Fréttatíminn - 08.05.2015, Síða 52
Helgin 8.-10. maí 201552 tíska
S. 551-2070 & 551-3366 • www.misty.is
Laugavegi 178 • OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18, Laugardaga 10 - 14
Nýr sumarliturÚrval af vönduðum herraskóm
Úr leðri, margar gerðir, margir litir. Til dæmis þessir.
Stærðir frá 41 - 47
Verð: 15.485.- og 17.885.-
Teg DECO - stærðir 30-38
D,DD,E,F,FF,G á kr. 9.980,-
buxur á kr. 4.650,-
Póstsendum hvert á land sem er
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-16
Sumarpeysan
Verð 9.900 kr.
Einn litur:
hvítt með bláu.
Stærð 36 - 46
Naglalakk Englandsdrottn-
ingar fáanlegt á Íslandi
Tískudrottningar geta nú hætt að hamstra naglalökk frá Essie í útlöndum því það er loksins fáan-
legt á Íslandi. Essie var stofnað í Bandaríkjunum árið 1981 og er afar vinsælt hjá stórstjörnunum.
Áður en merkið fékkst í Evrópu lét Englandsdrottning sérpanta það fyrir sig, og alltaf sama litinn.
N aglalökkin frá merk-inu Essie eru nú í fyrsta sinn fáanleg á
Íslandi. Ýmsar tískudrottn-
ingar hafa hingað til keypt
naglalökkin erlendis en þess
gerist ekki lengur þörf. Til
marks um vinsældir Essie
var sjálf Katrín Middleton,
hertogaynja af Cambridge,
með naglalakkið Allure frá
Essie á nöglunum þegar hún
gekk að eiga Vilhjálm Breta-
prins árið 2011.
Raunar eru fleiri innan
konungsfjölskyldunnar
hrifnir af Essie því árið 1989
lét Elísabet Englandsdrottn-
ing hárgreiðslumeistarann
sinn hafa samband við Essie,
sem er bandarískt merki
sem þá fékkst ekki í Evrópu,
og biðja um sendingu af litn-
um Ballet Slippers sem var
þá eina lakkið sem drottn-
ingin vildi nota, fölbleikt
lakk sem líktist algengum lit
á ballettskóm.
Saga Essie hófst árið 1981
þegar stofnandinn, Essie
Weingarten, hannaði nagla-
lakksformúlu, bjó til 12 liti
og dreifði þeim á snyrtistof-
ur um öll Bandaríkin.
Viðbrögðin létu ekki á
sér standa og merkið
hefur stækkað jafn og
þétt síðan.
Essie hefur sagt frá
því í viðtölum að sem
lítil stúlka hafi henni
þótt fátt skemmtilegra
en að fá að fara með
mömmu sinni á snyrti-
stofur og fá lakkaðar
neglurnar sínar. Litaúrvalið
var þó afar takmarkað og sá
hún sér leik á borði og kom
með sína eigin línu
á markað þar sem
konur gátu valið
úr litunum. Það
bætast við nýir
litir árlega, aðrir
detta út en þeir
vinsælustu halda
áfram í fram-
leiðslu og til að
mynda eru enn
fáanlegir þrír
af fyrstu litunum sem Essie
framleiddi, þeir Bland, Bor-
deaux og Baby´s Breath.
Fimm ár eru síðan snyrti-
vörurisinn Ĺ Oreal keypti
Essie og hefur þróunin
síðan verið á þá leið að færa
merkið og áherslurnar nær
tískuheiminum. Tveimur
árum síðar var Essie í fyrsta
sinn fáanlegt í Evrópu og nú
loks á Íslandi.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Við bjóðum gott
verð alla daga
Túnika kr 4900
Tökum upp nýjar vörur daglega
Katrín Middleton hertogaynja og Elísabet Englandsdrottning eru báðar miklir aðdá-
endur Essie
Liturinn Bikinni So Teeny varð
árið 2013 mest selda naglalakk í
heiminum fyrr og síðar.
Katrín Middleton gifti
sig með litinn Allure frá
Essie á nöglunum.
Fierce no Fear tónar
vel við sólbrúnt hörund
í sumar.
Bachelorette Bash er til-
valinn fyrir einhleypar konur
sem vilja skemmta sér.