Neytendablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 23
Aðföng
Skyndibitakeðjurnar eiga viðskipti við
ótal birgja og margar af stóru keðjunum
hafa það markmið að gera starfsemi
sína „grænni”. Meðferð dýra er mikið
hitamál víða enda er þróunin sú að
landbúnaður verður sífellt tæknivæddari
og ýmsum brögðum er beitt til að lækka
framleiðslukostnað. Þannig er sýklalyfjum
stundum beitt í óhófi og dýrin búa við mikil
þrengsli og fá ódýrt fæði. Þótt ýmislegt hafi
áunnist eru stóru skyndibitakeðjurnar enn á
byrjunarreit þegar kemur að meðferð dýra
og meðalstórar og litlar keðjur gera engar
kröfur til birgja sinna.
Lífrænt og erfðabreytt
Ekki er mikið um að keðjurnar kaupi
lífrænt ræktuð matvæli eða vörur með
sanngirnismerki (fair trade). Hér er keðjan
Exki þó undantekning en hún gerir út á
lífrænan mat.
Erfðabreytt dýrafóður er flutt til Evrópu
frá m.a. Bandaríkjunum og Argentínu.
Aðallega er um að ræða soja og maís sem
er algengt dýrafóður. Stórar keðjur, eins og
McDonald´s og Burger King, hafa það að
markmiði að útrýma erfðabreyttu hráefni úr
dýrafóðri. Í dag getur McDonald’s einungis
tryggt að kjúklingar fá ekki erfðabreytt
fóður. Litlar og meðalstórar skyndibitakeðjur
gefa ekki upp hvort hráefnið sem þær nota
er erfðabreytt eða ekki.
Fylgihlutir
Keðjur sem bjóða upp á leikföng eða annað
smádót með mat kaupa slíkt iðulega frá
löndum á borð við Kína og Víetnam, þ.e.
löndum þar sem algengt er að reglur al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar séu virtar
að vettugi. Sumar keðjurnar, eins og
McDonald´s og Yum (KFC, Pizza Hut) hafa
sett sér siðareglur í tengslum við innkaup
á leikföngum og öðrum „fylgihlutum”
máltíða.
Neytendur
Offita er vaxandi vandamál í Evrópu
og oft hefur sjónum verið beint að
skyndibitakeðjunum sem bjóða upp á
mjög hitaeiningaríkan mat og sífellt
stærri skammta. Sumar skyndibitakeðjur
hafa gripið til aðgerða og bjóða upp á
fjölbreyttari matseðil þar sem einnig má
finna hollan mat. Sumar keðjurnar gera
hreinlega út á hollustu, sbr. Subway, svo
ekki sé talað um belgísku keðjurnar Exki og
Le Pain Quotidien. Þegar horft er til hollustu,
markaðssetningar og skammtastærða standa
Exki og Le Pain Quotidien sig best.
Margar skyndibitakeðjur hafa brugðist
við þrýstingi frá neytendum og sett
fram upplýsingar um næringargildi á
veitingastöðum, á umbúðum og á heima-
síðum.
Skyndibitakeðjurnar hafa einnig verið gagn-
rýndar fyrir markaðssetningu í gegnum
tíðina og þá aðallega fyrir að beina spjótum
sínum að börnum. Fæstar keðjurnar axla
ábyrgð að þessu leyti.
Enn mikið verk óunnið
Samkvæmt könnun ICRT er ekki hægt að
segja að skyndibitaiðnaðurinn í heild sinni
axli samfélagslega ábyrgð. Þegar stærstu
keðjurnar eru skoðaðar er McDonald´s
komið hvað lengst á veg en keðjurnar
Burger King, Subway og Pizza Hut fylgja á
eftir. Margar minni keðjur hafa ekki mótað
neina stefnu í málum sem tengjast meðferð
dýra, umhverfinu eða vinnuréttindum
starfsmanna. Keðjurnar koma þó nokkuð
mismunandi út, allt eftir því í hvaða löndum
þær starfa. Þannig kemur McDonald´s í
Sviss mun betur út en McDonald´s staðir í
hinum löndunum fimm.
10-11
11-11
Actavis
Apótekarinn
Apótekið
Atlantsolía
Bananar
Bónus
Brimborg
Búr
Byko
Ego
Eimskip
Elisabet.is
Esso - Olíufélagið
Frumherji
Glitnir
Hagkaup
Hekla
Húsasmiðjan
Iceland Express
Icelandair
IKEA
Íbúðalánasjóður
Íslandspóstur
Ístak
Kaskó
Kaupþing
Kjarval
Krónan
Landsbankinn
Lánstraust
Lyf og heilsa
Lyfja
Mest
MS
Nettó
Nóatún
Orkan
Orkuveita Reykjavíkur
Penninn
Samkaup- Úrval
Samkaup-Strax
Samskip
Securitas
Shell - Skeljungur
Síminn
Sláturfélag Suðurlands
SPARISJÓÐIRNIR
Sölufélag
garðyrkjumanna
Tryggingamiðstöðin
Vátryggingafélag Íslands
VBS fjárfestingabanki
Visa Ísland
Vífilfell
Vodafone
Vörður Íslandstrygging
Öryggismiðstöðin
Neytendastarf er í allra þágu!
23 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2007
Cl
ick
to
b
uy
N
OW
!PD
F-
XCh
ange Viewer
w
w
w.docu-track
.c
om
Cl
ick
to
b
uy
N
OW
!PD
F-
XCh
ange Viewer
w
w
w.docu-track
.c
om