Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 48

Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 48
48 heilsa Helgin 8.-10. maí 2015  Bækur NaNNa rögNvaldardóttir Breytti um lífsstíl og hætti að Neyta sykurs Mangóostakaka Nanna notar mangó í þessa sólríku köku en það má alveg nota ýmsa aðra ávexti á sama hátt. Sultan er St. Dalfour, sem er án viðbætts sykurs, en það má nota aðrar tegundir. 150 g sykurlaust granóla 3 msk möndlumjöl 60 g smjör, lint 2 mangóaldin, vel þroskuð 100 ml sykurlaus mangó- og ananassulta 500 g rjómaostur, mjúkur 100 ml sýrður rjómi (36%) 4 egg 1 matarlímsblað 100 ml mangó- og appelsínusmoothie (eða appelsínusafi) Hitaðu ofninn í 175°C. Blandaðu saman granóla, möndlumjöli og smjöri. Settu blönduna í meðalstórt smellu- form og þjappaðu henni létt niður á botninn og aðeins upp með hliðunum. Bakaðu á neðstu rim í 10-12 mínútur og kældu vel. Lækkaðu ofnhitann í 160°C. Flysjaðu og steinhreinsaðu annað mangóið, skerðu það í bita og maukaðu með sultunni í matvinnsluvél. Blandaðu rjómaosti, sýrðum rjóma og eggjum saman við þar til þetta er orðið að sléttu mauki. Helltu því gætilega á granólabotninn. Settu formið á bökunarplötu og bakaðu á neðstu rim í ofninum í um 1 klst., eða þar til kakan hefur stífnað en dúar enn svolítið í miðju. Láttu kólna í forminu. Flysjaðu hitt mangóið og skerðu utan af hvorri hlið þess, eins nálægt steininum og hægt er. Skerðu stykkin í þunnar sneiðar þvert yfir og raðaðu þeim í hring ofan á ostakökuna. Dreifðu litlum mangóbitum á miðjuna. Leggðu matarlímið í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur. Settu ávaxtamaukið/safann í pott og bræddu matarlímið. Helltu blöndunni jafnt yfir mangósneiðarnar og kældu ostakökuna. Ætlar aldrei aftur í sykurinn Þegar einn far- sælasti kokka- bókahöfundur landsins, Nanna Rögn- valdardóttir, var greind með of háan blóðsykur ákvað hún að hætta alveg að neyta sykurs. Afleiðingar þessa breytta lífsstíls láta ekki á sér standa. Nanna er laus við liðaverki, bjúg og hefur misst fjölmörg kíló og hún hefur líka gefið út nýja bók. Bókin „Sæt- meti án sykurs og sætuefna“ er fyrsta sykurlausa bók Nönnu en er þó engin heilsubók. É g var komin með allt of háan blóðsykur svo ég ákvað að breyta um mat- aræði,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir að- spurð um sína fyrstu matreiðslubók sem inniheldur engan viðbættan sykur, „Sætmeti án sykurs og sætuefna“. „Á mínum aldri þýðir of hár blóðsykur að maður er komin í áhættuhóp svo ég ákvað að breyta um stefnu og hætta bara alveg að borða sykur. Ég hefði svo sem alveg getað minnkað sykurneysluna en mér fannst auðveldara að hætta henni bara alveg. Það var einfaldara,“ segir Nanna sem hefur nú tekið allan viðbættan sykur úr fæðunni og notast nú eingöngu við ávexti þegar hún þarf að gera uppskrift sæta. Ósýnilegi sykurinn hættu- legur „Fyrr á öldum var afskaplega lítið um sætmeti í venjulegum íslenskum mat. Fólk notaði til dæmis sveskjur, gráfíkjur eða rúsínur til að sæta matinn en sykur var algjör munaðarvara. Það eru kannski svona 140 ár síð- an að sykurneysla okkar fór að aukast og fyrir svona 100 árum þegar sykur var orðin ódýr þá fór neyslan að aukast. Það er engin nútímauppfinning að nota mik- inn sykur en neyslan var í öðru formi, var miklu sýnilegri. Í dag leynist viðbættur sykur í öllum tilbúnum matvörum og það er þessi ósýnilegi sykur sem er svo hættulegur, finnst mér.“ „Ég byrjaði eiginlega á þessu í gegnum dóttur mína sem hefur núna verið sykur- laus í tvö ár. Þegar hún hætti þá fór ég að prófa mig áfram með uppskriftir af þessu tagi til að geta boðið henni upp á eitthvað eins og öðrum,“ segir Nanna sem hefur núna verið án sykurs í 6 mánuði og segist finna mikinn mun á sér. „Mér líður betur, ég hef lést töluvert, losnað við bjúg og stirðleika í liðum.“ Engin heilsubók Nanna segir bókina þó alls ekki vera neina heilsubók. Hún vill einungis opna augu fólks fyrir því að það er hægt að gera gómsæta eftirrétti án þess að nota viðbættan sykur. „Það þarf engar sérvörur, gervisykur eða einhverskonar sykurlíki í þessum uppskriftum. Þetta eru bara venjulegar uppskriftir og ég held ég geti fullyrt að nánast allt megi finna í hvaða búð sem er. Fyrir mér snýst þetta um að minnka sykurlöngunina. Það kemur stundum fyrir í dag að ég smakka eitthvað sem er með við- bættum sykri og það finnst mér núna bara allt of sætt á bragðið. Bragðlaukarnir eru svo fljótir að venjast, en þeir væru líka eflaust fljótir að venjast viðbætta sykrinum aftur. Ég ætla þó ekki að neyta sykurs aftur, þetta er varanlegt bindindi.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Það eiga örugglega flestir landsmenn allavega eina bók eftir Nönnu Rögnvaldar- dóttur í bóka- skápnum en hún hefur gefið út 19 matreiðslubækur. Sú síðasta í röðinni er þó ólík þeim fyrr að því leyti að í henni er ekki að finna neinn sykur. Ljós- mynd/ Hari uppskrift FLOTTIR SUMARJAKKAR STÆRÐIR 14-28 Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9 Alla virka daga 11-18 Laugardaga 11-16 Straumurinn liggur til Fréttatímans Ja n. -m ar s 20 11 6 1% Ja n. -m ar s 20 15 6 5%

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.