Fréttatíminn - 20.03.2015, Blaðsíða 23
„Ég er að koma heim eftir nokk-
urra ára fjarveru,“ segir Siggi eins
og hann er kallaður. „Ég var hérna
síðast fyrir einhverjum tíu árum
og þá hafði ég verið hér í ein-
hver 25 ár rúmlega. Síðan fór ég á
flakk, vann bæði í sjónvarpinu og
í Borgarleikhúsinu og hef komið
víða við,“ segir Siggi. „Leikferill-
inn er að verða býsna langur, ég
þori ekki hugsa svona langt aft-
ur,“ segir Siggi. „Ég útskrifast
1976 svo þetta eru að verða 40 ár,“
segir Siggi sem er 58 ára gamall.
„Mér finnst ótrúlega stutt síðan
ég var að leika bakaradrenginn í
Dýrunum í Hálsaskógi, sem var
mitt fyrsta hlutverk. Hlutverkin
hafa breyst með aldrinum. Maður
byrjar á því að leika unga mann-
inn, og færir sig svo í pabbann og
svo er maður kominn í afann voða
mikið í dag,“ segir Siggi.
Skeggið er inn
Siggi skartar mjög myndarlegu
skeggi um þessar mundir og kem-
ur það til upprunalega vegna hlut-
verks í kvikmyndinni Hrútar sem
tekin var upp í vetur. Siggi er þó
ekkert á því að hann muni raka
sig á næstunni. „Skeggið er búið
að klippa oft, og það hefur verið
meira,“ segir Siggi. „En ég byrjaði
að safna í maí á síðasta ári. Ætli
þetta sé ekki bara komið til að vera.
Ég get allavega ekki rakað mig
núna leikandi útilegumann í Fjalla-
Eyvindi,“ segir Siggi. „Svo er þetta
inn í dag meðal ungra og aldinna.
Útilegumaðurinn er skemmtilegt
hlutverk. Hann er vinur þeirra Ey-
vindar og Höllu og svo er bara svo
gaman að koma að þessu leikriti.
Þetta er einn af hornsteinum ís-
lenskrar leikritunar og ég er mjög
áhugasamur um leiklistarsöguna.“
Fjalla Eyvindur og Halla er í leik-
stjórn Þjóðverjans Stefan Metz og
Siggi segir það frábært að vinna að
jafn íslensku leikverki og Fjalla-Ey-
vindur er, með útlendingi.
„Það er alveg brilljant að fá
utanaðkomandi aðila til þess að
skoða þetta með okkur,“ segir
Siggi. „Hann er kannski ekki með
allt aðra sýn á þetta en hann víkk-
ar okkar sýn á þessu. Svo þekkir
hann okkur vel og er á heima-
velli.“
Í kvikmyndinni Hrútar sem er
í leikstjórn Gríms Hákonarsonar
leikur Siggi bónda sem býr einn á
sveitabæ í nágrenni við bróður sinn,
sem leikinn er af Theódóri Júlíus-
syni. „Þetta er athyglisverð mynd,
og það hlutverk sem mér þykir hvað
vænst um á undanförnum árum,“
segir Siggi. „Myndin fjallar um
bræður sem búa í sömu sveit og
stunda fjárbúskap, en hafa ekki tal-
ast við í 40 ár. Síðan dynur yfir sveit-
ina áfall og niðurskurður og myndin
fjallar um það.“
Af hverju er þér hlutverkið svona
kært? „Í fyrsta lagi er þetta gott
handrit, sem er grunnur alls í bíó-
mynd. Grímur er frábær leikstjóri
og samvinnan við Theódór var mjög
gefandi,“ segir Siggi. „Það er líka
bara þessi sveitastemming sem ég
er hrifinn af. Mín fyrsta mynd var
Land og synir þar sem ég lék sveita-
mann og ég kann vel við það,“ segir
Siggi.
Textinn síaðist inn
Í vikunni sló Siggi í gegn enn einu
sinni þegar hann birtist í nýjasta
myndbandi Of Monsters And Men,
Chrystals. Siggi segist vera mikill
aðdáandi sveitarinnar. „Þetta kom
mér jafn mikið á óvart og öðrum,“
segir Siggi. „Mér vafðist tunga um
tönn í stutta stund, en svo hugsaði
ég bara að maður verður að hafa
gaman að lífinu. Þetta var tæki-
færi sem maður fær ekkert endi-
lega aftur og mér þykir vænt um
þessa hljómsveit. Ég naut þess að
gera þetta,“ segir Siggi. „Þetta
voru nú ekkert margar tökur og
textinn síaðist inn, ég fékk ekki
langan undirbúningstíma.“
Framundan hjá Sigga eru mörg
verkefni. Hann er að skrifa leikrit
ásamt félaga sínum Karli Ágústi
Úlfssyni og einnig er verið að vinna
að þáttum um sögu Spaugstofunn-
ar sem er stór partur af sögu sjón-
varps á Íslandi. Honum sýnist líka
að hann muni ílengjast eitthvað á
sínum gamla heimavelli, Þjóðleik-
húsinu. „Mér líkar sú tilhugsun
mjög vel, að ílengjast á þessum
fæðingarstað mínum,“ segir Siggi.
„Ég er kominn með gamla her-
bergið mitt og þetta er staður sem
mér þykir vænt um. Hér hef ég lært
hvað mest og það er gott að koma
heim,“ segir Siggi Sigurjóns.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
„Ég er sveitakarl
og kann vel við að
leika slíka karla,“
segir Siggi Sigur-
jóns. Hér hann
í hlutverki sínu
í kvikmyndinni
Hrútum eftir Grím
Hákonarson. Þessi
sena var tekin á
bænum Bólstað í
Bárðardal.
viðtal 23 Helgin 20.-22. mars 2015
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
8
0
1
3
Frestur til að samþykkja
höfuðstólsleiðréttinguna
er til 23. mars*
Rafræn skilríki
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Þú samþykkir leiðréttinguna með rafrænum skilríkjum í farsíma
Rafræn skilríki eru nauðsynleg til að samþykkja leiðréttingu verðtryggðra
húsnæðislána. Á vef Íslandsbanka geturðu slegið inn símanúmerið þitt og
athugað hvort þú sért með rétta tegund af SIM korti. Ef þú ert með rétta
kortið geturðu komið til okkar og við aðstoðum þig við að virkja skilríkin.
Skilríkin geturðu notað við innskráningu í Netbankann en einnig til að
fara inn á vefsvæði hjá um 100 þjónustuveitendum.
Nánar um rafræn skilríki á islandsbanki.is/skilriki
*Fyrir þá aðila sem gátu samþykkt frá og með 23. desember 2014.
Við hvetjum þig til að fá þér rafræn
skilríki í símann þinn svo að þú getir
samþykkt leiðréttinguna.