Neytendablaðið - 01.03.2009, Side 6
Sífellt fleiri neytendur kaupa nú minni og ódýrari þvottavélar en
áður. Það er oft hárrétt ákvörðun. Flestar nútíma þvottavélar eru
ágætistæki fyrir þau verkefni sem þeim eru ætluð.
Nýjasta gæðakönnun ICRT á þvottavélum nær til um 190 gerða.
Níu þeirra fást hérlendis og má hér í töflu sjá nokkur atriði úr
gæðaprófuninni á þeim. Þvegið var í þremur þvottavélum af hverri
gerð, 1.840 sinnum í mismunandi kerfum. Það samsvarar um 10
ára notkun miðað við að þvegið sé að meðaltali 3,5 sinnum í viku.
Markaðskönnun
Í markaðskönnun Neytendablaðsins í febrúar fundust hérlendis 105
gerðir af þvottavélum á verðbilinu um 80.000 – 430.000 kr. Af 20
ódýrustu vélunum voru sjö frá Candy. Af 20 dýrustu gerðunum
voru átta frá Miele. Sjá nánar markaðskönnuninni á www.ns.is,
einungis aðgengileg félagsmönnum.
Verðlag og búnaður
Verð á sumum ódýrari þvottavélum er lægra af því að vinduhraði
er minni og vindutími skemmri en í dýrari gerðum. Það hentar
einmitt sumum notendum. Ef eigandinn getur þurrkað þvottinn úti
á snúru eða í þvottaherbergi er hægt að spara skynsamlega með því
að sleppa því að kaupa innbyggðan eða sjálfstæðan þurrkara.
Rannsóknir á vegum neytendasamtaka hafa sýnt að sumar ódýrar
þvottavélar frá Bosch, Siemens, Otto/Hanseatic, Quelle/Privileg
og Electrolux (að undantekinni AEG-Electrolux Lavamat) þvo og
skola nákvæmlega jafn vel og dýrari vélar sem bjóða upp á meiri
vinduhraða. Þær ódýru nota líka flestar hverjar minna rafmagn
og vatn en hinar dýru og eru því vistvænni. Og margar bjóða
upp á einn dýrmætan kost í viðbót: Þær eru með nýjar gerðir af
vatnsskaðavarnarbúnaði til að koma í veg fyrir flóð.
Varnir gegn vatnstjónum
Víða er bannað að hafa þvottavélar á íbúðarhæðum í húsum þar
sem vatnsflóð frá þvottavél á einni hæð getur valdið miklu tjóni
á hæðum fyrir neðan. Þvottavélar eru þá hafðar í kjallara eða
sérútbúnu þvottaherbergi. Stundum er skylda að vera sérstaklega
tryggður fyrir vatnsskaða frá þvottavélum.
Margar nútímaþvottavélar eru með skynjara og varnarkerfi sem eiga
að fara í gang og stöðva vélina ef bilun verður og hætta myndast
á vatnsflóði. Margt getur bilað; vatnsrör og samskeyti, lausar lokur,
ventlar og gúmmí, óþétt botnplata o.fl. Er notendum eindregið
ráðlagt að taka enga áhættu í þessum efnum heldur kanna það
sérstakleglega hvort skynjarar og varnir séu í vélinni. Sumar ódýrar
vélar eru ekki með varnir heldur einfaldan skynjara sem gerir bara
aðvart ef eitthvað er að fara úrskeiðis en sé enginn heima, eða vélin
niðri í kjallara, er hann gagnslaus og vatn getur sprautast eða lekið
út um allt. Vélar sem eru þannig útbúnar ætti aðeins að setja í
kjallara eða þvottaherbergi með niðurfalli í gólfi.
Vélar sem henta fötluðum
Ef notandinn er í hjólastól eða slæmur í baki er yfirleitt hentugast
fyrir hann/hana að nota framhlaðna vél sem hefur verið púkkað
undir og hún hækkuð til að viðkomandi einstaklingur nái vel til
stjórnbúnaðar og hurðar.
Ef notandinn er veikburða í höndum eða getur ekki hreyft þær
nægilega er best að kaupa framhlaðna þvottavél sem auðvelt er að
opna, loka og þreifa innan. Einnig þarf að vera auðvelt að nota
stjórntakka.
Fatlaðir sem skynja umhverfi sitt illa, hafa t.d. takmarkaða sjón,
ættu að fá þvottavél sem er með forstilltum kerfum og hægt er að
stjórna með aðeins einni eða tveimur hreyfingum.
Engar þvottavélar eru sérstaklega heppilegar fyrir sjónskerta; það
vantar á allar gerðir skærari liti og fleti til leiðbeiningar og líka
upplýsinga- og svörunarhljóð um notkunina.
Gagnlegir eiginleikar
Jafnvægis-réttari (out-of-balance correction). – Hann skynjar það
sjálfkrafa ef vélin hefur komist úr jafnvægi og sendir skilaboð svo
að vélin deilir strax þunganum til leiðréttingar upp á nýtt. Hún
gerir það með hægagangi á vindunni fyrir vindingu eða með því að
taka inn á sig meira vatn. Þvottavél sem kemst úr jafnvægi getur
farið að hreyfast um gólf og fallið á hliðina. Sérstaklega er þetta
varasamt ef vélin stendur á upphækkun eða stalli. Rétt er að kanna
alltaf öðru hvoru hvort vélin stendur rétt á fótum. Algengasta
vandamál nýlegra þvottavéla í Ástralíu á undanförnum árum var
jafnvægisskortur, skv. neytendablaðinu Choice.
Sjálfvirkur vatnsborðsstillir. – Þessi búnaður getur sparað orku, vatn
og tíma með því að skynja og stilla sjálfkrafa hæð vatnsborðsins í
vélinni eftir því sem hentar hverju þvottakerfi um sig.
Stillanlegur vinduhraði. – Með þessum búnaði er hægt að stilla
vinduhraðann í sumum kerfum. Hærri vinduhraði skilar þurrari
þvotti en lægri hraði er hentugur fyrir viðkvæman þvott eða efni
sem krumpast auðveldlega.
Hversu áreiðanlegar?
Á síðasta ári gerði ástralska neytendablaðið Choice könnun meðal
félagsmanna sinna á því hve vel þvottavélar þeirra hefðu enst.
Kannað var hvort vélar keyptar á árinu 2000 eða síðar hefðu þurft
að fara í viðgerð. Alls bárust svör varðandi 7.000 þvottavélar frá 12
framleiðendum. Að meðaltali höfðu 10% þeirra þurft viðgerð. Bestu
útkomu vörumerkjanna hlaut Bosch en þá slökustu Ariston.
Gæðakönnun
á þvottavélum
NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2009