Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.03.2015, Side 10

Fréttatíminn - 20.03.2015, Side 10
A Að óbreyttu stefnir í verkfall Starfsgreina- sambandsins eftir páska en líkur eru á því að heimild til verkfallsboðunar verði samþykkt á næstunni í sameiginlegri atkvæðagreiðslu sextán aðildarfélaga sambandsins. Innan þeirra vébanda eru nær 13 þúsund manns. Það stefnir því í það sem margir spáðu – og óttuðust – að átök yrðu á vinnumarkaði í vetur og vor, jafnvel harðvítug. Kröfur Starfsgreinasambandsins eru þær að lægstu laun verði 300 þúsund krónur á mánuði innan þriggja ára. Samtök atvinnulífsins höfnuðu þeim kröfum. Starfs- greinasambandið beitir neyð- arrétti sínum, telur að lægstu laun í landinu séu til skammar. Haft var eftir Birni Snæbjörns- syni, formanni Starfsgreinasam- bandsins, að það væri á ábyrgð Samtaka atvinnulífsins að fólk hefði ekki í sig og á. Rök Sam- taka atvinnulífsins, þegar kröfu Starfsgreinasambandsins var hafnað, voru þau að samtökin vildu áfram byggja upp kaupmátt launa á grundvelli hóflegra launahækkana og verðstöðugleika. Nálgun Starfsgreinasam- bandsins, að krefjast tugprósenta launahækk- ana, myndi leiða til mikillar verðbólgu á skömmum tíma og stökkbreyta verðtryggðum skuldum heimila og fyrirtækja, hækka vexti og fella gengi krónunnar. Í kjaradeilu Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins er það svo, eins og gjarna í hliðstæðum deilum, að rök beggja eru gild. Vandinn er að finna þolanlega niður- stöðu áður en samningsaðilar og samfélagið skaðast verulega. Það er óumdeilt markmið að menn lifi af launum sínum en jafnframt er vitað af reynslu undangenginna áratuga að launahækkanir hafa tilhneigingu til að ganga yfir allar starfsgreinar. Samanburðartölum er óspart beitt hjá öllum stéttum. Innistæðulausar hækkanir kjarasamninga skila sér því fljótt út í samfélagið með aukinni verðbólgu, rýrari krónu og því sem verst kemur sér fyrir allan þorra fólks, verulegri hækkun verðtryggðra íbúðalána. Þessa sögu þekkja allir, ekki síst þeir sem starfa beggja vegna borðs að gerð kjara- samninga. Það er því mikil ábyrgð á þeirra herðum þegar leitað er ásættanlegrar niður- stöðu. Samningsaðilar á almenna markaðnum gerðu merka tilraun þegar gengið var frá síð- ustu kjarasamingum. Samið var um hóflegar launahækkanir en á móti var þess vænst að kaupmáttur ykist. Það gekk eftir. Kaupmáttur jókst verulega og verðbólga hjaðnaði. Hún hef- ur ekki verið lægri um langt árabil. Þá hefur krónan verið í jafnvægi. Þetta hefur skilað sér í ábata fyrir heimilin með meiri kaupmætti en ekki síst í jafnvægi verðtryggðu lánanna. Slíkt er kjarabót sem verður að verja með öllum til- tækum ráðum. Það er ólíðandi að þjóðin missi úr höndum sér þá stöðu sem náðst hefur. Forystumenn Starfsgreinasambandsins, sem lögðu sitt lóð á vogarskálarnar í síðustu kjarasamningum, segja tilraunina ekki hafa gengið upp þar sem ekki hafi allir tekið þátt. Þar er meðal annars vísað til þess að hið opin- bera hafi farið út fyrir settan ramma þegar samið var við kennara og síðar lækna. Þetta má til sanns vegar færa en rök fyrir umframhækk- unum til þessara stétta eru kunn, að mennta- kerfið en einkum heilbrigðiskerfið hafi verið komið á heljarþröm og því hafi hið opinbera nauðbeygt samið, nánast verið knésett. Þrátt fyrir þetta er samfélagslega skynsam- legt að halda áfram á þeirri braut sem mörk- uð var í síðustu kjarasamningum, að ná fram auknum kaupmætti og viðhalda efnahagsleg- um stöðugleika í stað þess að efna til ófriðar sem leiða mun til þess að allir tapa. Samhliða því þarf hins vegar að nást samstaða um að horfa sérstaklega til þeirra sem lægst hafa launin, að bæta þeirra. Fram kom í fréttaskýringu í Morgunblaðinu fyrr í vikunni, um stöðu kjarasamninganna, að önnur stéttarfélög innan ASÍ en Starfs- greinasambandið hugi þessa dagana að sér- samningum fyrir sína félagsmenn í stað þess að takast á um launakröfur strax í upphafi við- ræðna. Flóafélögin svokölluðu og verslunar- menn vilja semja til árs og hið sama á við um iðnaðarmenn. Miðað við aðstæður nú er sú leið sennilega greiðfærari en leiðin sem Starfsgreinasam- bandið valdi. Stefnir í verkfall Starfsgreinasambandsins eftir páska Greiðfærarari leið að semja til árs Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@ frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. niðurhal einfalt ótakmarkað 6.990 ljósleiðari ljósnet vortex.is 525 2400 VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS Hobby sameinar nútímalegt útlit ásamt miklu notagildi. Niðurstaðan er falleg hjólhýsi að innan sem utan þar sem þér og fjölskyldu þinni líður vel. Opið um helgar frá klukkan 12 til 16 De Luxe 400 SFe 3.975.000 Prestige 560 UKF 4.995.000 Prestige 495 UL 4.595.000 Excellent 460 UFe 4.295.000 Prestige 720 UKFe 5.995.000 Excellent 560 CFe 4.995.000 10 viðhorf Helgin 20.-22. mars 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.