Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.03.2015, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 20.03.2015, Blaðsíða 38
Laugardagstilboð – á völdum dúkum, servéttum og kertum se rv ét tú r ke rt i dú ka r Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is ® Ýmis servéttubrot Sjá hér! Verslun RV er opin virka daga kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-16 Rekstrarvörur - vinna með þér Á Íslandi er talið að þriðj-ungur þeirra matvæla sem framleiddur er, endi sem sorp á einn eða annan hátt. Þessi sóun á sér stað á öllum stigum; í ræktuninni, strax við uppskeru, við flutning, hjá framleiðendum, í versl- unum, í mötuneytum á veitingastöð- um og hjá neytendum. Forsvars- menn Vakandi telja það vera sína samfélagslegu ábyrgð að stemma stigu við þessu. „Við viljum taka málefnið föstum tökum og vinna í sameiningu að því að minnka sóun. Við teljum það skyldu okkar að skilja eitthvað eftir fyrir komandi kynslóðir þannig að það þrífist líf þegar afkomendur okkar vaxa úr grasi,“ segir Rakel Garðarsdóttir, stofnandiVakandi. Matarsóun er stórt vandmál Rakel hefur lengi verið að velta fyrir sér afleiðingum matarsóunar. „Matarsóun er mjög stórt vandamál í heiminum, bæði umhverfislega og efnahagslega. En það er í raun mjög auðvelt fyrir okkur sem einstaklinga og neytendur að hægja á þessu og breyta neyslumynstri okkar og sóa minna. Við getum tekið lítil skref í átt því að breyta neysluvenjum okkar til hins betra og bæta þannig heim- inn, smátt og smátt,“ segir Rakel. Í dag er Vakandi hennar aðal- Þörf er á betri fyrirmyndum þegar kemur að um- hverfisvernd áhugamál og lítur hún svo á að allir þeir sem eru vakandi fyrir matarsóun séu meðlimir Vakandi. Rakel fagnar vaxandi umræðu um matarsóun. Kvenfélagasamband Ís- lands er meðal þeirra samtaka sem vilja vekja athygli á afleiðingum matarsóunar en í nýlegri yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að hlutverk Samkeppniseftirlitsins eigi að vera að vinna gegn matarsóun. Sambandið hvetur framleiðendur, birgja og verslanir til að bregðast við mikilli matarsóun sem á sér stað þegar vörum sem komnar eru á síð- asta söludag er fargað, í stað þess að þær séu til dæmis seldar á niður- settu verði eða viðskiptaháttum sé breytt þannig að matvæli verði nýtt. Alþjóðlegt samstarf Vakandi á í góðu samstarfi við marga aðila og er Rakel einnig í starfshópi á vegum umhverfisráðuneytisins sem fjallar um matarsóun og þau úr- ræði sem eru í boði. Unric, upplýs- ingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Vestur-Evrópu, heldur að hluta til utan um starfsemi Vakandi og hýsir meðal annars vefsíðu samtakanna: http://www.unric.org/is/vakandi. „Það er margt fólk bæði hér heima og úti sem er til í að hjálpa, sem er æðislegt og hefur haft mikil áhrif. Við stóðum meðal annars að stórri ráðstefnu í Hörpu síðastliðið haust og fengum þar meðal annars Selinu Juul til að halda erindi, en hún er dönsk baráttukona gegn sóun matvæla. Hún var nýverið útnefnd Dani ársins 2014 í kosningu blaðsins Berlingske Tidende. Það var meiriháttar að fá hana hingað til landsins til að deila sinni reynslu,“ segir Rakel og það er greinilegt að Vakandi kemur víða við. Dreifir út boðskapnum með bókaútgáfu Fyrir áramót kom út bókin „Vak- andi veröld – Ástaróður“ eftir Rak- el og Margréti Marteinsdóttur. Í bókinni er fjallað um matarsóun, meðvitund um umhverfið og hvern- ig hægt er að nýta tímann og pen- inga betur í neyslu. „Mig langaði að dreifa út boðskapnum og bækur eru frábær miðill til að koma upp- lýsingum á framfæri. Vakandi ver- öld er skemmtileg og auðlesin bók um alvarlegt málefni og þetta er bók sem á að höfða til allra,“ segir Rakel. Við þurfum betri fyrirmyndir Rakel er þeirrar skoðunar að mikil þörf sé fyrir samtök eins og Vak- andi á Íslandi. „Manni líður svo- lítið þannig að þeir sem stjórna mestu hér á landi hafi ekkert mik- inn áhuga á þessum málaflokki. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt til dæmis ræðu í nóvember um rafbílavæð- ingu Íslands og kosti hennar, en svo korteri seinna kaupir hann, og fleiri ráðherrar, einhverja risastóra bensínháka. Við getum ekki auglýst Ísland sem grænt og fallegt land á sama tíma og ráðamenn keyra um á risastórum bensínbílum,“ segir Rakel. Vakandi veröld er hluti af vitundarvakningunni sem er nauð- synleg meðal Íslendinga. „Við þurf- um betri fyrirmyndir. Þeir sem eru áberandi í samfélaginu verða að sýna gott fordæmi þegar kemur að umhverfisvernd,“ segir Rakel. Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is Vitundarvakning um sóun á matvælum Rakel Garðarsdóttir vill stuðla að vitundarvakningu meðal Íslendinga um sóun á matvælum Ljósmynd/Hari 38 fréttir Helgin 20.-22. mars 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.