Ægir - 01.05.2004, Blaðsíða 37
37
B E I T U F R A M L E I Ð S L A
Einkaleyfi í innanlandsmark-
aði í höfn
Engar fyrirmyndir eru erlendis frá
í beituframleiðslunni. „Nei, það
er ekki. Hér innanlands fengum
við hjá Aðlöðun hf. einkaleyfi á
þessari framleiðslu um miðjan
apríl. Erlendis höfum við ekki
spurnir af samskonar framleiðslu-
ferli hvorki í beitu-, fóður- né
matvælaiðnaði. Reyndar höfum
við sótt um einkaleyfi erlendis til
allra þessara þátta og það einka-
leyfisferli er nú í gangi.“
Sveinbjörn orðar það svo að
hvernig sem þetta verkefni fari,
þá sé það hans mat að unnið hafi
verið ákveðið afrek varðandi
tækniþróun o.fl. „Þetta er tví-
mælalaust merkilegt verkefni og
ef okkur tekst að fjármagna það
vel, þá tel ég að það geti orðið
enn merkilegra. Ef við fáum inn í
þetta þá fjármuni sem við teljum
nauðsynlega á þessu stigi, þá er
það mín bjargfasta skoðun að við
verðum fljótlega farnir að blanda
okkur í beitu- fóður- og matvæla-
framleiðslu á heimsmælikvarða.“
Stór beitumarkaður
fyrir vestan
Sveinbjörn segir að auk innan-
landsmarkaðarins séu þeir hjá Að-
löðun hf. vissulega að horfa til út-
flutnings á beitu en þó aðallega á
tækni og þekkingu. „Það var
hreint ekki tilviljun að við sett-
um verksmiðjuna niður á Ísafirði.
Línuútgerðin stendur sterkum
fótum í mörgum sjávarplássum á
Vestfjörðum og ég reikna með því
að á þessu svæði sé smábátaflot-
inn að nota um 100 milljón beit-
ur á ári. Það leit því vel út að
staðsetja verksmiðjuna í nágrenni
við þennan markað. Í annan stað
var Norðurtangahúsið til reiðu
með góðum frystigeymslum, sem
eru nauðsynlegar fyrir slíka starf-
semi - bæði fyrir hráefni og fram-
leiðsluvörur.“
Sem stendur eru þrír menn
starfandi í verksmiðjunni á Ísa-
firði, hvað sem síðan kann að
verða því húsnæðið býður upp á
margföldun tækjabúnaðar.
En telur Sveinbjörn að forsenda
áframhaldandi þróunar þessa
verkefnis sé að nýtt fjármagn
komi inn í reksturinn? „Það skal
ég ekkert segja til um. Hins veg-
ar er það mín skoðun að þessi
framleiðsluaðferð muni innan tíð-
ar ryðja sér til rúms í beitufram-
leiðslu, fóðurgerð og jafnvel í
matvælaframleiðslunni á verald-
arvísu. Frá upphafi þessa verkefn-
is hafa verið settar í það nokkur
hundruð milljónir króna, aðallega
af framkvæmdaaðilum verkefnis-
ins, og nú liggur fyrir að þetta er
raunhæft dæmi. Við sjáum fyrir
endann á verkefninu tæknilega og
þekkingarlega tel ég að það gefi
mikla möguleika, vegna þess ein-
faldlega að það gefur kost á svo
mörgu í framhaldinu.“
Sveinbjörn Jónsson: „Núna erum við að framleiða staðlaðar beitur fyrir króka númer 7 og 11.“