Fréttatíminn - 08.05.2015, Blaðsíða 74
Hrein og
silkimjúk húð
umhirða húðar Helgin 8.-10. maí 20152
Pure empreinte
frá Lancôme
Maski sem veitir ein-
staka hreinsun. Hreinsar í
dýptinni með því að drekka
í sig umfram fitu og eyða
óhreinindum. Húðin verður
þéttari, fallega mött, fersk,
björt og hrein. Fyrir eðlilega
og blandaða húð.
Gentle cleansing
milk frá YSL
Hreinsimjólk fyrir andlit, augu
og varir. Leysir upp og hreinsar
allar gerðir af farða á mildan
hátt og skilur eftir hreina og
silkimjúka húð. Vinnur sérstak-
lega vel á sterkum varalitum.
SENSAI Double
Moisturising Set
Nýtt frá SENSAI. Nú getur þú prófað
tvöfaldan raka og tvöfalda hreinsun frá
SENSAI með einföldum hætti. Sett sem
inniheldur Lotion 2 (rakavatn) og Emulsion
2 (rakakrem), sem sagt tvöfaldan raka. Með
fylgir að gjöf tvöföld hreinsun, Cleansing Oil
og Creamy Soap í minni stærð.
H úðin er stærsta líf færi líkamans og verður fyrir miklu áreiti á hverjum degi.
Góð húðumhirða er því eitthvað
sem allir ættu að temja sér. Húðin
okkar er þakin svitaholum og fer
ekki eingöngu sviti þar í gegn, held-
ur fer húðfitan sömu leið. Hlutverk
hennar er að veita húðinni raka og
vernda hana en farði getur hins veg-
ar stíflað svitaholurnar svo húðfitan
safnast upp og eykur líkur á að ból-
ur og fílapenslar spretti upp. Húðin
er stöðugt að endurnýja sig og því
er regluleg hreinsun húðar nauð-
synleg. Mikilvægt er að velja hreinsi
og andlitsvatn við hæfi. Húðgerðin
skiptir þó lykilmáli við húðhreins-
un. Konur með þurra húð ættu til að
mynda að forðast vörur með miklu
alkóhólmagni og þær sem eru með
feita húð ættu að velja vörur með
lágt sýrustig eða pH-gildi. Skemmti-
legast er svo auðvitað að prófa sig
áfram og finna þannig hvers kon-
ar húðvörur henta best. Góð regla
sem bæði konur og karlar ættu að
temja sér er að þrífa húðina kvölds
og morgna. Þó svo að enginn and-
litsfarði sé notaður yfir daginn er
mikilvægt að þrífa húðina vel vegna
mengunarinnar sem er í loftinu.
Hrein húð – falleg húð
Húðin er okkar
stæsta líffæri
og því ættu allir
að temja sér
þá ágætu reglu
að þrífa húðina
vel, kvölds og
morgna.