Ægir - 01.05.2004, Side 35
35
B E I T U F R A M L E I Ð S L A
Aðlögun ehf., félag í eigu
Sveinbjörns og Elínar Bergsdótt-
ur, eiginkonu hans, festi kaup á
Norðurtangahúsinu undir lok árs
2002 af Þróunarsjóði sjávarút-
vegsins og síðan hefur verið unnið
að því að setja þar upp fullkomna
beituframleiðslulínu, sem á und-
anförnum vikum hefur verið
keyrð og gefið góða raun. Svein-
björn segir að það sem af er lofi
verksmiðjan góðu, tæknilega sé
hún vel búin, þótt vissulega megi
alltaf gera þar bragarbót. „En ég
skal alveg viðurkenna að fjárhags-
legt svigrúm okkar er takmörk-
unum háð, enda vil ég segja að
við höfum ekki fengið verðugan
stuðning við þetta verkefni. Þó
vil ég taka það skýrt fram að
sumir aðilar hafa stutt okkur í
þessu verkefni, en hins vegar er
hér um að ræða svo stórt við-
fangsefni og án fyrirmyndar að
betur má ef duga skal,“ segir
Sveinbjörn.
Átta ára verkefni
Forsaga þessa máls er sú að veið-
arfæraverslunin Dímon í Reykja-
vík hóf að vinna að þessu verkefni
árið 1996. Evrópusambandið
kom síðan með fjárhagslegan
stuðning inn í verkefnið og
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
tengdist því líka. Um áramótin
2000 var Sveinbjörn Jónsson ráð-
inn verkefnisstjóri að verkefninu,
en hann hafði lengi verið sjómað-
ur vestur á Suðureyri við Súg-
andafjörð. „Við fórum í tilraunir
árið 2001 sem sýndi okkur fram
að á beituframleiðsla væri vel
möguleg. Í framhaldinu settum
við upp litla tilraunaverksmiðju í
kjallaranum hjá Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins og nú er svo
komið að búið er að setja upp al-
vöru verksmiðju vestur á Ísafirði.
Þessi verksmiðja er fullnægjandi
sem framleiðslutæki til þess að
framleiða beitu í nægilegu magni
til að það geti borið sig. Haustið
2002 framleiddum við á þremur
mánuðum um 30 þúsund beitur,
en það magn getum við nú fram-
leitt á þremur klukkustundum.
Afkastagetan er því umtalsverð,“
segir Sveinbjörn og bætir við að
þessi mikla afkastageta geri það
að verkum að auðvelt sé og til-
tölulega fljótlegt að gera prufur
með nýjar tegundir af beitum í
umtalsverðu magni. „Til þessa
höfum við fyrst og fremst einbeitt
okkur að hefðbundnum beituteg-
undum og því sem þeim líkist, en
möguleikar okkar í hráefnisnotk-
un eru þó nánast endalausir.“
Beiturnar eru staðlaðar í stærð
og lögun. „Núna erum við að
framleiða staðlaðar beitur fyrir
króka númer 7 og 11,“ segir
Sveinbjörn.
Sveinbjörn Jónsson, forsvarsmaður beituverksmiðju á Ísafirði:
Tel að við höfum nú
þegar unnið ákveðið afrek
- en aukið fjármagn vantar til að ljúka fjármögnun og styrkja reksturinn
„Tæknilega hefur þetta gengið prýðilega. Við erum komnir með verk-
smiðju á Ísafirði sem getur framleitt beitu í umtalsverðu magni. Það
hefur verið lagt í mikla vinnu við rannsóknir og sumt af þeirri vinnu á
sér ekki hliðstæðu í veröldinni, og nýtist vonandi við val á hráefni í
framtíðinni. Fjárhagslega er þetta dæmi hins vegar nokkuð snúið, það
er ljóst að töluverða fjármuni skortir inn í reksturinn,“ segir Sveinbjörn
Jónsson, sem er í forsvari fyrir beituverksmiðju Aðlöðunar hf. í Norður-
tangahúsinu á Ísafirði.
Sveinbjörn Jónsson fyrir framan
Norðurtangahúsið á Ísafirði.
Myndir: Halldór Sveinbjörnsson.