Ægir - 01.04.2005, Side 42
markmiði að koma rafrænum við-
skiptum á nýtt stig. „Lögð var
áhersla á að útkoman nýttist
hverjum og einum, það varð drif-
kraftur hópsins því þá voru mest-
ar líkur á árangri. Það hefði verið
auðvelt fyrir eitthvert fyrirtækj-
anna að kaupa lausnina, en það
hefði ekki leitt til þess árangurs
sem nú hefur náðst,“ segir Krist-
ján Hjaltason.
Dæmi um samskipti
Eftirfarandi varpar eilitlu ljósi á
rafræn samskipti áðurnefndra fyr-
irtækja:
1. Pöntun fer úr upplýsinga-
kerfi SH fyrirtækja erlendis í
gegnum Iceport, vefgátt SH, í
WiseFish kerfi Brims. Brim send-
ir staðfestingu úr sínu kerfi til
baka sömu leið.
2. Reikningur sendur úr WF
kerfi Brims til SH.
3. Hleðslulisti með upplýsing-
um um afhendingu Brims er
sendur úr WF kerfi Brims í upp-
lýsingakerfi Eimskips og til SH
þjónustu.
Tæknileg lausn verkefnisins
byggist á XML samskiptum á
milli kerfa. Skeytin verða til í
upplýsingakerfum fyrirtækja og
Síminn sér um að senda þau yfir
internetið milli þeirra. Búin hefur
verið til vörpun í kerfi Brims
þannig að félagið getur átt sams-
konar samskipti við aðra sölu- og
flutningsaðila.
Meiri hraði og lækkun
kostnaðar
„Þýðing þessarar lausnar er mikil
fyrir alla aðila,“ segir Kristján
Hjaltason. „Lausnin byggir á því
að upplýsingar eru slegnar aðeins
einu sinni inn í tölvu fyrsta aðila
og síðan eru þær fluttar rafrænt á
milli upplýsingakerfa þar sem
hvert fyrirtæki bætir við nýjum
upplýsingum eftir því sem við á
og sendir áfram á næsta fyrirtæki.
Þessi lausn leiðir til meiri hraða í
samskiptum, fækkunar mistaka,
öruggari miðlunar upplýsinga,
rekjanleiki á öllum stigum er
tryggður og færri deilur um
samninga til að nefna helstu kost-
ina. Þetta allt leiðir til lækkunar
á kostnaði.“
42
K R O S S G Á TA N
R A F R Æ N S A M S K I P T I
Maritech er eitt þeirra fyrirtækja sem hefur unnið að þróun Rafbrims. Hér eru tveir
fulltrúar Maritech - Jón Kristjánsson (til hægri) og Grétar Örlygsson.
aegirapríl2005 6.5.2005 11:59 Page 42