Petersburgh, Florida. Vorferðin 1 6.-27. maí.
Haustferðir 3.-14. október og 7.-18. nóvem-
ber. San Fransisco 31. maí til 7. júní.
Grænland og Færeyjar í samvinnu við Emil og
Flugfélag íslands. Grænlandsferðin er áætluð
4.-7. júlí.
■B
Vestmannsvatn
Þann 24. til 31. júlí verður vika eldri borgara á Vest-
mannsvatni. Á hverju ári hittast eldri borgarar af öllu
landinu til að njóta ánægjulegra samverustunda. Þar
er sungið, talað, hlustað, ferðast og síðast en ekki síst er
borðað mikið af góðum mat. Fríða töffar fram dýrindis
máltíðir á hverjum degi, saltkjöt og baunir, siginn fisk, kjöt
og kjötsúpu, kjötbollur auk fleiri gómsætra og góðra mál-
tíða. Við fórum í dagsferð með rútu á fallega staði í nágrenn-
inu og skreppum á kaffihlaðborð, auk þess sem við fáum
góða gesti í heimsókn á kvöldvökur. Síðasta kvöldið er
harmonikkuball. Síðasta sumar var uppselt í hóp eldri
borgara. Það er besta auglýsingin okkar að sama fókið
kemur ár eftir ár. Nú langar okkur að bjóða fleiri velkoma.
Hjón, vinir eða einstaklingar, það passa allir í hópinn!!!
Orkuveita
Reykjavíkur
ÍSFUGL
Sími: 566 6103 nnn.isfngLis
Sumarbúðimar
vatn
í Aðaldal, S-Þingeyjarsýslu
Langar þig að koma
í skemmtilega vikudvöl
í sumarbúðir?
24.900. - tveggja manna herbergi
27.900, - eins manns herbergi
Skráning á heimasíðunni okkar
skarpur.is/vestmannsvatn eða
í síma 868-8162 hjá Aðalgeiri Sigurðssyni
63