Fréttatíminn - 08.05.2015, Blaðsíða 66
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík
sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
ÍSLENSKIR SÓFAR Í ÖLLUM STÆRÐUM
SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
Sjónvarpsskápar
frá 19.900
Borð
frá 7.500
Skenkar
frá 155.330
Barnarum grind
5.000 kr
Fjarstýringavasar
frá 2.900 kr.
Stólar á hjólum
frá 15.900
Torino
Horntúnga 2H1+tunga verð frá 333.900 kr.
3ja sæta sófi verð frá 194.900 kr.
Sófasett 3+1+1 verð frá 371.900 kr.
G ísli Magna, stjórnandi Léttsveitar Reykjavíkur, segir lagavalið á tón-
leikum sveitarinnar afar fjöl-
breytt. „Við erum svolítið í popp-
inu á þessum tónleikum,“ segir
hann. „Við erum að taka lög
eftir Magnús Eiríksson, Braga
Valdimar Skúlason og Sinead
O´Connor, svo eitthvað sé nefnt.
Svo tökum við svona slagara
eins og Eldhúsverkin sem
María Baldurs gerði frægt. Það
er mjög við hæfi að 115 konur
syngi það lag,“ segir Gísli sem
hefur verið stjórnandi Léttsveit-
arinnar undanfarin þrjú ár.
„Við höldum alltaf vor- og
jólatónleika. Afmælið er að vísu
í haust en þetta eru afmælis-
tónleikar. Þetta er gríðarlega
skemmtilegt og hópurinn er
frábær,“ segir Gísli. „Útsetning-
arnar eru frá mér og Aðalheiði
Þorsteinsdóttur sem er undir-
leikari sveitarinnar, segir Gísli.
Með kórnum á tónleikunum
verður hljómsveit skipuð þeim
Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleik-
ara, Gunnari Hrafnssyni bassa-
leikara, Eric Quick trommu-
leikara og Kjartani Guðnasyni
slagverksleikara, ásamt Aðal-
heiði.
„Það eru margir sem hafa
ekki farið á tónleika með
kvennakór en koma svo skæl-
brosandi af þeim, þegar þeir láta
til leiðast,“ segir Gísli. „Þetta
hefur gengið mjög vel undan-
farin ár og hefur alltaf verið létt
og skemmtilegt.“ Í kórnum eru
115 konur og segir Gísli það hafi
verið fjöldann á undanförnum
árum. Þetta hafa verið svona
rúmlega hundrað konur, alveg
upp í 120 í eitt skiptið. Það eru
nokkrar sem hafa verið frá upp-
hafi og á hverju ári koma alltaf
einhverjar nýjar inn. Það er þó
ekki mikil rótering á milli ára.
Það er erfitt að hætta í Léttsveit
Reykjavíkur, segir Gísli Magna
stjórnandi.
Tónleikar Léttsveitarinnar
verða í Silfurbergi Hörpu á
laugardag klukkan 16 og er
miðasala á vef Hörpu. www.
harpa.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík verð-
ur opnuð klukkan 14 á morgun, laugardaginn
9. maí, á jarðhæð JL hússins, Hringbraut 121
(áður verslunarrými Nóatúns) en Myndlista-
skólinn er til húsa á 2. og 3. hæð í sama húsi. Á
sýningunni verða verk eftir nemendur í sjón-
listadeild og diplómanámi í keramik, teikn-
ingu og textíl.
Rúmlega 50 útskriftarnemendur sjónlista-
deildar sýna sjálfstæð lokaverkefni sem þeir
hafa unnið á undanförnum vikum undir hand-
leiðslu Guju Daggar Hauksdóttur arkitekts
og myndlistarmannanna Bjarka Bragasonar,
Finns Arnars Arnarsonar og Ólafar Nordal.
42 nemendur í diplómanámi sýna brot af
afrakstri vetrarins. Nemendur í keramik
sýna vinnu vorannar, m.a. verk úr postulíni
steypt í gifsmótum, leirhluti sem prentaðir
voru í þrívíddarprentara og ýmsar tilraunir
með postulín og fleiri efni. Nemendur
teiknideildar sýna úrval verkefna vetrarins,
m.a. módelteikningu og teiknidagbækur en
áherslan hefur verið á myndræna frásögn.
Nemendur textíldeildar sýna fjölbreytt verk-
efni unnin á námskeiðum í ullarvinnslu,
vefnaði, skapandi prjóni, litun, mynsturgerð
og þrykki.
Sýningin verður opin klukkan 14-17 á
opnunardaginn en klukkan 13-18 aðra daga.
Henni lýkur sunnudaginn 17. maí. -hf
Myndlist VorsýninG Myndlistaskóla reykjaVíkur
Afrakstur vetrarins sýndur
tónlist afMælistónleikar kVennakórs í silfurberGi
Léttsveitin 20 ára
Léttsveit Reykjavíkur
var stofnuð haustið
1995 og heldur því upp
á 20 ára afmæli sitt á
þessu ári. Á laugardag-
inn verða því hátíðar-
tónleikar af því tilefni
í Silfurbergi Hörpu.
Léttsveitin mun slá á
létta strengi að vanda
og flytja dægurlög
sem hafa verið vinsæl
á Íslandi í gegnum
tíðina. Á dagskránni
eru einnig lög sem
fyrrum kórstjóri Létt-
sveitarinnar, Jóhanna
V. Þórhallsdóttir, hefur
samið fyrir kórinn.
Stjórnandi sveitarinnar
Gísli Magna, segir þetta
gríðarlega skemmti-
legan kór og eftirspurn
sé eftir plássi í kórnum
á hverju ári.
Gísli Magna stjórnar rúmlega 100 konum í hverri viku.
66 menning Helgin 8.-10. maí 2015