Víkurfréttir - 16.08.2012, Qupperneq 10
FIMMTUDAGURINN 16. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR10
GRUNNSKÓLAR
REYKJANESBÆJAR
SKÓLASETNING Í GRUNNSKÓLUM REYKJANESBÆJAR
VERÐUR MIÐVIKUDAGINN 22. ÁGÚST 2012
Akurskóli
Kl. 09:00 2.-3.bekkur
Kl. 10:00 4.-7. bekkur
Kl. 11:00 8.-10. bekkur
Kl. 13:00 1. bekkur
Háaleitisskóli
Kl. 14:30 1.-7. bekkur
Heiðarskóli
Kl. 09:00 2.- 4. bekkur
Kl. 10:00 5.-7. bekkur
Kl. 11:00 8.-10. bekkur
Kl. 13:00 1. bekkur
Holtaskóli
Kl. 09:00 2.- 4. bekkur
Kl. 10:00 5.-7. bekkur
Kl. 11:00 8.-10. bekkur
Kl. 13:00 1. bekkur
Myllubakkaskóli
Kl. 09:00 2.- 4. bekkur
Kl. 10:00 5.-7. bekkur
Kl. 11:00 8.-10. bekkur
Kl. 13:00 1. bekkur
Njarðvíkurskóli
Kl. 09:00 2.-5. bekkur
Kl. 10:00 6.-7. bekkur
Kl. 11:00 8.-10. bekkur
Kl. 12:00 1. bekkur
Nemendur mæti sem hér segir:
Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á skólasetningu. Kennsla hefst
samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 23. ágúst. Innkaupalistar nemenda verða
aðgengilegir á heimasíðum skólanna.
Starfsmaður óskast í hlutastarf í skólasel Gerðaskóla. Um er að ræða gæslustarf með
yngri nemendum skólans frá lokum skóladags til um kl. 16:00.
Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn í krefjandi og jafnframt
gefandi starf með börnum.
Upplýsingar gefa skólastjórnendur í síma 422-7020. Umsóknir skulu berast til skólastjóra.
Umsóknir má senda í netfangið: skarphedinn@gerdaskoli.is.
STARFSMAÐUR ÓSKAST Í
SKÓLASEL GERÐASKÓLA
Eldur kom upp í gömlum skúr við gamla fótboltavöllinn við
Vallargötu í Njarðvík nýverið. Að
sögn slökkviliðsmanna á vettvangi
gekk greiðlega að slökkva eldinn
í skúrnum. Þeir höfðu á orði að
logað hefði ansi glatt en skjót við-
brögð björguðu því að eldurinn
Kviknaði í gömlu
blaðamannastúkunni
breiddist út en mikið gras er í
kringum skúrinn. Skúrinn gegndi
m.a. hlutverki blaðamannastúku
og sjoppan á Njarðvíkurvellinum
var einnig þarna til húsa. Grunur
leikur á að um íkveikju hafi verið
að ræða.
Crossfit íþróttin er sannarlega búin að ryðja sér til rúms hér
á Íslandi og þar eru Suðurnesin
engin undantekning.
Nú ætlar Crossfitfólk hér í Reykja-
nesbæ að láta gott af sér leiða og
halda sérstakt góðgerðar Wod
(workout of the day, æfingu dagins)
í dag þar sem þátttökugjald, sem
er 2.500 krónur, rennur til styrktar
FSMA félaginu á Íslandi.
Bjarni Sigurðsson ætlar sér að gera
gott betur en að taka þátt í Cross-
fit söfnunni á fimmtudag en hann
mun hlaupa í Reykjavíkurmara-
þoninu á laugardaginn ásamt konu
sinni Kristjönu Margréti Harð-
ardóttur. Kristjana er með SMA
taugahrörnunarsjúkdóm og hefur
síðastliðin þrjú ár þurft að styðj-
ast við hjólastól. Bjarni ætlar því
að hlaupa með hana í sérstökum
hlaupahjólastól.
Kristjana var ákaflega þakklát fyrir
hlýhug í hennar garð þegar blaða-
maður Víkurfrétta heyrði í henni.
„Þetta er bara stórkostlegt og ég
átti engan veginn von á þessu. Ég
er alveg æðislega þakklát fyrir þetta
framtak,“ sagði Kristjana.
Bjarni hljóp 10 km í Reykjavík-
urmaraþoninu í fyrra og safnaði
þá 100 þúsund krónum fyrir FSMA
samtökin.
„Hann hljóp í fyrra og stóð sig vel.
Hann hafði svo gaman af þessu að
hann langaði að leyfa mér að upp-
lifa þetta með honum í ár.“ Stefnan
var að hlaupa á næsta ári en Krist-
jana segir að síðan Bjarni hafi byrj-
að að æfa Crossfit í byrjun árs þá
hafi áætlanir þeirra breyst. „Hann
er bara kominn í svo gott form að
við ákváðum að taka þátt núna í
ár,“ en Bjarni ætlar aftur að fara 10
km, en nú er Kristjana með í för.
Kristjana greindist með sjúkdóm-
inn þegar hún var rúmlega eins árs
gömul. Hún hefur enn styrk í fótum
en hún hefur undanfarin ár þurft að
notast við hjólastól.
Crossfit tíminn til styrktar framtak-
inu fer fram í dag frá klukkan 17-
19 hjá Crossfit Reykjanesbæ. Þeir
sem vilja leggja málefninu lið geta
mætt þar á Holtsgötu 52 í Njarðvík
eða styrkt Bjarna og Kristjönu á
hlaupastyrkur.is.
Crossfit fólK lætur
gott af sér leiða
SKÓLASETNING
Stóru-Vogaskóli, Vogum
Skólaárið 2012-2013
Skólasetning verður miðvikudaginn 22. ágúst í Tjarnarsal
6.-10. bekkur mæti kl. 10
1.-5. bekkur mæti kl. 11
Foreldrar/forráðamenn velkomnir með nemendum.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 23. ágúst.
Starfsfólk Stóru-Vogaskóla