Fréttatíminn - 08.05.2015, Page 40
þurfa þetta úrræði oftar en aðrir og
hefur það gefist vel.
Það stendur heldur ekki á svörum
þegar ég spyr yfir hópinn hvernig
fjölgreinadeildin sé öðruvísi en
þeirra gamli skóli: „Við fáum miklu
meiri aðstoð og eigum meiri sam-
skipti við kennarana og kynnumst
þeim betur. Þegar mann vantar
hjálp kemur kennarinn og fer vel
yfir allt með manni þangað til mað-
ur er kominn með það á hreint í
staðinn fyrir að fara bara strax áður
en maður er búinn að skilja.“
Þetta hljómar eins og þeim finnist
fjölgreinadeildin vera betri og þegar
ég spyr þá beint út svara þeir í ein-
um rómi: „Já!“ Og þeir segja líka að
þeim líði betur þar en í gamla skól-
anum sínum og fá betri einkunnir.
„Ég var alltaf með meðaleinkunn í
kring um 3 í gamla skólanum mín-
um en í fyrra var ég með 8,5 í með-
aleinkunn,“ segir einn þeirra, eðli-
lega stoltur af sjálfum sér. Áherslan
á verklegu greinarnar skilar sér
þarna greinilega enda hefðbund-
ið bóknám ekki fyrir alla. Þessir
drengir hafa líka búið til sín eigin
hjólabretti frá grunni, hannað þau,
sagað, smíðað, málað og fest hjólin
á. Sumir þeirra ætla þó ekki einu
sinni að nota þau heldur vilja hafa
þau uppi á hillu til skrauts.
Önnur úrræði, sem svipar til
fjölgreinadeildar, eru ekki mörg á
landinu. Brúarskóli heldur úti skóla-
starfi sem líkist því sem deildin
hefur upp á að bjóða. Eins má nefna
nýlegt úrræði í Hlíðarskóla á Akur-
eyri þar sem boðið er upp á þjón-
ustu sem svipar til þess sem deildin
býður upp á. Christanskolen í Fre-
deriksberg í Kaupmannahöfn hefur
verið vinaskóli deildarinnar síðustu
ár og hafa stjórnendur, starfsmenn
og nemendur þessara deilda farið í
heimsóknir og lært að útbúa nám-
skrá á faglegum grundvelli út frá
áhuga og getu nemenda.
Sauma barnaföt fyrir hjálpar-
starf
Eftir að hafa kvatt strákana í 10.
bekk er ferðinni heitið út í smíðaskúr
þar sem 9. bekkingar eru að vinna
að ýmsum smíðaverkefnum. Einn er
að búa til ofurhetjubrynju sem hann
ætlar að gefa litla bróður sínum en
brynjan er úr plasti sem hann mótaði
í glerofni, málaði og er nú að binda
saman. Annar er að leggja lokahönd
á bíl sem hann hefur smíðað frá
grunni og verður að herbergisstássi
heima við þegar hann er tilbúinn.
Sá þriðji er að gera sig kláran til að
renna lampa í rennibekknum.
„Það þýðir ekkert að láta alla gera
nákvæmlega það sama. Við erum
stundum með þemavinnu en yfir-
leitt fá þeir að velja sér verkefni
sem þeir hafa áhuga á,“ segir Stína.
Inni á smíðaverkstæðinu eru illa
farin reiðhjól sem bíða þess að fá
yfirhalningu hjá drengjunum í fjöl-
greinadeildinni en þeir nýta aðstöðu
í Músík og mótor, félagsmiðstöð í
Hafnarfirði, til að gera hjólin upp.
Hér er það sama uppi á teningnum
þegar ég spyr drengina um líðan
sína í fjölgreinadeildinni og náms-
árangur. Þeir eru hæstánægðir.
Spurðir hvað þeim finnst skemmti-
legast að gera eru þeir sammála um
að það sé að elda og baka, „aðallega
að baka og borða svo það sem við
bökuðum,“ segir einn þeirra.
Námskynningar, vettvangsferð-
ir og heimsóknir á vinnustaði eru
hluti af starfi deildarinnar. Nem-
endurnir læra líka gildi samhjálpar,
til að mynda með því að baka kök-
ur, selja og gefa ágóðann til ABC-
barnastarfsins. Nemendur sauma
einnig barnaföt úr flísteppum sem
keypt voru ódýrt í Rúmfatalagernum
ásamt afgöngum úr starfi vetrarins
í textíl. Barnafötin eru gefin Rauða
krossinum sem úthlutar þeim til
barna sem eiga um sárt að binda.
Stína er stolt af „strákunum
sínum“ og segir að rétt eins og
önnur börn hafi nemendur fjöl-
greinadeildar fjölbreytta hæfileika.
„Okkar verkefni er fyrst og fremst
að laða fram það besta í hverjum og
einum. Við leggjum áherslu á ein-
staklingsmiðað nám sem byggir á
námi og verkefnum við hæfi hvers
og eins,“ segir Stína og faðmar mig
aftur þegar við kveðjumst. „Það
mikilvægasta sem við getum gefið
þessum strákum er að sýna þeim að
þeir skipta okkur máli og þeir eiga
framtíðina fyrir sér. Þeir geta allt ef
þeir trúa á sjálfa sig.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Mikil áhersla
er lögð á
verklegt nám
í fjölgreina-
deildinni.
Handlaginn
nemandi á
smíðaverk-
stæðinu
vinnur að
lampa í renni-
bekknum.
Kennarar vinna náið með nemendum og geta gefið þeim meiri tíma en almennt tíðkast.
Hér vinna
drengirnir
með sjálfs-
mynd sína en
flestir hafa
þeir brotna
sjálfsmynd
þegar þeir
koma í fjöl-
greinaeildina.
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Örgöngur um
Breiðholtið
Örgöngur um Breiðholtið
13., 20. og 27. maí, miðvikudagar
Fararstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Brottför: Kl. 19 frá bílastæði við íþróttahús ÍR við Skógarsel
í Breiðholti (gamla Alaska).
Kvöldgöngur þar sem gengið er um hina fjölmörgu stíga
sem liggja um Breiðholtið og tengja Seljahverfið, Bakka-
hverfið og Fellahverfið. Saga og uppbygging hverfisins
rifjuð upp og ný listaverk skoðuð. Um 1½ klst.
Þátttaka ókeypis – allir velkomnir
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
Sleppir ekki
fyrsta sætinu
„Jack Reacher er konungur
konunganna, töffari töffaranna …“
SteinþóR GuðbJaRtSSon
MoRGunblaðið
★★★★
Apríl 2015
1 HeildArlisti
Metsölulisti
Eymundsson
Kiljur vika 18
1.
40 úttekt Helgin 21.-23. mars 2014