Fréttatíminn - 08.05.2015, Síða 30
Tónlistarbærinn Kópavogur
K ópavogur fagnar um helgina 60 ára afmæli. Þetta næst stærsta bæjarfélag landsins
hefur á undanförnum áratugum alið
ungmenni sín á íþróttaiðkun og tón-
listarnámi og fjöldinn allur af helstu
listamönnum þjóðarinnar sleit barns-
skónum í Kópavogi. Er þá hlutur
Þórunnar Björnsdóttur, stofnanda
Skólakór Kársness, og Björns Guð-
jónssonar, stofnanda Skólahljóm-
sveitar Kópavogs, stærstur í blóm-
legu listastarfi bæjarins undanfarna
áratugi. Hvort sem það er pönk, popp,
þungarokk, djass eða klassík, þá hafa
listamenn úr Kópavogi sett lit sinn
á tónlistarlíf þjóðarinnar. Hér eru
nokkur dæmi þekktra listamanna og
hljómsveita úr Kópavogi. Listinn yrði
enn lengri ef þeir listamenn sem búið
hafa í bænum til langs tíma eru teknir
inn í dæmið, en meðal þeirra eru þau
Stefán Hilmarsson, Eyþór Ingi, Sigga
Beinteins og Björn Thoroddsen, svo
einhverjir eru nefndir. Á sunnudag-
inn býður Kópavogur til mikillar
veislu í Kórnum. Allir sem koma þar
fram eru úr, eða búa í Kópavogi.
Kópavogur
er eins og
Liverpool
„Kópavogur er eins
og Liverpool,“ segir
Erpur Eyvindarson,
Blaz Roca, sem alinn er
upp á Kársnesinu. „Við
þurftum bara að gera
eitthvað, þurftum að
djöflast og þess vegna
voru allir inni í skúr að
skapa. Það var engin
veisla í íþróttamálum
í Kópavogi hér áður
fyrr, ekki eins og í dag.
Fyrir utan kvenna-
knattspyrnuna, og
einhverjar nokkrar
hræður sem fóru í
eitthver sprikl. Þess
vegna fóru bara allir að
búa til músík í staðinn,“
segir Erpur. „Bærinn
er byggður upp af því
fólki sem ekki fékk
lóðir í Reykjavík. Þeir
sem fengu ekki lóðir í
Reykjavík voru vinstri-
menn, geðsjúklingar
eða alkóhólistar. Þetta
fólk fór í Kópavoginn
og þess vegna er þetta
besta bæjarfélag í
heimi, með hjarta
bæjarins í Hamraborg,“
segir Erpur. „Við látum
okkur ekki leiðast.
Við þurfum bara einn
streng í gítarinn og þá
er komið partí,“ segir
Erpur, Blaz Roca.
Fræbbblarnir
Margir segja að íslenskt
pönk hafi fæðst í Hamra-
borg.
Ríó Tríó
Hinir stórskemmtilegu drengir sem aldrei eldast ólust
upp og byrjuðu sinn tónlistarferil í Kópavogi.
Bogomil Font
Sigtryggur Baldursson
Sykurmoli er Kópavogsbúi í
húð og hár. Móeiður
Júníusdóttir
Móa þótt vera með
einstakan stíl og var vel
eftir henni tekið, hvar
sem hún kom fram.
Bræður hennar, þeir
Guðlaugur og Krist-
inn, fóru einnig
fyrir Kópavogs-
sveitunum
Tjalz Gissur
og Vínyll
á sínum
tíma.
Emilíana Torrini
Frægasta dóttir Kópavogs.
Flutt heim, og að sjálfsögðu
á sínar gömlu slóðir.
Guðrún
Gunnarsdóttir
Poppsöngkonan og útvarps-
konan ólst upp í Kópavogi og
býr þar enn.
Sigfús
Halldórsson
Einn dáðasti lagahöfundur
þjóðarinnar setti svip sinn
á bæinn. Eftir Sigfús liggja
margar af helstu dægur-
perlum þjóðarinnar.
S/H Draumur
Dr. Gunni og hans tríó var
leiðandi í pönkvæddu ný-
bylgjurokki í upphafi níunda
áratugarins.
Gissur Páll
Tenórinn ljúfi sem ólst upp
á Kársnesinu. Ásgeir
Ásgeirsson
Einn fremsti djassgítarleikari
landins um þessar mundir.
Erpur/Blaz Roca
Erp þarf ekki að kynna fyrir
neinum. Harðari talsmann
Hamraborgarinnar er vart
hægt að finna.
Tvær Kópavogssveitir
hafa unnið Músíktil-
raunir. Soðin fiðla árið
1997 og Búdrýgindi
árið 2002
Skólakór Kópavogs hefur verið í fram-
varðarsveit íslenskra barnakóra í tæp
40 ár. Stjórnandi og stofnandi kórsins er
Þórunn Björnsdóttir.
Skólahljómsveit Kópavogs fagnar
50 ára afmæli árið 2017. Stjórn-
andi hennar er Össur Geirsson.
Dead Sea Apple
Ein fremsta gruggsveit lands-
ins á sínum tíma. Miklar vonir
bundnar við útlönd á tíunda
áratugnum.
Strigaskór nr. 42
Þegar dauðarokkið reið yfir voru Strigaskórnir
fremstir meðal jafningja, og svo er enn.
Salka Sól
Ein skærasta
stjarna ungu
kynslóðar-
innar.
Síðumúla 21 | S: 537-5101 | Snuran.is
Opið virka daga 11-18 og laugardaga 12-16
Mæðradagurinn er á sunnudaginn
Súkkulaði frá Hafliða í Mosfellsbakaríi fylgir með
ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira
30 úttekt Helgin 8.-10. maí 2015