Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.2004, Side 20

Ægir - 01.05.2004, Side 20
K Í T Ó S A N „Það má segja það að þessi kaup hafi haft ákveðinn aðdrag- anda. Fyrirtækin hafa starfað sam- an síðan 1998, Primex hefur verið aðalbirgi Vanson HaloSource fyrir kítósan. Á síðastliðnu ári lá fyrir að Vanson HaloSource yrði að hætta eigin framleiðslu, þar sem verksmiðja fyrirtækisins var úr sér gengin. Það lá því ljóst fyrir að fyrirtækið yrði annað hvort að setja upp nýja verksmiðju eða finna einhvern framleiðanda fyrir sig. Í framhaldinu tókum við upp viðræður við Bandaríkjamennina og niðurstaðan varð sú að Primex myndi kaupa kítósanhluta fyrir- tækisins. Til að byrja með verður framleiðslan áfram úti í Banda- ríkjunum, en við horfum til þess að flytja hana til Siglufjarðar þeg- ar fram í sækir,“ segir Haukur. Sterkari staða í Bandaríkjunum Í þessum kaupsamningi felst að Primex kaupir birgðir, einkaleyfi, vörumerki og framleiðslutækni Vanson HaloSource ásamt dreifi- leiðum fyrir kítósanafurðir, þar með talið vörumerkið LipoSan Ultra sem bundið er einkaleyfi. Vanson HaloSource hefur þróað, framleitt og selt sérhæfðar lausnir til notkunar við vatnshreinsun, í heilsuvörur og heilbrigðistækni. Lausnir fyrirtækisins byggja á kítósanformúlum og nýrri sótt- hreinsunartækni. Með þessum kaupum Primex fær sá hluti fyrir- tækisins sem nú er í Bandaríkjun- um betra svigrúm til þess að ein- beita sér að þróunarþættinum, jafnframt því sem Primex fær mun sterkari markaðsstöðu þar vestra heldur en félagið hefur haft til þessa. Aukin spurn eftir kítósan Primex, sem hóf framleiðslu á Siglufirði 30. apríl 1999, er stærsti framleiðandi á kítósan og -kítinafurðum í heiminum. Framleiðsluvörurnar eru notaðar í líftækni-, lyfja- og heilbrigðis- tækniðnaðinum - t.d. í sáraum- búðir. Framleiðsluhluti Primex er á Primex á Siglufirði hefur fest kaup á kítósanhluta Vanson HaloSource í Bandaríkjunum: Stærstir í kítósanfram- leiðslu í heiminum „Að sumu leyti hefur þetta verið nokkuð erfið fæðing, en fyrirtækið hefur verið í vexti og ég vænti þess að með þessum kaupum í Banda- ríkjunum séum við komin á beinu brautina,“ segir Haukur Ómarsson, framkvæmdastjóri Primex á Siglufirði, en fyrir nokkrum vikum festi Primex kaup á kítósanhluta fyrirtækisins Vanson HaloSource í Raymond í Washington, á vesturströnd Bandaríkjanna. Fullyrða má að þessi samningur marki ákveðin tímamót hjá Primex því hann styrkir fyrirtækið og tryggir stöðu þess sem leiðandi aðili á alþjóðlegum markaði fyrir kítósan. Haukur Ómarsson, framkvæmdastjóri Primex á Siglufirði. Úr vinnslusal Primex á Siglufirði.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.