Neytendablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 3
Frá kvörtunarfljónustunni
Algengt er að brúðhjón skrái sig á
svokallaða brúðkaupslista hjá verslunum
sem selja matarstell og gjafavörur.
Tilgangurinn með slíkri skráningu er m.a.
sá að brúðkaupsgestir geti keypt hluti í
matarstellið sem brúðhjónin vilja eignast.
Leiðbeininga- og kvörtunarþjónusta Neyt-
endasamtakanna fær alltaf eitthvað af
málum þar sem fólk segist hafa byrjað
að safna ákveðnu stelli en síðar lent í
vandræðum þegar hætt er að framleiða
stellið eða verslunin sem hefur haft það á
boðstólum hættir að selja það. Það er lítið
gaman að eiga aðeins hluta af matarstelli
sem nýtist þá ekki þegar haldin eru
matarboð á heimilinu og engir möguleikar
eru á því að bæta í það. Sumar verslanir
hafa það verklag að láta vita með nokkuð
löngum fyrirvara áður en til stendur að
hætta að framleiða tiltekið stell og er fólki
þá gefið færi á að kaupa þá hluti sem það
vantar.
Brúðhjón leita til Leiðbeininga- og
kvörtunarþjónustunnar
Í einu svona máli höfðu verðandi brúðhjón
skráð sig á brúðkaupslista hjá versluninni
Hirti Nielsen. Eftir brúðkaupið leituðu
hjónin til Neytendasamtakanna. Sögðust
þau í upphafi hafa verið fullvissuð um að
nóg væri til í matarstellið og að svo yrði
einnig þegar brúðkaupsgestir færu að huga
að gjöfum. Þegar á reyndi var lítið sem
ekkert til í stellið auk þess sem verslunin
var lokuð í nokkra daga fyrir brúðkaupið
og í nokkuð langan tíma eftir það, eða í
um þrjá mánuði alls. Engu að síður fengu
brúðhjónin nokkra hluti í stellið að gjöf og
þar að auki tvö gjafabréf í verslunina. Þegar
hjónin ætluðu að leysa út gjafabréfin og fá
í staðinn matardiska í stellið voru þeir ekki
til. Brúðkaupið var í mars en í september
voru diskarnir enn ekki komnir. Fulltrúi
Leiðbeininga- og kvörtunarþjónustunnar
sendi versluninni bréf þar sem sjónarmiðum
hjónanna var lýst. Þegar bréfinu var
ekki svarað var send ítrekun og síðar
lokaáskorun en ekki tókst að leysa úr
málinu. Var hjónunum því ráðlagt að
leggja málið fyrir Kærunefnd lausafjár- og
þjónustukaupa.
Niðurstaða kærunefndar
Fyrir kærunefndinni óskuðu hjónin eftir
því að fá að skila þeim munum sem voru
ónotaðir, sem og gjafabréfunum, og fá
endurgreitt. Kærunefndin óskaði eftir
afstöðu frá versluninni en engin svör
bárust. Taldi kærunefndin að miðað við
fyrirkomulagið á viðskiptunum hefði
verið um verulegar vanefndir að ræða
hjá versluninni sem búast mætti við að
gætu einnig orðið framvegis. Var það
álit nefndarinnar að forsendur hjónanna
væru brostnar og að þau ættu rétt á að fá
endurgreidda ónotaða hluti úr matarstellinu
sem og gjafabréfin.
Versluninni hefur nú verið lokað.
Brúðkaupsgjöfin ekki til
Bilaður DVD-spilari
Ég keypti DVD-spilara sem bilaði. Starfsmenn verslunarinnar hafa
tvisvar reynt að gera við spilarann en hann er ennþá bilaður. Nú
vilja þeir reyna enn einu sinni að gera við en ég vil ekki standa í
þessu lengur, heldur vil bara fá endurgreitt. Á ég rétt á því?
Svar
Meginreglan er sú að ef vara reynist gölluð getur þú valið hvort þú
viljir fá nýja vöru afhenta eða að viðgerð sé reynd. Seljandinn hefur
tvær tilraunir til að bæta úr gallanum, annað hvort með því að gera
við eða afhenda þér nýja vöru. Ef þessar tvær tilraunir duga ekki til
þá átt þú almennt rétt á að rifta kaupunum, þ.e. skila vörunni og fá
endurgreitt.
Gallað leikfang
Ég keypti byggingarkrana í dótabúð sem síðar kom í ljós að var
gallaður. Það var ekki hægt að gera við gallann og allir kranarnir
í sendingunni voru með sama galla þannig að ég gat ekki fengið
nýjan. Verslunin afhenti mér innleggsnótu en ég vildi fá peninginn
til baka. Á ég rétt á því?
Svar
Þar sem um galla er að ræða og hvorki hægt að gera við né afhenda
nýja vöru átt þú fullan rétt á endurgreiðslu og þarft ekki að sætta
þig við innleggsnótu.
Spurningar og svör vegna galla
NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2007
Cl
ick
to
b
uy
N
OW
!PD
F-
XCh
ange Viewer
w
w
w.docu-track
.c
om
Cl
ick
to
b
uy
N
OW
!PD
F-
XCh
ange Viewer
w
w
w.docu-track
.c
om