Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 80
umhirða húðar Helgin 8.-10. maí 20158
Heilbrigð
og falleg
húð í
sumar
Eftir langan vetur tökum við sumrinu fagnandi. Í kjöl-
far hita- og veðrabreytinga er mikilvægt að hugsa vel
um húðina og undirbúa hana vel. Segjum bless við
þurrkubletti og þreytta húð eftir veturinn og tökum
vel á móti freknum, sólkysstri húð og roða í kinnum.
Visibly Clear Pink
Grapefruit Scrub
og Facial Wash frá
Neutrogena
Eftir erfiðan vetur er góð húð-
hreinsun nauðsynleg til að hjálpa
húðinni að losa sig við erfið
óhreinindi svo næringarrík krem
komist greiða leið inn í húðina og
hjálpi henni að ná jafnvægi. Pink
Grapefruit hreinsivörurnar frá
Neutrogena gera það og meira til
því greipþykknið í vörunum hefur
frískandi áhrif á húðina svo hún
lifnar við. Skrúbburinn er frábær
til að nota tvisvar eða þrisvar í
viku og tilvalið að geyma hann
inni í sturtu til að passa að gleyma
honum ekki. Gelkenndi hreinsirinn
kemur í pumpu svo hann er sér-
staklega handhægur og þægilegur
meðfæris. Báðar vörurnar hreinsa
húðina vel án þess að erta hana og
henta konum á öllum aldri. Fyrir
þær sem eru viðkvæmar fyrir, þá
er líka til kremkenndur hreinsir í
sömu línu.
Micellar Cleansing
Water frá Garnier
Húðhreinsun er mikilvægur hluti af
húðumhirðu dagsins. Það er mælt
með því að húðin sé hreinsuð tvisvar
yfir daginn, einu sinni á kvöldin
og svo aftur á morgnana. Micellar
hreinsivatnið frá Garnier er tilvalið
til að nota á morgnana. Það hressir
húðina samstundis með léttri og
kælandi formúlu sinni og hreinsar
yfirborðsóhreinindi sem húðin
skilar upp á yfirborð húðarinnar á
nóttunni. Vatnið er borið í bómullar-
skífu og henni síðan strokið yfir
andlitið. Nærið svo húðina með góðu
rakakremi og sólarvörn áður en þið
haldið út í daginn.
Travel Essentials
burstasett frá Real
Techniques
Ef þið hafið einhvern tímann verið í
vandræðum með hvaða förðunarburstar eru
ómissandi bæði í ferðalag og í snyrtibudduna
þá er Real Techniques með einfalda lausn við
því. Travel Essentials burstasettið inniheldur
bursta fyrir grunnförðunarvörur eins og farða
og hyljara, púðurbursta fyrir allar tegundir
púðurs og þægilegan augnskuggbursta sem
hægt er að nota til að gera fallegar augnfarð-
anir. Utan um burstana kemur góð taska sem
passar í allar töskur eins og handtöskur eða
ferðatöskurnar. Real Techniques burstarnir
hafa farið sigurför um Ísland og þetta sett er
„must have“ fyrir ferðalög í sumar.
Miracle Skin Cream frá Garnier
Á sumrin færum við okkur ósjálfrátt í léttari förðunar-
vörur. Við viljum vörur sem gefa húðinni jafna áferð,
léttan lit og heilbrigðan ljóma. Allt þetta og meira til er
það sem Miracle Skin Cream frá Garnier gerir. Kremið
er rakamikið og litarlaust þegar það er borið á húðina.
Þegar það kemst í snertingu við húð og hita springa
út örfín litkorn sem gefa léttan lit og mikinn ljóma og
húðin fær virkilega fallega og ómótstæðilega áferð. Eitt
það besta við kremið er að það inniheldur SPF20 sem
gefur húðinni góða vörn og ver hana gegn geislum sólar.
Sublime Bronze
Mousse frá L’Oreal
Nýjasta sjálfbrúnkuvaran frá L’Oreal
er sjálfbrúnkufroða sem gefur
húðinni heilbrigðan og fallegan lit.
Kosturinn við froðuna er að hún
dreifist jafnt yfir húðina og er með
léttum lit til að leiðbeina konum og
hjálpa þeim að fá jafnan lit. Sjálf-
brúnkufroðuna er tilvalið að nota
fyrir sumarfríið til að fá fallegan og
heilbrigðan lit á húðina.
Moisture Match fyrir allar húðtýpur
Þetta einfalda og rakamikla tríó frá Garnier gefur húðinni mikinn
raka og leggur áherslu á að gefa henni góða næringu. Hvert krem
er hugsað fyrir ákveðnar húðtýpur. Það bleika er fyrir þurra húð,
það bláa er fyrir normal húð og það græna er fyrir olíumikla húð
en það skilur eftir sig matta áferð á húðinni. Formúlur kremanna
eru allar mjög léttar og þau fara hratt inn í húðina en sitja ekki
eftir á yfirborði hennar. Kremin eru 24 stunda krem og þau næra
húðina með næringarríkum olíum og henta því konum með við-
kvæma húð. Garnier fagnar því að engin kona er eins með þessum
flottu vörum og því ættu allar konur að finna krem við sitt hæfi.