Fréttatíminn - 08.05.2015, Page 37
S tarf aðstoðarökumanns í ralli er skrítið djobb. Lesa tölur um beygjur á meðan ökumaður-
inn keyrir eins hratt og mögulegt er
og jafnvel aðeins hraðar á köflum.
Það var því slegið til þegar bauðst að
prófa heita sætið í sérútbúnum Opel
eyðimerkurrallbíl á dögunum. Tveir
hringir á slóða í Jósepsdalnum þar
sem keyrt var á rétt rúmlega fullu
gasi undir styrkri stjórn hins ung-
verska Balázs Szalay, þaulreynds ral-
lökumanns sem keppt hefur lengur
í hinu heimsfræga París-Dakar ralli
en við mannfólkið höfum putta til
að telja. Sem betur fer þurfti farþeg-
inn að þessu sinni ekki að lesa upp
neinar tölur á meðan bununni stóð.
En um leið og maginn snéri rétt var
hægt að hugsa um hversu erfitt er að
lesa staf þegar allt hristist og skelfur
eins og jörðin sé að farast.
Það er Bílabúð Benna sem fékk
rallbílinn hingað á Frón og hægt
verður að skoða gripinn, og vænt-
anlega Balázs sjálfan ásamt öllu
öðru sem hugur bílaáhugamanns-
ins girnist, á bílasýningu Bílgreina-
sambandsins „Allt á hjólum“ sem
fram fer í Fífunni í Kópavogi nú um
helgina.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Fyrirmynd Búra er hinn danski Havartí-rjómaostur sem
athafnakonan Hanne Nielsen þróaði um miðja nítjándu öld
á býli sínu „Havarthigaard“ fyrir norðan Kaupmannahöfn.
Framleiðsla á Búra hófst árið 1980 á Húsavík en í
dag fer framleiðslan fram á Akureyri. Mjúkur og
smjörkenndur ostur með votti af ávaxtasætu, ljúfum
sítrustóni í lokin og langvarandi eftirbragði. Rjómakennd
einkenni ostins parast vel með sætum, örlítið sýrðum
ávöxtum, berjum og kryddsultum.
BÚRI
LJÚFUR
www.odalsostar.is
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Flott hönnun
– frískt og glaðlegt útlit
Verið velk
omin í ve
rslun RV
og sjáið ú
rvalið af
glæsilegu
m
hágæða p
ostulínsbo
rðbúnaði.
Rallrúntur um
Jósepsdalinn með
viðkomu í Fífunni
Hægt verður að skoða þennan Opel rallbíl á bílasýningu Bílgreinasambandsins í Fífunni í Kópavogi um helgina. Ljósmynd/Hari
Slegið í fákinn í Jósepsdal. Ekið á rétt rúmlega fullu gasi.
Helgin 8.-10. maí 2015 bílar 37