Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 9

Neytendablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 9
Athyglisverð grein birtist í aprílhefti Neytendablaðsins árið 1999 undir yfir­ skriftinni Hagnaður Shell – allur á kostnað neytenda. Einkennilegur ársreikningur Í greininni er fjallað um ársreikning Skeljungs fyrir árið 1998 en fyrirtækið skilaði þá hagnaði upp á 242 milljónir. Forstjóri Skeljungs útskýrði þessa góðu afkomu með því að stefnumörkun sem mótuð hefði verið innan fyrirtækisins hefði skilað tilætluðum árangri. Neytendablaðið benti hins vegar á að nánari skoðun á ársreikningi Skeljungs vekti upp spurningar. Þannig hækkaði t.d. rekstrarkostnaður fyrirtækisins á milli ára um 176 milljónir og það gæti varla talist góður árangur. Rekstartekjur hækkuðu hins vegar aðeins um 13 milljónir. Innkaupsverð seldra vara lækkaði um 296 milljónir enda hafði heimsmarkaðsverð á olíu lækkað mikið. Neytendablaðið hélt því fram í þessari grein að lækkun á heimsmarkaðsverði hefði alls ekki komið neytendum til góða og að samkeppni hafi ekki verið fyrir að fara. Þá var einnig bent á að olíufélögin einbeittu sér fyrst og fremst að því að koma upp bensínstöðvum sem víðast og að sam- keppnin virtist einna helst felast í því að auglýsa og bjóða ýmsar vörur til sölu sem hefðu ekkert með eldsneyti að gera. „Þetta er svipað því að fisksalinn auglýsti sig með því að bjóða upp á bestu gerð af sippuböndum” segir orðrétt í greininni. Gagnkvæm hlustunartæki? Þegar þessi grein var skrifuð gat engan órað fyrir því hversu víðtækt og alvarlegt verðsamráð var þá þegar í gangi. Neytenda- blaðið hafði þó grunsemdir um að ekki væri allt með felldu eins og eftirfarandi tilvitnun sýnir: „Verðlagning á olíuvörum er hins vegar svipuð hjá hinum stóru, þannig að stundum mætti ætla að gagnkvæm hlustunartæki væru til staðar á stjórnarfundum þeirra. Þess vegna njóta neytendur á Íslandi ekki virkrar verðsamkeppni og njóta í takmörkuðum mæli hagstæðara verðs vegna lækkana á heimsmarkaði. Það er einmitt þess vegna sem olíufélögin hér á landi hagnast; þegar heimsmarkaðsverð á olíu lækkar þá lækkar verð til neytenda ekki að sama skapi. Sjaldan hefur birst ársreikningur, eins og ársreikningur Skeljungs, þar sem svo berlega sést að vandamálum í stjórnun fyrirtækis og skorti á hagræðingu er velt á neytendur. Spurningin er bara þessi: Á þetta líka við um Olís og Esso?” Grunsemdir Neytendablaðsins Neytendasamtökin ákváðu að kanna úrvalið af umhverfismerktum vörum hér á landi til að komast að því hvort íslenskir neytendur hefðu raunverulegt val þegar kemur að því að versla á umhverfisvænum nótum. Úttekt Neytendasamtakanna sýnir að úrvalið af umhverfismerktum vörum er mjög lítið og í engu samhengi við það mikla vöruúrval sem frændur okkar á hinum Norðurlöndunum búa við. Hér er einna helst að finna umhverfismerkt hreingerningarefni, salernispappír og eldhúsrúllur, en þar með er úrvalið að mestu leyti upp talið. Íslendingar eru þar að auki sú Norðurlandaþjóð sem hefur minnsta þekkingu á Svaninum sem þó er algengasta umhverfismerkið hér á landi. Sjá skýrsluna í heild á ns.is. Eru umhverfisvæn innkaup raunverulegur valkostur? Hvar er lægsta eldsneytisverðið? Neytendasamtökin fylgjast með eldsneytisverði og á www.ns.is er hægt að sjá hvað bensín og díselolía kostar og hvar verðið er lægst. Könnun á hitastigi matvöru Neytendasamtökin könnuðu hitastig matvöru í kæliborðum, kjötborðum, frystum og salatbörum í 14 verslunum. Athugasemdir voru gerðar við kælingu matvöru í kjötborðum í 27% tilfella og í kjötkælum í 29% tilfella. Ástandið var sérstaklega slæmt í frystum en þar var hitastigið yfir eðlilegum mörkum í 53% tilfella og loks var hitastigið í salatbörum yfir 5°C í sem er engan veginn ásættanlegt. Melabúðin kom best út og þá Samkaup/Strax í vesturbæ Kópavogs. Lesa má um könnunina í heild á ns.is. undir Matvæli.  NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2007 Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.