Listin að lifa - 01.06.2006, Page 64
Mikið var unnið á fundinum. Til vinstri má sjá Helga K. Hjálmsson,
síðan Britturnar tvær, maðurinn í hvítu skyrtunni er Lars Wettergren
formaður NSK.
Norræna samráðsnefndin
Samtök eldri borgara á Norðurlöndum senda frá sér ályktun
Fulltrúar samtaka eldri borgara á Norðurlöndum NSK
funduðu í Reykjavík 8. og 9. maí. NSK hefur lagt sérstaka
áherslu á að hæta aðstöðu eldri borgara sem búa við hvað
verst kjör - og sendir frá sér eftirfarandi ályktun:
Eftirlaunafyrirkomulag Norðurlanda hefur þróast á mismunandi
hátt vegna ólíkra sögulegra og annarra ástæðna. Fulltrúarnir
eru þó sammála um að leggja beri sérstaka áherslu á að við-
Reykvíkingar, 67 ára
og eldri, fá ókeypis
aögang aö sundstöðum ÍTR,
halda kaupmætti ellilífeyris landanna. Pau mannúðarsjónarmið,
siðfræðileg afstaða og samstöðugildi sem einkenna gildismat
Norðurlandabúa og tengja þjóðirnar saman - bjóða upp á stöð-
ugan grundvöll um áframhaldandi samstarf í þessum anda, bæði
milli landanna og á alþjóðlegum vettvangi. Þessi viðhorf skylda
samtök NSK til áframhaldandi samvinnu.
Britt-Marie Ekvall og Britt Marie Strandin eru starfsstúlkur Norrænu
samtakanna.
SKÓGASAFN
Skógar Museum
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
^^artaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta