Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.05.2015, Page 10

Fréttatíminn - 08.05.2015, Page 10
MBA TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA www.mba.is MBA-námið við Háskóla Íslands er tveggja ára meistaranám með vinnu, hugsað fyrir þá sem hafa reynslu af stjórnunarstörfum og vilja auka þekkingu sína og færni í stjórnun og rekstri til að eiga betri möguleika á að takast á við forystuhlutverk í atvinnulífinu. Mikið er lagt upp úr að styrkja nemendur og leggja grunn að starfsframa þeirra. ALÞJÓÐLEG VOTTUN MBA-námið við Háskóla Íslands hefur öðlast alþjóðlega vottun frá Association of MBA's (AMBA) en aðeins um 200 háskólar hafa náð þeim áfanga að undangengnu umfangs- miklu mati á gæðum námsins. Umsóknarfrestur til að sækja um MBA-námið er til 25. maí. PIPA R \TB W A • SÍA • 15 2 2 3 1 KATRÍN M. GUÐJÓNSDÓTTIR MARKAÐSSTJÓRI INNNES MBA 2015 JÓN ÓLAFUR HALLDÓRSSON FORSTJÓRI OLÍS MBA 2012 MARGRÉT HAUKSDÓTTIR FORSTJÓRI ÞJÓÐSKRÁR ÍSLANDS MBA 2010 Þ essir menn eru að veiða svona 2 mílur frá hvala-skoðunarbátunum og ég veit að þeir hafa verið klagaðir fyrir að hanga á línunni og veiða innan hennar. En það gerir engin neitt í því. Þetta er algjörlega út í hött,“ segir Rannveig. Hún segir hrefnum fækka með hverju árinu í flóanum vegna fæðuskorts og ekki hjálpi veiðarnar til. „Þeir hafa veitt um 500 hrefnur frá því að veiðarnar byrjuðu aftur árið 2003. Hafrannsóknarstofnun segir dýrin vera að færa sig ann- að vegna fæðuskorts en þá spyr ég; „Af hverju má skjóta þessi fáu dýr sem eru eftir? Ef þeir verða að veiða, því það er svo þjóðhags- lega hagkvæmt, af hverju fara þeir þá ekki annað?“ IP-útgerð eina fyrirtækið sem stundar hrefnuveiðar „Þrátt fyrir að við byrjum að veiða hér við Faxaflóa þá auð- vitað færum við okkur þangað sem hrefnan er. Við höfum verið að fara út frá bæði Sandgerði og Siglufirði,“ segir Gunnar Berg- mann Jónsson, eigandi IP-útgerð- ar, en það er eina fyrirtækið á Íslandi sem stundar hrefnuveiðar í dag. Gunnar segist stunda veið- arnar langt utan við afmörkuð svæði. „Það er ekki einu sinni hægt að sjá með kíki á milli báta. Faxaflóinn er það stórt svæði að hvalaskoðunin á ekki að finna neitt fyrir okkur.“ Gunnar segir hvalaskoðunar- fólk stunda áróður gegn veið- Baráttan um hvalina Hrefnuveiðimenn munu hefja veiðar á ný í Faxaflóa í næstu viku við lítinn fögnuð hvalaskoðunarfyrir- tækja, en hrefnan er sú tegund sem ber uppi hvalaskoðun í Faxaflóa. Hvala- skoðunarsamtök Íslands furða sig á því að stjórnvöld leyfi veiðar á þessu stærsta hvalaskoð- unarsvæði landsins. Rannveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar, er ekki sátt við veiðarnar og segir bátana veiða innan við griðland hvalanna. Gunnar Bergmann Jónsson, eigandi einu hrefnuveiðiútgerðar landsins, segir vera nóg pláss fyrir báðar atvinnugreinarnar í Faxaflóa. unum sem eigi ekki við rök að styðjast. „Faxaflói er langstærsta griðasvæði hvala við Ísland en í dag eru komin hvalaskoð- unarfyrirtæki nánast í hvert smáþorp á Íslandi. Ef við ætlum að gera griðasvæði alls staðar þá snýst þetta bara um það hvort leyfa eigi hvalveiðar eða ekki. En ef það á að halda veiðunum áfram þá verðum við að fá að vera einhvers staðar.“ Hvar á að draga mörkin Vorið 2013 lýsti þáverandi sjávarútvegs- ráðherra, Steingrímur J.Sigfússon, svæðið frá Garðskagavita að Skóganesi á Snæfells- nesi sérstakt griðasvæði hvala á Faxaflóa en áður höfðu veiðar verið bannaðar innan línu sem dregin var milli Garðskagavita og Akraness. Ákvörðun sína byggði Steingrímur á mati nefndar um stefnumörkun í hvalveiðimálum sem eftir átta mánaða vinnu komst að þeirri niðurstöðu að stækka ætti griðasvæðið í Faxa- flóa. Forsendur þessarar niðurstöðu voru í megin- atriðum þrjár; krafan um sjálfbæra nýtingu auð- linda, að náttúran njóti vafans á meðan að öflun þekkingar fari fram og að lokum ímyndasköpun, en stækkun griðasvæðis hvala í Faxaflóa þótti nefndinni lýsa viðleitni allra hagsmunaaðila til jafnræðis á milli atvinnu- greina. Rúmum tveimur vikum síðar varð það eitt fyrsta verk nýskipaðs sjávarútvegsráðherra, Sigurðar Inga Jóhanns- sonar, að fella úr gildi fyrri ákvörðun um stækkun griðasvæðis hvala á Faxaflóa. Ástæð- una sagði hann vera þá að ákvörðunin hefði ekki verið tekin á málefna- legum forsendum. Að hvorki hefði verið horft til vísindalegra sjónar- miða né hagsmuna hrefnuveiða á svæðinu, en um 80% allra hrefnu- veiða eru stundaðar innan þess svæðið sem með fyrri ákvörðun var bannað að stunda veiðar á. 24 hrefnur veiddar í fyrra Í fyrirspurn Katrínar Jakobs- dóttur til sjávarútvegsráðherra frá því í fyrra spyr hún meðal annars um heildarverðmæti hrefnuveiða það árið og í svari kemur fram að þær upplýsingar liggi ekki fyrir. Í svarinu kemur þó fram að sam- kvæmt upplýsingum frá hrefnu- veiðimönnum sé verðmæti hverrar hrefnu við löndun 1 milljón króna og á síðasta ári hafi verið veidd 24 dýr. 12-15 manns hafa atvinnu af hrefnuveiðum yfir sumartímann. „Verðmætin verða líka til í vinnsl- unni, verslununum, á veitinga- stöðunum og í virðisaukanum á veitingastöðunum. Í fyrra náðum við bara 24 dýrum svo það sum- arið þurftum við að flytja inn kjöt frá Noregi,“ segir Gunnar en allar veiddar hrefnur við Ísland seljast á heimamarkaði og ekkert er flutt út. Það eru þó ekki Íslendingar sem neyta alls þessa kjöts því sam- kvæmt Gallup-könnun frá árinu 2013 borða aðeins 3% Íslendinga reglulega hvalkjöt. Gunnar segist selja kjötið á 100 veitingastaði víðs vegar um landið og að þeirra kúnn- ahópur byggist að mestu leyti á erlendum ferðamönnum. 3% Íslendinga borða reglu- lega hvalkjöt (oftar en 6 sinnum á 12 mánuðum). 75% þjóðarinnar kaupir aldrei hvalkjöt. 82% kvenna neytir aldri hval- kjöts. 86% fólks á aldr- inum 18-24 ára neytir aldrei hvalkjöts. Heimild: Gallup 2013 Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Á kortinu sést hvar hrefnurnar eru veiddar. Grænri blettir sýna staðsetningu veiddra dýra árið 2013. Rauðir blettir sýna staðsetningu veiddra dýra árið 2014. Kortið er unnið af Hvalaskoðunarsamtökum Íslands eftir upp- lýsingum frá sjávarútvegsráðuneytinu. Vorið 2013 lýsti þá- verandi sjávarútvegs- ráðherra, Steingrímur J.Sigfús- son, svæðið frá Garðskagavita að Skóganesi á Snæfellsnesi sérstakt griðasvæði hvala á Faxaflóa en áður höfðu veiðar verið bannaðar innan línu sem dregin var milli Garðskagavita og Akraness. Rúmum tveimur vikum síðar varð það eitt fyrsta verk nýskipaðs sjávarútvegsráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar, að fella úr gildi fyrri ákvörðun um stækkun griðasvæðis hvala á Faxaflóa. 80% allra hrefnuveiða eru stundaðar innan þess svæðis sem með fyrri ákvörðun var bannað að stunda veiðar á. Segir pólitík á bak við allar ákvarðanir Rannveig segir engin rök geta stutt veiðarnar í Faxaflóa. „Við erum að fá sömu tekjur og af einni skotinni hrefnu í einni hvalaskoðunarferð. Við náum árstekjum þeirra á svona 4 dögum og svo skapar hvalaskoðunin mun fleiri störf. Þar að auki getum við sýnt hrefnuna aftur og aftur á meðan að sú sem er veidd er bara étin einu sinni,“ segir Rannveig og bætir því við að hraður uppgangur og gott gengi hvalaskoðunar á Íslandi sé ekki síst mikilli vinnu við markaðssetningu erlendis að þakka. Hún sé að skila sér margfalt þrátt fyrir það slæma orð sem Ísland hafi á sér vegna hvalveiða. „Það halda því engin rök að enn sé verið að veiða í flóanum og eina ástæðan fyrir því að þessir menn fá að veiða er sú að Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, á þetta hrefnuveiðifyrirtæki með syni sínum, Gunnari Bergmann. Sigurður Ingi sjávarútvegsráðherra hefur aldrei viljað tala við hvala- skoðunarsamtökin og sýnir hvala- skoðun akkúrat engan skilning. Þessir menn eru allir góðir vinir og passa upp á hver annan.“ 200.000 ferðamenn í hvala- skoðun í fyrra Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem skapar okkur mestar gjaldeyr- istekjur og hvalaskoðun er hennar helsti vaxtarsproti. Á síðasta ári fóru alls 200.000 ferðamenn í hvala- skoðun á Íslandi, 57% þeirra voru á Faxaflóa. Áætlaðar tekjur af miða- sölunni sama ár voru 1,5 milljarður en afleiddar tekjur voru 2,4 millj- arðar. „Okkur finnst það furðulegt að hrefnuveiðimenn fái að hefja veiðar á ný í Faxaflóa,“ segir María Björk Gunnarsdóttir, verkefnis- stjóri hjá Hvalaskoðunarsamtökum Íslands. „Umfang hvalaskoðunar og þjóðhagslegt mikilvægi hefur aukist á undanförnum árum og það er sorglegt að vita af þessari ógn við atvinnugreinina hér í Faxaflóa. Ábyrg hvalaskoðun byggir á þeirri grundvallarhugsjón að nýta megi auðlindina aftur og aftur, en það sama verður ekki sagt um hvalveið- ar því skotinn hvalur verður hvorki skoðaður né skotinn aftur.“ Framkvæmdastjóri Eldingar segir hvalveiðimenn veiða hrefnur á griðarsvæði hvalanna en Gunnar Bergmann, eigandi einu hrefnuveiðiútgerðar landsins, segist stunda veiðarnar langt utan við griðarsvæðið. 10 fréttaskýring Helgin 8.-10. maí 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.