Fréttatíminn - 08.05.2015, Qupperneq 26
LEIKTÆKIN FÆRÐU
Í KRUMMA
KRUMMA RÓLUR
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS
FRÁ
122.900kr
FRÁ
106.800kr
BERG TRAMPÓLÍN
WINTHER HJÓL
FRÁ
21.680kr
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
J
apan er mjög skrítið
land á jákvæðan hátt.
Það er svo allt öðruvísi
en ég bjóst við. Landið
er svo lítið mengað af
vestrænni menningu og það er
svo rosalega mikið af fólki þarna!
Það var eiginlega dálítið yfirþyrm-
andi,“ segir tónlistarkonan Sóley
sem er nýkomin úr sinni fyrstu
ferð til Japan. Sóley gefur „Ask the
Deep“, sína aðra sóló plötu, út í dag
og eru því næstu mánuðir fullbók-
aðir í ferðalög. Japansferðin var
þó einskonar útúrdúr og tilheyrir
ekki tónleikaferð nýju plötunnar.
„Ég fór með Sindra úr „Sin Fang“
en við vorum saman í hljómsveit-
inni Seabear og erum gamlir vinir.
Við spiluðum í Kyoto, Nagoya og
Tokyo og það var bara ótrúlega
góð stemning. Ísland er voða
vinsælt hjá Japönum og margir
sem ég talaði við voru til dæmis
búnir að fara þrisvar á Airwaves.
Japanir eru mjög þakklátir fyrir
tónlist og sýndu okkur mikið þakk-
læti fyrir að hafa komið. Þó það búi
þarna fullt af fólki þá kom það mér
á óvart að það var fullt á öllum tón-
leikunum hjá okkur og samt vor-
um við að koma í fyrsta skiptið.“
Léleg í að auglýsa sig
Sóley, sem býr í Norðurmýrinni í
Reykjavík en segist stefna á að fara
bráðlega aftur á æskuslóðirnar
í Hafnarfirði, lærði píanóleik og
tónsmíðar í Listaháskóla Íslands.
Hún byrjaði tónlistarferil sinn með
hljómsveitinni Seabear árið 2006
en gaf út sína fyrstu smáskífu,
„Theater Island“, árið 2010. Ári
síðar gaf hún út sína fyrstu plötu,
„We Sink“, sem fékk glimrandi
góða dóma jafnt hérlendis sem
erlendis. Það er samt óhætt að
segja að platan vakti meiri athygli
erlendis en hérlendis. „Já, ég veit
ekki alveg hvernig þetta gerðist.
En það er dálítið fyndið að þegar
ég held tónleika á Íslandi þá mæta
aðallega útlendingar. Ég spilaði í
febrúar á Húrra og þá mættu víst
10 Íslendingar og 200 útlendingar.
Mér finnst reyndar aðallega rosa-
legt að það skuli vera svona margir
útlendingar á Íslandi. En ég held
í alvöru að Íslendingar viti bara
ekkert hver ég er, ég er allavega
ekki heimsfræg hér,“ segir Sóley
og hlær.
„Ég er líka sérstaklega léleg í
að senda upplýsingar í blöðin, um
að ég sé á leið út eða að ég sé að
eignast barn eða að fá mér kaffi.
Það skiptir alveg máli að vera
duglegur í svoleiðis ef maður vill
vera þekktur. En mér finnst þetta
fínt svona, ég fer bara út og spila
fyrir útlendingana,“ segir Sóley og
bætir því við að það að spila fyrir
erlendan markað þýði auðvitað
meiri líkur á að geta lifað af listinni
og það hafi hún blessunarlega
getað gert síðust ár.
Enginn milljónamæringur
Fá íslensk lög hafa fengið jafn
mikla hlustun á You-tube og lagið
„Pretty face“ af fyrstu plötu Sól-
eyjar. Í dag er það með næstum 19
milljón áhorf og margir hafa velt
því fyrir sér hvort Sóley hljóti ekki
örugglega að vera orðin milljóna-
mæringur í kjölfarið.
„Nei, alls ekki, segir Sóley og
hlær. „Þetta var allt saman mjög
fyndið, ég vissi ekki einu sinni af
þessu á You-tube fyrr en lagið var
komið með nokkur milljón áhorf.
Það var einhver Þjóðverji sem setti
lagið þarna inn og það er þarna
ennþá á hans nafni. En svo hafði
útgáfufyrirtækið mitt samband við
hann og í dag fæ ég einhver pínku-
Sóley semur
og tekur allt
upp sjálf, nema
trommur sem
hún segist
ekkert kunna á.
Trommarinn Jón
Óskar Jónsson
og gítarleikarinn
Albert Finn-
bogason fylgja
henni á tónleika-
ferðalögum.
Það er þýska
útgáfufyrirtækið
Morr Music gefur
Sóleyju út.
ponsu stefgjöld af þessum spil-
unum. Ég held að það þurfi að vera
þarna auglýsingar til að listamað-
urinn græði meira en er samt ekki
viss því þetta er svo fáránlega flók-
ið dæmi að ég skil það varla sjálf
þó ég hefi reynt að lesa mér til um
þetta. Eitt er þó víst og það er að
aðal innkoman fer svo sannarlega
ekki til tónlistarmannsins,“ segir
Sóley sem er þó, kannski að hluta
til vegna alls þessa, með ótrúlega
sterkan aðdáendahóp á netinu.
„Það góða við svona You-tube
áhorf er að fólk kynnist tónlistinni
manns og fer kannski að skoða
fleiri lög, finnur mann á facebook
eða twitter og svo koll af kolli. Svo
kemur fólk kannski á tónleika eða
kaupir af mér plötu. En það er í
raun ótrúlega merkilegt að svona
gerist bara út frá einu lagi. Og svo
er þetta allt dálítið fyndið því pers-
ónulega finnst mér þetta ekkert
svo skemmtilegt, ég hefði allavega
valið annað,“ segir Sóley og hlær
að þessu öllu saman.
Stundum erfitt að vera túrandi
mamma
„Plötusala fer dvínandi með hverju
ári en síðasta platan mín er samt
alveg að seljast eitthvað ennþá í
búðum eins og Smekkleysu, aðal-
lega af túristum hafa þau sagt
mér. Vínillinn er líka kominn í
þriðju endurprentun svo þetta
mjakast út. En helsta tekjulind
tónlistarfólks í dag held ég að sé
af tónleikahaldi. Þar selur maður
líka plötur ef maður nennir að fara
fram eftir tónleika, en það er mis-
jafnt eftir löndum. Mér gengur
sérstaklega vel í Þýskalandi þar
sem útgáfufyrirtækið mitt er
og mér finnst líta alveg yndis-
legt að spila þar, segir Sóley
sem er á leið þangað og til Pól-
lands þar sem nú þegar er uppselt
á flesta tónleika. Í framhaldinu fer
hún svo til helstu borga Evrópu en
svo stefnir hún á að spila mikið á
Íslandi í sumar. Eftir sumarið fer
hún svo aftur á flakk því hún er
bókuð víðsvegar um heiminn fram
að jólum.
Fyrir utan að vera á fullu við að
kynna nýju plötuna er Sóley líka á
fullu við að kynnast rúmlega eins
árs gamalli dóttur sinni og móður-
hlutverkinu. „Þetta gengur ótrú-
lega vel. Reyndar er stundum al-
veg ömurlegt að vera úti því hún er
ennþá svo lítil og svo er hún voða-
leg mömmustelpa. Hún var bara
að hætta á brjósti núna eftir að
ég kom frá Japan. Ég fór til Ástr-
alíu að spila þegar hún var aðeins
yngri og var þá bara að pumpa mig
á fullu til að reyna að halda í mjólk-
ina og svo tók hún sem betur fer
aftur brjóstið þegar ég kom heim.
Ég var ekki alveg tilbúin til að
sleppa henni frá brjóstinu, ég var
svo ákveðin í að þessi tónleikaferð
yrði ekki til þess að barnið hætti á
brjósti,“ segir Sóley og hlær.„ En
hún kemur með mér í næstu ferð
því mamma kemst með okkur, svo
það er frábært. Áður fyrr hugsaði
ég mikið um það hvernig ég myndi
fara að ef ég ætti barn, hvort ég
yrði ekki bara að hætta að spila og
hætta að túra, en svo er þetta bara
vinnan mín og maður harkar þetta
af sér.“
Platan unnin á erfiðum tíma
Sóley segir nýju plötuna sína vera
mjög persónulega. Hún hafi verið
unnin á erfiðu tímabili í lífi hennar
og það endurspeglist í einhverj-
um laganna. „Það er langt síðan
síðasta platan mín kom út en ég
byrjaði að vinna þessa plötu stuttu
síðar og vann mikið í henni árið
2012, en það var svolítið mikið
„hard-core“ ár fyrir mig. Það gerð-
ist dálítið mikið af frekar hræði-
legum hlutum þetta ár sem ég er
aðeins að vinna úr í tónlistinni,“
segir Sóley sem vill ekki útlista
þessa erfiðleika frekar.
„Stuttu síðar varð ég svo ólétt,
alveg óvænt, og það var líka dálítið
erfitt andlega. Ég var að takast á
við mikið af tilfinningum og var því
frekar kvíðin og hrædd alla með-
gönguna. En svo var auðvitað allt í
lagi eftir að ég fæddi hrausta stelpu.
En platan fjallar á köflum um
það hvað hugur manns getur auð-
veldlega fokkað upp í öllu. Sumt í
textanum er undir áhrifum frá öllu
þessu. En svo finnst mér gaman
að því að platan skuli heita „Ask
the deep“. Fyrst átti hún að fjalla
mikið um hafið og hversu stórt og
óhugnanlegt það getur verið, en
svo á endanum var ég ekki að fjalla
um djúpan sjó heldur hversu djúpt
við getum farið í hugsanir okkar,“
segir Sóley sem finnst frekar
skrítið að í dag skuli öllu þessu
persónulega efni verða deilt með
þeim sem vilja hlusta. „Það er
mjög skrítin tilfinning en líka
samt svo æðisleg því það eru
allar tilfinningarnar þarna.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
26 viðtal Helgin 8.-10. maí 2015