Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.2004, Blaðsíða 48

Ægir - 01.05.2004, Blaðsíða 48
48 H O R F T U M Ö X L svartar skellur á pappírinn. Mis- fellur og klettar á botninum, sem komu fram á dýptarmælinum, held ég hinsvegar að hafi ekki komið þeim á óvart, því klettar og hryggir á hafsbotni sem báru margvísleg nöfn voru þessum mönnum fyrir löngu kunn áður en farið var að skoða mynd af þeim á dýptarmælum. Og ef marka má sögurnar, þá gáfu þessir staðir margfalt meira af sér fyrr á árum þegar varla þurfti að bleyta færið til að moka upp fiski. „Það var fiskur á hverj- um öngli“ er setning sem oft heyrðist þegar verið var að segja frá róðrum á slóðir sem lítinn sem engan fisk gefa í dag. Það hlýtur að hafa verið erfitt að þræla öllum þessum fiski um borð þegar færið var dregið með handafli, engar rúllur, hvað þá tölvustýrðar raf- magnsrúllur. Enda voru hendurn- ar á þessum gömlu mönnum eins og sterkbyggðir hrammar sem báru þess merki að hafa rispast og skorist í þessum átökum. Og ekki var minna átak að landa aflanum sem borinn var á bakinu langa leið frá bátalæginu, upp fjöruna og sjávarbakkann þar sem fisk- verkunarhúsin stóðu. Langur vinnudagur Líklegt er að vinnudagurinn hafi oft verið orðinn töluvert langur þegar öllu þessu var lokið. Mörg- um finnst eflaust sem mikill molbúaháttur hafi verið við lýði þar sem svona vinnubrögð tíðk- uðust, en staðreyndin er önnur og þessir menn lifðu einfaldlega á tímum og bjuggu við aðstæður sem buðu ekki upp á ríkulegri útbúnað eða meiri tækni. Sjálfur ber ég mikla virðingu fyrir þess- ari kynslóð og þeirri hörku og þrautsegju sem þurfti til að kom- ast af og sjá fyrir sér og sínum. Oft hef ég nagað mig í handar- bökin yfir því að hafa ekki tekið frásagnir gömlu mannanna upp á band og varðveitt þær. Mikil söguleg verðmæti glatast þegar menn, sem búa yfir þessari vit- neskju, falla frá og ef til vill er allt of lítið gert að því að varð- veita frásagnir manna sem lifðu tíma sem fyrir löngu eru liðnir. En litríkar og skemmtilegar frá- sagnir lifa í hugum fólks og ekki er vitlaust að gefa sér tíma til að koma þeim frá sér á blað, öðrum til skemmtunar og fróðleiks. Aðalsteinn Ólafsson og Jón Björnsson á vélbátnum Baldri frá Borgarfirði eystra. Ólafur Ágústsson og Baldur Guðlaugsson við löndun úr vélbátnum Eysteini á Borgar- firði eystra.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.