Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 36
Frá Alla til Kalla
H
Hvaða foreldri þekkir ekki suð
barna sinna um dýr, sætan kett-
ling eða hvolp? Það getur verið
erfitt að standast slíkar óskir
enda eru kettlingar og hvolpar
afar krúttleg kvikindi. Vandinn er
hins vegar sá að dýrin stækka og
ekki er á vísan að róa með áhuga
barnanna á rummungshundi eða
ketti sem fer sínar eigin leiðir. Um-
sjónin lendir því oftar en ekki á
foreldrunum.
Við hjónakornin stóðum frammi
fyrir þessu á sinni tíð, líkt og aðr-
ir barnauppalendur, en stóðumst
þrýstinginn. Því héldum við hvorki
hund né kött. Ég var alla tíð harð-
ur á þessu enda nennti ég ekki að
taka þátt í slíku. Þó hafði ég góða
reynslu af umgengni við hunda og
kött þegar ég var strákur í sveit. Þar
bar ég samt enga ábyrgð á dýrun-
um, þau voru bara leikfélagar þegar
þannig stóð á en annars vinnudýr,
að minnsta kosti smalahundarnir.
Auðvitað má líta á málið frá öðru
sjónarhorni, að það sé hollt börnum
að alast upp með dýrum og læra að
umgangast þau. Foreldrar verði því
að leggja á sig þá vinnu og ábyrgð
sem dýrahaldinu fylgir. Við gerðum
það ekki, með undantekningum þó.
Á einhverju suðtímabilinu létum við
það eftir yngri syni okkar og eldri
dóttur að eignast páfagauka. Þau
fengu gauka og sitt hvort búrið –
og bar að sjá um fuglana. Það gekk
svona og svona og fuglahaldinu
lauk þegar strákurinn hafði stungið
matarkexi inn um rimlana um hríð
í stað korns. Þá gáfum við fuglana
á betra heimili – og mátti ekki á
milli sjá hvor málsaðila var glaðari,
foreldrarnir eða fuglaeigendurnir.
Síðar eignaðist sama dóttir okkar
hamstur, albínóa með bleik augu.
Það var einkar hvimleiður einstak-
lingur, svo ekki sé meira sagt, djöfl-
aðist allar nætur í búri sínu á þartil-
gerðu hjóli enda ku hamstar vera
næturdýr, jafnt bleikir sem brúnir.
Verst var þegar hamsturinn, sem
gegndi nafninu Alli albínói, slapp úr
búri sínu og hélt um hríð til í snúru-
flækju undir sjónvarpinu. Þá hét ég
því að dýrahaldi lyki á þessu Kópa-
vogsheimili og við það var staðið.
Yngri dóttir okkar þráði, ekki
síður en eldri systkinin, að eignast
dýr, helst hvolp sem héldist í því
formi fram á fullorðinsár. Ég var
eftirlátssamur við yngsta barnið,
það viðurkenni ég, en stóðst samt
dýrapressuna, jafnvel þótt horft
væri á mig stórum sannfærandi
barnsaugum. Málið leysti ég með
því að kaupa handa henni tuskudýr
í hvert sinn er dýraþráin kom upp í
henni. Mér er til efs að önnur börn á
hennar reki hafi átt fleiri tuskukvik-
indi. Enn er ég að rekast á þau hér
og þar, einkum í sumarbústaðnum
sem er endastöð fyrir margt gamalt
og gott.
Það er því forvitnilegt að fylgjast
með börnum okkar, sem nú eru full-
orðið fólk, með sín börn sem suða í
þeim um dýr. Yngri sonur okkar,
fyrrum páfagaukseigandi, virðist
lítið spenntari fyrir dýrahaldi en
faðir hans var á sínum tíma – og
verst því sem má. Þó létu þau hjón
undan þrábeiðni barna sinna fyrir
skemmstu og keyptu fiskabúr. Það
var fyllt af vatni og gerviplöntum og
síðan trommað í bæinn og keyptir
tveir fiskar. Þeir voru á lífi síðast
þegar ég frétti. Fiskar í búri eru
sniðug lausn fyrir foreldra. Það þarf
tiltölulega lítið fyrir þeim að hafa,
þeir þurfa ekki pössun nema ef fjar-
vistir verða langar og það þarf ekki
að fara með þá út að ganga.
Börn eldri sonar okkar og konu
hans hafa líka suðað um dýr. For-
eldrarnir hafa komið sér fimlega
undan og reikna ég með því að
minn ágæti sonur hafi lært talsvert
af föður sínum á æskudögum og
það komi sér vel nú. Ýmislegt getur
þó gerst og börn eru hugmyndarík,
ef þau ætla sér eitthvað. Tólf ára
sonur þeirra sá að við svo búið mátti
ekki standa og gerði bandalag við
tíu ára gamla systur sína – án þess
að fullorðnir á því heimili kæmu
að málinu, enda hafa þau systkin
án efa gert sér grein fyrir því að
á brattann yrði að sækja ef fá ætti
samþykki við ráðabrugginu. Strák-
urinn gerði sem sagt út leiðangur í
Elliðaárdalinn með félögum sínum,
vopnaður kassa til að veiða kanínu.
Eftir þriggja tíma smölun í dalnum
tókst guttunum að lokka eina í kass-
ann. Þeir þrömmuðu því með feng
sinn heim á leið. Minn maður, elsta
barnabarn okkar, vildi hefja kan-
ínubúskap í garði foreldra sinna, án
þess að láta þá vita. Kanínan fékk
næturvist í herberginu hans fyrstu
nóttina. Það er virðingarvert fram-
tak, að mati ábyrgðarlauss afans.
Hún fékk eina gulrót þessa fyrstu
gistinótt.
Systirin var gerð að hluthafa í
kanínubúinu, með því stranga skil-
yrði að hún léti hvorki mömmu né
pabba vita. Hún fékk jafnframt það
hlutverk að gera villikanínuna hús-
vana. Hvað gerir tíu ára nútíma-
stúlka við þær aðstæður, hafandi
lært sitt af hverju um hreinlæti og
snyrtimennsku? Jú, hún setur kan-
ínuna í sturtu og þvær með sjampói.
Ekki fer sögum af því hvernig kan-
ínan úr Elliðaárdalnum tók sturtu-
baðinu en hitt liggur fyrir að báðum
brá, móður og dóttur, með tilheyr-
andi ópum, þegar baðherbergisvist
þeirrar yngri þótti hafa dregist úr
hömlu. Mamman opnaði dyrnar til
þess að kanna hvort ekki væri allt
í lagi en hrökklaðist til baka þegar
hún kíkti inn. Þar sat stelpan flötum
beinum á baðhergisgólfinu og beitti
hárþurrku móður sinnar af kúnst
á hráblautan feld villikanínu úr El-
liðaárdal.
Kexgaukarnir voru ekkert mál á
sínum tíma og jafnvel leiðindagaur-
inn Alli albínói, blessuð sé minn-
ing hans, stenst engan samanburð
við þessar stórkostlegu framfarir í
dýrahaldi milli kynslóðanna, sjálfri
heimkomu Kalla kanínu.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
36 viðhorf Helgin 8.-10. maí 2015
www.gaman.is / gaman@gaman.is / Gaman Ferðir fljúga með WOW air
saman!
Gaman
Innifalið í verðinu er flug til Prag, gisting
í 3 nætur miðað við 2 saman í herbergi,
morgunmatur, ferðir til og frá flugvelli,
ferðir til og frá golfvöllum og þrír golfhringir.
Golerð til Prag
11. - 14. júní
139.900 kr.Frá:
Innifalið í verðinu er flug til London, gisting
í 2 nætur, morgunmatur og Club Wembley-
miði á úrslitaleikinn. Við eigum líka nokkur
sæti eftir í fótboltaferðina á Holland – Ísland
í september.
FA Cup Final
29. - 31. maí í London
219.900 kr.
með Gaman Ferðum
Innifalið í verðinu er flug til Prag, taska báðar
leiðir og gisting í 3 nætur á Mooo Apartments
á frábærum stað í miðbænum miðað við
2 saman í herbergi.
Helgarferð til Prag
11. - 14. júní
Frá: 79.900 kr.
Frá:
Innifalið í verðinu er flug til London, gisting í
2 nætur, morgunmatur og VIP-miði á tónleika
Madonnu. Við erum einnig með í boði
tónleikaferðir á Fleetwood Mac, AC/DC,
One Direction og U2.
Madonna í London
1. - 3. desember
129.900 kr.Frá: