Fréttatíminn - 08.05.2015, Page 68
Í takt við tÍmann Íris mist magnúsdóttir
Væri 500 kíló ef ég væri ekki dugleg að æfa
Íris Mist Magnúsdóttir er 28 ára nemi í sálfræði við HR og fyrrum fimleikastjarna sem vakti athygli sem
annar stjórnandi Skólahreysti á RÚV á dögunum. Íris Mist stefnir á að verða íþróttasálfræðingur en næst
á dagskrá er að starfa sem íþróttafréttamaður í sumar. Hún hefur horft 200 sinnum á Friends og fer 3-4
sinnum á ári til Danmerkur.
Staðal-
búnaður
Dags dag-
lega er ég
oftast á hælum,
gallabuxum,
bol, jakka og með
hálsmen. Ætli ég
sé ekki kasúal fín.
Fötin eru flest keypt
í keppnisferðum í
útlöndum en restin
í NTC-keðjunni hér á
landi. Þegar ég fer út er
ég aðeins fínni en ef ég
er að fara eitthvað mjög
fínt er pelsinn minn í upp-
áhaldi.
Hugbúnaður
Ég er að æfa
Crossfit núna til
að reyna að ná
í rassgatið á
gamla form-
inu. Annars
finnst mér allt
sem tengist íþróttum skemmtilegt.
Það eina sem mér finnst leiðinlegt er
að hanga og gera ekki neitt. Það er
auðvelt að gera mig hamingjusama,
ef það er nóg af fólki í kringum mig
þá er ég glöð. Mér finnst gaman að
syngja og dansa og fer stundum út
að djamma. Þegar það gerist fer ég
oftast á b5, Danska barinn eða Dollý
og er oftast raddlaus á mánudögum.
Ég get ekki sofnað án þess að horfa
á sjónvarpið og spæni mig í gegnum
heilu sjónvarpsþáttaraðirnar. Uppá-
halds þættirnir mínir eru Modern Fa-
mily, Grey’s Anatomy og Friends, allt
þetta klassíska. Ég er búin að horfa á
þær allar svona fimm sinnum, nema
Friends. Þær hef ég allar séð svona
200 sinnum.
Vélbúnaður
Ég er með iPhone 6 og Macbook Pro.
Tölvan er nauðsynleg fyrir skólann
og allt fer í gegnum símann. Ég er
ekkert voðalega aktív á samfélags-
miðlum, fyrir utan Facebook. Ég er
samt að reyna að bæta mig og skráði
mig til dæmis á Twitter um daginn.
En ég gleymi alltaf að fara á Instag-
ram
Aukabúnaður
Ég er ekki dugleg að elda enda er ég
oftast á ferðinni og kaupi því oft mat
eða borða með mömmu og pabba.
Oftast fer ég á Serrano og Stúdenta-
kjallarann en reyndar finnst mér
óhollur matur rosa góður. Ég væri
örugglega 500 kíló ef ég væri ekki
dugleg að æfa. Ég er svo heppin að
ég hef verið á bíl síðan ég var 17 ára
og nú keyri ég á Golf. Ég gæti ekki
án hans verið því ég er yfirleitt með
daginn skipulagðan frá því ég vakna
og þar til ég fer að sofa. Uppáhalds
staðurinn minn er Danmörk, við fór-
um svo oft í keppnisferðir og æfinga-
búðir þangað og svo bjó ég þar líka.
Ég er eiginlega háð Danmörku og fer
þangað 3-4 sinnum á ári. Í sumar verð
ég að vinna á íþróttadeild RÚV svo ég
þarf að koma mér inn í starfið en ætli
ég reyni ekki líka að fara í útilegur og
vera úti eins mikið og hægt er.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Gefandi samvera
barna og fullorðinna
Barnahátíð verður haldin í níunda sinn í
Reykjanesbæ um helgina. Margir koma að
undirbúningi hennar og boðið verður upp
á margs konar viðburði fyrir börn og for-
eldra. Markmið hátíðarinnar er að skapa
foreldrum og börnum fjölbreytt tækifæri
til frjórrar og gefandi samveru og stuðla
þannig að fjölskylduvænum Reykjanesbæ.
Söfnin í bænum, leik- og grunnskólar,
íþróttafélög, tómstundafélög og menning-
arfélög taka virkan þátt í hátíðinni en að
auki er öllum bæjarbúum boðin þátttaka.
Stór liður í barnahátíð er Listahátíð
barna sem er samvinnuverkefni Lista-
safns Reykjanesbæjar og allra leikskóla í
Reykjanesbæ. Hátíðin hefur vaxið og eflst
með hverju ári og segja má að hún hafi
orðið kveikjan að barnahátíðinni þar sem
virðing fyrir börnum og störfum þeirra er
höfð að leiðarljósi. Allar upplýsingar um
hátíðina má finna á www.barnahatid.is -hf
Stór liður í
barnahátíð er
Listahátíð barna
sem er sam-
vinnuverkefni
Listasafns Reykja-
nesbæjar og allra
leikskóla í Reykja-
nesbæ.
68 dægurmál Helgin 8.-10. maí 2015
Tjarnarbíó
18 og19 maí . .
maí .
Hof Akureyri
22
Borgarleikhúsið
18 og19 maí . .
maí .
HofAkureyri
21
BORDERTHE
miðasala á www.midi.is