Fréttatíminn - 08.05.2015, Qupperneq 6
Vel upplýstir
neytendur
veita besta
aðhaldið.
Tugir vísindamanna hafa verið ráðnir hjá Hátæknisetri systurfyrirtækjanna Alvogen
og Alvotech.
NeyteNdur AfNám vörugjAldA skilAr sér ekki til AlmeNNiNgs
Samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ eru verðlækkanir á heimilistækjum vegna afnáms
vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts mun minni en gera mátti ráð fyrir. Ólafur Darri Andra-
son, hagfræðingur ASÍ, segist hafa óttast að breytingarnar myndu ekki skila sér til almennings. Í
20% tilvika hækkaði verð á heimilistækjum eða stóð í stað, samkvæmt könnuninni.
Þ etta eru viss vonbrigði. Við erum að fylgjast með því við óttuðumst að verðlækkanir vegna afnáms vöru-
gjalda myndu ekki skila sér til almennings,“
segir Ólafur Darri Andrason, hagfræðing-
ur Alþýðusambands Íslands, en samkvæmt
niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ eru verð-
lækkanir á heimilistækjum vegna afnáms
vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts
mun minni en gera mátti ráð fyrir. „Þessar
niðurstöður benda til að þetta mætti skila
sér betur,“ segir hann.
Áætla má að verð allra þeirra heimilis-
tækja sem skoðuð voru í könnuninni hefði
átt að lækka um meira en 19% en sú er ekki
raunin. Verðlagseftirlitið áætlar að vörur
eins og sjónvörp, útvörp og myndspilarar,
sem áður báru 25% vörugjald, ættu að lækka
um 22,2%, með lækkun virðisaukaskatts.
Þvottavélar, kæliskápar, uppþvottavélar og
helluborð, sem áður báru 20% vörugjald,
hefðu átt að lækka um 19,2%. Raunin er
hins vegar sú að verð lækkar aðeins í 41%
tilvika um meira en 20%. Þá vekur athygli að
í fimmtungi tilvika hækkaði verð á heimilis-
tækjum eða stóð í stað þrátt fyrir virðisauka-
skattslækkun og afnám vörugjalda.
Athygli vekur að engin vara sem skoðuð
var í versluninni Rafha lækkaði um 19%
eða meira og innan við helmingur þeirra
vara sem skoðaðar voru í Max raftækjum
og Eirvík. Verslunin Smith og Norland
lækkaði verð um meira en 20% hlutfalls-
lega oftast eða í tæplega 80% tilfella. Í 20%
tilfella hækkar verð eða stendur í stað.
Ólafur Darri segir að vissulega sé frjáls
álagning á heimilistæki en verðlagseftir-
litið sé einmitt til að veita aðhald. „Við telj-
um að vel upplýstir neytendur veiti besta
aðhaldið og þess vegna erum við að reyna
að upplýsa hvernig verðið þróast,“ segir
hann.
Kannanir verðlagseftirlits ASÍ á verði
heimilistækja voru annars vegar gerðar í
byrjun október 2014 og hins vegar í apríl
2015 en á tímabilinu var gengi krónunnar
stöðugt og því ekki hækkunarvaldur.
Ólafur Darri segir að á næstu dögum
séu væntanlegar niðurstöður úr könnunum
verðlagseftirlits ASÍ á verði bílavarahluta
og svo á byggingavörum.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Vonbrigði að neytendur
njóti ekki afnáms vörugjalda
Verslunin Smith og Norland kom best út úr könnuninni og hafði lækkað verð um meira en 20% hlutfallslega oftast eða í tæplega
80% tilfella. NordicPhotos/Getty
vAtNsmýri systurfyrirtækiN AlvogeN og Alvotech
Tugir vísindamanna ráðnir til hátækniseturs
Alls 30 háskólamenntaðir raunvís-
indamenn hafa verið ráðnir til starfa
á þessu ári hjá Hátæknisetri systur-
fyrirtækjanna Alvogen og Alvotech
sem nú rís innan Vísindagarða Há-
skóla Íslands. Búist er við að ráðnir
verði að minnsta kosti 20 raunvís-
indamenn til viðbótar á þessu ári.
Alls hafa um 80 starfsmenn verið
ráðnir til fyrirtækjanna, frá því
Alvogen hóf starfsemi á Íslandi árið
2010, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu.
„Það er ánægjulegt að geta byggt
upp starfsemi okkar hér á landi og
nýtt íslenska þekkingu við uppbygg-
ingu á alþjóðlegri starfsemi okkar.
Þegar ég kom að Alvogen fyrir nær
sex árum tilkynntum við um áhuga
okkar á að byggja upp starfsemi á
Íslandi og að fyrirhugað væri að
ráða allt að 20 nýja starfsmenn. Nú
höfum við ráðið um 80 starfsmenn
sem eru í hópi 2.300 starfsmanna
samstæðunnar í 35 löndum. Íslend-
ingar verða í lykilhlutverki við að
móta nýtt líftæknifyrirtæki sem við
vonumst til að verði í fremstu röð á
sínu sviði,“ segir Róbert Wessman,
forstjóri Alvogen.
Í nóvember 2013 hófust fram-
kvæmdir við nýtt Hátæknisetur
sem verður um 13 þúsund fermetr-
ar að stærð. Innan setursins verður
unnið að þróun og framleiðslu líf-
tæknilyfja og áætlað er að húsið
verði tekið í notkun í ársbyrjun
2016. Systurfyrirtækin Alvogen og
Alvotech verða bæði með aðstöðu í
Hátæknisetrinu. Sex líftæknilyf eru
nú í þróun hjá Alvotech í samvinnu
við erlenda samstarfsaðila og fyrstu
lyf fyrirtækisins eru væntanleg á
markað frá árinu 2018, þegar einka-
leyfi þeirra renna út.
Alvogen hefur selt líftæknilyf á
mörkuðum sínum í Mið og Austur
Evrópu í rúm tvö ár og mun selja lyfj
Alvotech þegar þau koma á mark-
að. Alvotech sér um þróun og fram-
leiðslu lyfjanna en Alvogen mark-
aðssetur þau á sínum mörkuðum.
6 fréttir Helgin 8.-10. maí 2015
RISA
LAGER
SALA
BÍLDSHÖFÐA 9
BÍLANAUSTSHÚSIÐ
OPNUNARTÍMI: LAU. 1100–1700, SUN. 1300–1700, MÁN.–FÖS. 1200–1800
EIN STÆRSTA LAGERSALA
FYRR OG SÍÐAR Á ÍSLANDI
EKKI
MISSA AF
ÞESSU!
AÐEINS
Í NOKKRA
DAGA!25TIL
70% AFSLÁTTUR
Leggur grunn að góðum degi – fyrir lifandi heimili –