Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 20

Neytendablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 20
Sjónvarpsáhorfendur eru neytendur sem greiða fyrir þjónustuna með afnotagjöldum og í mörgum tilvikum áskriftargjöldum. Mikilvægt er að tekið sé fullt tillit til allra sjónvarpsáhorfenda, ekki síst barna, en því miður er stundum misbrestur á því. Allt of algengt er að þættir, auglýsingar og bíómyndir sem ekki eru við hæfi barna séu sýndar á þeim tíma sem gera má ráð fyrir að börn geti verið fyrir framan sjónvarpsskjáinn. Það þarf ekki að fjölyrða um þann skaða sem börn geta orðið fyrir við að sjá myndefni sem þau hafa ekki þroska til að skilja. Það er áhyggjuefni hversu oft myndbrot sem ekkert erindi eiga til barna birtast í fréttum og þáttum sem sýndir eru á besta tíma. Gjarnan er bent á ábyrgð foreldra en hlutverk þeirra getur verið mjög erfitt þar sem myndbrotum er oft skotið inn í dagskrá fyrirvaralaust, t.d. með auglýsingum bíóhúsa eða myndbandaleiga á hryllingsmyndum. Varðandi þætti og bíómyndir er því miður ekki heldur alltaf hægt að treysta merkingum sem gefa til kynna hvort sjónvarpsefni sé ætlað börnum eða ekki (gulur litur = efni ekki við hæfi barna yngri en 12 ára; rauður litur = efni ekki við hæfi barna yngri en 16 ára). Í tilefni af ítrekaðri birtingu sjónvarpsstöðva á aðdraganda aftöku Saddams Husseins og þeim hörmulegu afleiðingum sem slíkar myndbirtingar höfðu víða um heim þegar börn reyndu að líkja eftir aftökunni sendu Neytendasamtökin erindi til Útvarpsréttarnefndar. Vildu samtökin fá úr því skorið hvort myndbirtingarnar samræmdust útvarpslögum. Einnig var óskað eftir afstöðu Útvarpsréttarnefndar til fleiri dagskrárliða sem ekki tengdust fréttinni af Saddam Hussein. Neytendasamtökin sendu einnig sjónvarps­ stöðvunum bréf þar sem óskað er eftir góðu samstarfi og að sjónvarpsstöðvarnar taki góðfúslega við þeim ábendingum sem samtökin kunna að hafa. Neytendasamtökin taka við ábendingum frá foreldrum sem telja brotið á rétti barna sinna. Þá er einnig hægt að senda erindi beint til Útvarpsréttarnefndar. Sjónvarpsstöðvar taki tillit til barna Neytendablaðið hefur á undanförnum árum fjallað um skaðsemi transfitusýra. Það eru engar nýjar fréttir að transfitusýrur eru óhollar og Neytendasamtökin telja að almenningur eigi rétt á að þessar fitusýrur verði takmarkaðar í mat eins og kostur er. Danir hafa þegar gripið til aðgerða, en árið 2003 samþykkti danska þingið löggjöf sem skyldar framleiðendur til að takmarka magn transfitusýra í öllum unnum mat sem seldur er í Danmörku. Matvæla­ og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur úrskurðað að ekki sé til neitt öruggt viðmið þegar transfitusýrur eru annars vegar og því er framleiðendum í Bandaríkjunum skylt að upplýsa um magn transfitusýra á umbúðum. Þannig geta neytendur forðast matvæli sem innihalda transfitusýrur kjósi þeir það. Hér á landi eru engar slíkar reglur í gildi. Neytendasamtökin sendu umhverfisráð­ herra, Jónínu Bjartmarz, bréf í janúar og hvöttu til þess að íslensk stjórnvöld færu að dæmi Dana. Enn hefur ekkert svar borist. Transfitusýrur geta leynst í gómsætum mat. eiga rétt á hollum matNeytendur Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.