Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.2004, Blaðsíða 26

Ægir - 01.05.2004, Blaðsíða 26
26 Æ G I S V I Ð TA L I Ð Undir lok síðasta árs var gert samkomulag um að setja Íshaf á stofn og fór rekstur félagsins í fullan gang undir þessu nafni 1. jan sl. Jafnframt var Berg- steinn Gunnarsson, vél - og rekstrartæknifræðingur, ráðinn til þess að stýra félaginu. Stærstu eigendur Íshafs eru í dag Fiskiðjusamlag Húsavíkur (43% eignarhlutur), Eskja á Eskifirði (34%) og Húsavíkurbær (11%). Aðrir smærri hlut- hafar eru Ker hf., Tryggingamiðstöðin hf., Festi hf., Landsbankinn og Vísir hf. Stjórnendur Eskju ákváðu að leggja niður rækju- vinnslu á Eskifirði og leggja kvóta og skip inn í Íshaf og eignast þannig stóran hlut í félaginu. Þrjú skip Eskju, Votaberg SU, Guðrún Þorkelsdóttir SU og Hólmanes SU, færðust til Íshafs, en á móti tók Eskja yfir útgerð Asks ÞH (áður Askur ÁR). Votabergið fékk nafnið Aldey ÞH, Guðrún Þorkelsdóttir fékk nafnið Seley ÞH, Hólmanesið varð Húsey ÞH og fjórða rækjuskipið í flota Íshafs heitir Flatey ÞH (áður Gissur ÁR). Erfiður róður „Já, það er óhætt að segja að útgerð rækjuskipa og rekstur rækjuvinnslu er í dag mjög erfiður. Þetta er mikil brekka og það hefur komið mér á óvart hversu langt niður verð fyrir rækjuafurðir hefur farið. Og það kemur ekki síður á óvart að enn skuli vera stöðug pressa á frekari lækkanir. Smáa rækjan hefur verið að seljast ágætlega og fer jafnóðum og það sama má segja um millirækjuna, bæði einfrysta og tví- frysta. Það er helst í stóru rækjunni sem salan er treg. En þrátt fyrir að ágætis spurn sé eftir smærri rækjunni og millirækjunni fæst ekki nægilega gott verð fyrir hana. Við höfum verið að fá meira af stærri rækju inn í verksmiðjuna en áður, sem kemur til af því að vinnsluskipin, sem eru m.a. á Flæmska hattinum og í Barentshafinu, eiga erfiðara með að selja stærri Rækjuverðið er lágt og þrýstingur á frekari lækkanir: Gerum ekki betur en að halda sjó - segir Bergsteinn Gunnarsson hjá Íshafi hf. - stærstu rækjuvinnslu landsins Í kjölfar uppstokkunar á eignarhaldi í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur á síð- asta ári var sett á stofn öflugasta rækjuframleiðslufyrirtæki landsins - Íshaf hf. Jafnframt var skilin að rækjuvinnsla og bolfiskvinnsla, sem áður voru undir hatti Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Íshaf er sem sagt núna með rækjuvinnsluna á sinni könnu, en Fiskiðjusamlagið, sem er 100% í eigu Vísis hf., er með bolfiskvinnslu. Það er ekki beint hægt að segja að rækjuvinnsla á Íslandi hafi gengið vel á síðustu misserum, verksmiðjurnar eru að glíma við stöðugt lækkandi afurðaverð á okkar helstu mörkuðum erlendis og ekki léttir það róðurinn þessa dagana í útgerð rækjuskipa, frekar en annarra skipa, að olíuverð hefur snar- hækkað. Ægir sótti heim Íshaf á Húsavík og ræddi við framkvæmda- stjórann, Bergstein Gunnarsson, um stöðu rækjuvinnslunnar og fram- tíðarhorfur. Flatey ÞH, eitt af rækjuskipum Íshafs, við bryggju á Húsavík.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.