Fréttatíminn - 08.05.2015, Page 12
F
Fari allt á versta veg verður íslenskt samfé-
lag í uppnámi vegna átaka á vinnumarkaði
um næstu mánaðamót. Verkfall nokkurra
stétta háskólamenntaðra starfsmanna hjá
ríkinu hefur þegar staðið í mánuð og afleið-
ingar þess sjást vitaskuld, hvort heldur er í
heilbrigðiskerfinu, hjá sýslumannsembætt-
inu á höfuðborgarsvæðinu eða á ferskvöru-
markaði matvöruverslana. Skæruverkföll
Starfsgreinasambandsins standa yfir og
enda í allsherjarverkfalli 26.
maí, takist samningar ekki
fyrir þann tíma. Þessi verk-
föll hafa mikil áhrif á lands-
byggðinni, í ferðaþjónustu,
fisk- og kjötvinnslu, ræsting-
um, iðnaði og byggingariðn-
aði og fólksflutningum.
Stór stéttarfélög bætast að
óbreyttu í verkfallsröðina en
fé lags menn í VR, aðild ar fé lög-
um Lands sam bands íslenskra
verzl un ar manna og Flóa banda-
lags ins hafa boðað til at kvæðagreiðslu um
verk föll og verði þau samþykkt hefjast að-
gerðir 28. maí. Hjúkrunarfræðingar greiða
atkvæði um boðun verkfalls hjá ríkinu 27.
maí og þarf ekki að fjölyrða um áhrif verk-
falls þeirra á heilbrigðiskerfið sem þegar
höktir vegna verkfalls geislafræðinga, líf-
eindafræðinga, náttúrufræðinga og ljós-
mæðra á Landspítalanum – sem fylgir í
kjölfar læknaverkfalls í vetur. Forseti Al-
þýðusambands Íslands hvatti til þess í 1.
maí ávarpi að afl aðildarfélaga sambandsins
yrði sameinað undir einum fána 110 þúsund
félagsmanna til þess að hámarka þrýsting-
inn og herkostnað atvinnurekenda. Ástæður
átakanna nú rakti forseti ASÍ til kjarasamn-
inga sem ríki og sveitarfélög gerðu við kenn-
ara og háskólamenn í kjölfar samninga ASÍ
og BSRB í fyrravetur og samninga ríkisins
við lækna í byrjun þessa árs.
Það kom á daginn, sem margir óttuðust, að
fyrrgreindir samningar, einkum læknasamn-
ingarnir, yrðu fordæmi kröfugerðar annarra,
jafnvel þótt talað væri um að þá þyrfti að taka
út fyrir sviga. Óumdeilt er að ríkið var kné-
sett í þeirri deilu – en viðurkenna verður að
fátt er til varna þegar stétt eins og læknar
beitir öllu afli í kjarabaráttu. Sama mun
gilda um hjúkrunarfræðinga, komi til verk-
falls þeirrar mikilvægu heilbrigðisstéttar. Öll
störf í samfélaginu eru mikilvæg og verkfall
hvar sem er hefur röskun í för með sér, en
fátt er erfiðara viðureignar en það sem varðar
líf og heilsu fólks.
Síðustu almennu kjarasamningar voru
á hófsömum nótum og fyrir liggur að þeir
skiluðu launþegum meiri kaupmætti á liðnu
ári en dæmi eru um. Í kjölfarið er verðbólga
lægri en um áratugaskeið og vextir lægri.
Stöðugleiki komst á sem skilar sér jafnt til
launþega og fyrirtækja.
Svigrúm er til kjarabóta og það ber að nýta.
Koma þarf til móts við þá sem vinna á lægstu
töxtum. Fólk verður að geta framfleytt sér af
vinnulaunum. Aðrar kröfur í yfirstandandi
kjaradeilum virðast þó vera utan þess svig-
rúms sem fyrir er. Það gagnast engum að
knúnar séu fram óraunhæfar hækkanir allra,
jafnvel svo nemur tugum prósenta. Innistæða
verður að vera fyrir hendi. Allir deiluaðilar
ráða yfir hagdeildum og sérfræðingum sem
geta reiknað út hvert svigrúm er til kjara-
bóta, miðað við fyrirliggjandi hagtölur. Verði
í hita leiksins litið fram hjá þessu blasir við
að kjaraskerðing verður knúin fram með afli
– svo jafna megi hlutfall milli stétta, það er
að segja ná til baka kjarabótum af kennurum
og læknum. Allir standa þá verr að vígi en
áður. Sætt er sameiginlegt skipbrot, segir
máltækið.
Fari sem horfir bíður samfélagsskaði. Ekki
þarf að fjölyrða um haltrandi heilbrigðiskerfi.
Ferðaþjónustan er viðkvæm fyrir verkföllum
en háönn hennar er fram undan. Sú grein
hefur dregið hefur vagninn undanfarin ár
hvað varðar bættan þjóðarhag. Önnur burð-
argrein, sjávarútvegur, stendur frammi fyrir
milljarðatjóni vegna verkfalls hjá Matvæla-
stofnun.
Kallað er eftir raunsæi og ábyrgð, að for-
ystumenn launþega, fyrirtækja og ríkis-
valds setjist sameiginlega að borði og nái
ásættanlegri niðurstöðu. Minnast má, í því
sambandi, afleiðinga sólstöðusamninganna
svokölluðu, árið 1977. Íslenskt samfélag var
hálfan annan áratug að jafna sig á afleiðing-
um þeirra æsilegu verðbólgusamninga.
Afli beitt til að knýja fram kjaraskerðingu
Sætt er sameiginlegt skipbrot
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR • SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
FamilyCamp er íslenskur tjaldvagn sem er hannaður og
smíðaður til að standast íslenskar aðstæður. Kassinn á
FamilyCamp er smíðaður úr trefjaplasti með 15 mm
einangrun í hliðum og 10 mm í loki. Undir rúmi er geymsla og
hægt er að lyfta rúmbotni upp til að komast í hana en geymslan
virkar einnig sem einangrun undir rúmi. Seglið er saumað úr
100% bómull sem gerir FamilyCamp einstaklega
hlýjan og notalegan. FamilyCamp er með svefnpláss fyrir fjóra
í tveimur herbergjum. FamilyCamp er léttur aðeins 310 kg. en
með burðargetu upp á 240 kg. hann er á galvaniseraðri grind
með AL-KO flexitorum og 13” felgum. Það tekur ekki nema
örfáar mínútur að reisa vagninn og setja upp fortjaldið.
Verð kr. 1.470.000,- með fortjaldi.
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
12 viðhorf Helgin 8.-10. maí 2015