Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.08.2012, Side 24

Víkurfréttir - 16.08.2012, Side 24
AUSTUR Á KLAUSTUR Ein ferð á ári. Tilhlökkun allan ársins hring. Undirbúningur og eft-irvænting. Jarðhræringarnar trufluðu okkur og aðra veiðimenn á síðasta ári. Varla vært fyrir ösku og djöfulgangi. Búalið á Seglbúðum bauð ekki upp á neina útiveru né viðveru í öskurótinu. Söknuður af útiverunni og náttúrunándinni var farin að segja til sín. Frúin lifir ekki af árið án þess að komast austur á Klaustur. Þetta er hennar tími og ekkert kemur í veg fyrir nautnina nema náttúruöflin láti á sér kræla. Samveran og sameiningin tengir hópinn órjúfanlegum böndum. Allt fær að flakka og það sem sagt er, satt eða logið, er skilið eftir í hraunpollum Grenlækj- ar. Ægifegurð árinnar og náttúrulistaverkin í landslaginu draga fram dásemdir sálar- lífsins. Dró með mér Bændablaðið í sjoppunni á Hvolsvelli. Eins og gullmoli í höndum sunnlenskra sveitamanna. Sneisafullt af fróðleik og visku. Á forsíðu mátti lesa um góðar uppskeruhorfur þrátt fyrir þurrkatíð. Í miðopnu mátti lesa fróðleik um viðmiðunarverð stjórnar Landssamtaka sauðfjárbænda á lambakjöti fyrir komandi sláturtíð. Birt á heimasíðu þeirra. Haustið 2011 var meðalverð á lambakjöti til bænda 502 krónur á kíló. Þetta er verð að meðtöldum uppbótargreiðslum sem afurðarstöðvar greiddu. Stjórnin telur að verðið til bænda þurfi að hækka um heilar 48 krónur sem þýði um 9% hækkun. Mig sundlaði við þessar upplýsingar og sá fyrir mér að milliliðir og verslanir kríuðu heldur betur til sín þegar skrokkurinn í heild sinni til bænda leggst á tæpar níu þúsund krónur. Hryggurinn kostar mig helminginn af því verði út úr búð. Þá er allt annað eftir af dýrinu. Við vöknuðum í golu og sudda klukkuna langt gengna í tíu. Erlendur bóndi leit við í gættina og sá að mannskapurinn var hingað kominn til þess að njóta lífsins. Með árunum leggjum við minna upp úr veiði og meira upp úr værð. Fiskarnir hans koma aftur ár eftir ár og svei mér þá ef hann þekkir þá ekki með nafni. Silfurslegnir og doppóttir. Eins og fingraför sjávarguðsins. Hvísla til þín á bakkanum og heilsa með vænu narti. Kvöldvökurnar gerast ekki betri. Farið yfir helstu viðburði dagsins á meðan lamba-kjötið mallar á sjóðheitu grillinu. Hitaskipti, fataskipti, tímaskipti og pilluskipti eiga öll sínar merkingar. Eitthvað sem enginn skilur nema vera meðlimur. Hlátrasköll og gáski ríða ekki einteyming. Potturinn yljar kroppinn og kertaljósin loga eins og klæðin rauð. Í stjörnubjörtu himinhvolfinu. vf.is Fimmtudagurinn 16. ágúst 2012 • 32. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 FIMMTUDAGSVALS VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00 Tímapantanir í síma 426 8540 Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00 Frjáls mæting VEITINGASALAN Í LEIRU ER OPIN ALLA DAGA HAFIÐ SAMBAND Í SÍMA 421 4100 EÐA NETFANGIÐ GS@GS.IS Í HÁDEGINU ALLA DAGA SÚPA DAGSINS OG FERSKUR FISKUR KAFFIVEITINGAR, HAMBORGARAR, SAMLOKUR OG FLEIRA GÓÐGÆTI. OPIÐ ALLA DAGA FRAM Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í GS OG AÐRA. Fylgist með á sandgerdisdagar.is og sandgerdi.is. Þið finnið okkur einnig á facebook! VERIÐ VELKOMIN Á SANDGERÐISDAGA 20.-26. ÁGÚST Mánudagur - Nýir Sandgerðingar boðnir velkomnir - Djassveisla á Vitanum kl. 22.00 Þriðjudagur - Kósýkvöld kvenna í Sundlauginni kl. 20.00 Miðvikudagur - Setning Sandgerðisdaga í Grunnskólanum - Hátíðardagskrá í Safnaðarheimili kl. 19.00 - Aftan festival á Mamma Mía kl. 22.00 Fimmtudagur - Diskótek fyrir yngri kynslóðina - Lodduganga kl. 19.30 „Lítið en ljúft er veitt í Loddu“ Ganga fyrir fullorðna - Valdimar á Mamma Mía - Opið á Vitanum Föstudagur - Norðurbær – Suðurbær www.nordursudurbaer.is - Sápubolti - Sundlaugarpartý fyrir 13 ára og eldri kl. 20.00 Jón Jónsson og Friðrik Dór - Söngva og sagnakvöld - Hljóp á snærið á Vitanum - Axlabandið á Mamma Mía Laugardagur - Golfmót - Fjölskylduskemmtun frá morgni til kvölds - Hestar, andlitsmálun, leiktæki, skottsala, söguferð og margt fleira - Fræðasetrið - Listatorg - Ball með hljómsveitinni Í svörtum fötum í Samkomuhúsinu - Hljómsveitin Hrafnar á Vitanum Sunnudagur - Gönguferð - Messa Mikil óperuhátíð fer fram í Reykjanesbæ 24. og 26. ágúst. Nú er það óperan Eugence Onegin eftir Tschaikovsky sem verður flutt í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Þetta verður töluvert stærri uppfærsla en á TOSCA eftir Puccini sem flutt var í fyrra og sló svo eftirminnilega í gegn. Jóhann Smári Sævarsson sem sér um leikstjórn á verkinu og leikur eitt aðalhlutverka sagði í samtali við Víkurfréttir að sviðsmyndin væri með þeim glæsilegri sem sést hefði hérlendis en verkið verður flutt í bæði Hljómahöll og Stapanum á tveimur sviðum þar sem áhorfendur verða í miklu návígi við leikarana. Sýningin er gríðarlega metn- aðarfull og fjöldi fólks er að leggja fram óeigingjarnt starf til þess að þessi uppfærsla verði að veruleika. Jóhann ætlar að 400 gestir komist fyrir á hverri sýningu. Áhorfendur í návígi við leikarana Metnaðarfull óperusýning í Hljómahöll:

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.