Iðnaðarmál - 01.04.1964, Síða 7
Þróun atvinnulífs á ísafirði
Myndun og þróun kaupstaða og
kauptúna á íslandi hafa tveir at-
vinnuvegir ráðið að mestu, sjávarút-
vegur og verzlun, og í kjölfar þeirra
hefur iðnaðurinn svo fylgt.
Upphaf þess, að þéttbýli tók að
myndast þar, sem nú er ísafjarðar-
kaupstaður, má rekja til þess, að þar
reis upp verzlunarmiðstöð á fyrri
hluta 19. aldar fyrir verstöðvar op-
inna báta á ísafjarðardjúpi. En um
1828 hefst þilskipaútgerð á Vest-
fjörðum, fyrst fyrir hákarlaveiðar og
síðar fyrir þorskveiðar og jókst við
það verzlun á ísafirði og útgerð
einnig. Þegar bezt lét á þessu tíma-
bili var ísafjörður mesti útflutnings-
hær landsins.
Á þessu vaxtaskeiði ísafjarðar
myndast þar stétt iðnaðarmanna. At-
vinnu höfðu þeir af því að búa út
þilskip á vorin og smíða opna báta
fyrir vorvertíð. Að sumrinu var unn-
ið við húsabyggingar á ísafirði og
nágrenni og suma vetur var talsverð
bátasmíði. Árið 1888 stofna þessir
iðnaðarmenn með sér samtök, Iðn-
aðarmannafélag ísfirðinga, sem nú
er annað elzta iðnaðarmannafélag á
landinu.1 Þá hafði ísafjörður fengið
kaupstaðarréttindi fimmtán árum áð-
ur.2
Árið 1904 er fyrsta vélin sett í
1 Sjá ritið Iðnaðarmannafélag Isfirðinga
1888—1958. Amgrímur Fr. Bjamason tók
saman, Isafirði 1959.
2 Með konungsúrskurði 18. ág. 1786 var
verziun á Islandi gefin frjáls við alla þegna
Danakonungs og jafnframt var 6 verzlunar-
stöðum veitt kaupstaðarréttindi. Meðal
þeirra var Isafjörður. Lovsaml. for Island,
V., bls. 305—316).
Réttindi kaupstaðanna voru nánar tiltek-
in í tilskipun 17. nóv. 1786. (Lovsaml. for
Isl., V., bls. 344—352).
Kaupstaðarlóð ísafjarðarkaupstaðar var
afmörkuð, mæld og kortlögð 24. apríl 1787.
Stærðin var 400725 ferálnir. Prestinum á
Eyri var goldin kaupstaðarlóðin með jörð-
inni Brekku á Ingjaldssandi og bréf um
þessi makaskipti voru lesin á Alþingi 1791.
(Alþbók 1791, bls. 46. Lovsaml. for Island,
V., bls. 681).
Af bréfi verzlunarstjórans við Neðsta-
kaupstaðarverzlunina á Isafirði til sýslu-
mannsins í Isafjarðarsýslu dags. 15. okt.
1830 virðist mega ráða, að Isafjarðarkaup-
IÐNAÐARMÁL
I sajjarðarkaupstaður.
fiskibát á Islandi og átti það sér stað
á ísafirði. í kjölfarið fylgdi hröð vél-
væðing bátaflotans íslenzka og verð-
ur nú ísafjörður aðalmiðstöð vél-
bátaútgerðar á Vestfjörðum, en áður
höfðu aðrar verstöðvar verið afla-
meiri. Á síðustu áratugum koma svo
togarar til sögunnar og hafa nokkrir
þeirra verið gerðir út frá Isafirði.
Bátaútgerðin hefur þó eftir sem áður
verið meginstoð útgerðarinnar á ísa-
firði eins og á Vestfjörðum öllum.
Upp úr aldamótunum, þegar út-
gerðin fer að setja aðalsvipinn á at-
vinnulíf Isafjarðar, eflist handiðnað-
ur til muna. Eftir sem áður mynda
skipasmiðir og snikkarar stærsta iðn-
aðarmannahópinn, en nokkrir járn-
staður hafi með konunglegri tilskipun 1816
verið „felldur í tign“ og gerður að því, sem
kallað var „Udliggerstad" eða „simpelt
Handelssted". (Þessa tilskipun er sjálfsagt
að finna í Lovsaml. for Island).
Með reglugerð 26. jan. 1866 er verzlun-
arstaðurinn Isafjörður gerður kaupstaður
að nýju. Verzlunarstaðurinn og prestssetrið
Eyri skulu vera bæjarfélag og lögsagnarum-
dæmi sér og nefnast kaupstaður, sem
stjórnað er af bæjarfógeta og 5 bæjarfull-
trúum. (Tíðindi um stjómmálaefni ísland,
II. b.).
Með opnu bréfi 26. jan. 1866 er sett á
stofn byggingameínd fyrir Isafjarðarkaup-
stað, 4 menn og bæjarfógeti. (Tíðindi um
stj.málefni íslands, II. b.).
smiðir og vélsmiðir koma til sögunn-
ar á árunum frá aldamótum fram til
fyrri heimsstyrjaldar. Á sama tíma
verður einnig mikil aukning í þjón-
ustuhandiðnaði og fjölgar t. d. bök-
urum á þessum árum um 11.
Fyrirtæki í verksmiðjuiðnaði byrja
ekki að rísa upp fyrr en um og eftir
heimskreppuna og þá aðallega í sam-
bandi við fiskvinnslu. Þó ber að geta
merkilegrar brautryðjandastarfsemi á
ísafirði á sviði fiskiðnaðar, en það
er stofnun niðursuðuverksmiðjunnar
ísland árið 1906. Aðalstofnandi og
eigandi hennar var Pétur M. Bjarna-
son. Pétur rak verksmiðjuna í sjö ár
á ísafirði, en þá brann hún og flutt-
ist Pétur síðan suður til Reykjavikur
og rak þar niðursuðuiðnað til 1919.
Aðalframleiðsluvara verksmiðjunnar
var niðursoðnar fiskibollur. Voru
þær m. a. seldar til Danmerkur. Eitt-
hvað mun hafa verið selt til annarra
landa og verðlaun voru veitt fyrir
framleiðsluna í Berlín, Vín og Róm.
Einnig voru vörur sendar á sýningu
á Árósum 1909 og Kaupmannahöfn
1911 og fengu þær verðlaun á báðum
stöðum.1 Tæknilega yfirumsjón ann-
aðist danskur verkfræðingur.
1 Sbr. grein í Óðni 1925 bls. 40 og skrif-
legar upplýsingar sýslumannsins í ísafjarð-
arsýslu, Jóhanns Gunnars Ólafssonar, um
niðursuðuverksmiðjuna.
41