Ægir - 01.07.2006, Blaðsíða 10
10
F I S K I D A G U R I N N M I K L I
Ólýsandi samkoma
Engin leið er að lýsa sam-
komunni á Dalvík í máli eða
myndum svo vel sé. Enginn
trúir því hvernig hún er í
raun nema sá er upplifir hana
sjálfur. Forseti Íslands sagði
að þarna hefði verið slegið
saman 17. júní, sjómannadeg-
inum og mörgu fleiru í eina
allsherjarhátíð sem ætti sér
enga hliðstæðu í víðri veröld.
Mikið er til í því. Alla vega er
sjálf hugmyndin geggjuð og
enn geggjaðra er að Dalvík-
ingum skyldi detta í hug að
hrinda henni í framkvæmd.
Gestunum bara fjölgar ár frá
ári. Fyrst komu 5.700 manns
til Dalvíkur en Fiskidagsgestir
í ár eru taldir hafa verið um
35.000 talsins. Menn hljóta að
velta fyrir sér: Hvar endar
þetta? Aðstandendur Fiski-
dagsins mikla yppta öxlum
og halda sitt strik, sem þeir
verðskulda þakklæti fyrir.
Það þarf nefnilega sterk bein
til að þola áreiti alls kyns fyr-
irtækja sem vilja slást í hóp-
inn og sækja að tugþúsund-
um Fiskidagsgesta í því skyni
að búa sér til bissness. Sjarm-
inn færi hins vegar fljótt af
Fiskideginum ef sölutjöld og
básar risu á hafnarsvæði Dal-
víkinga og samkomugestir
þyrftu að ganga um með
opin seðlaveski. Hvað þá ef
stórfyrirtækin kokgleyptu fyr-
irbærið og gerðu að sínum
eins og gerst hefur með úr-
valsdeildina í fótbolta,
Reykjavíkurmaraþonið og
fleira og fleira.
Súpukvöldið mikla sló í gegn
Sjálfur Fiskidagurinn mikli er
drifinn áfram af sjálfboða-
vinnu Dalvíkinga í hundraða-
tali og af sjávarútvegsfyrir-
tækjunum á staðnum. Í fyrra
bættist við Súpukvöldið mikla
í aðdraganda Fiskidagsins,
einstaklega velheppnað upp-
átæki og skemmtilegt. Fjöl-
Farsælir skip-
stjórar heiðraðir
Á Fiskidaginn mikla voru tveir skipstjórar á Dalvík, Helgi
Jakobsson og Sigurður Haraldsson, heiðraðir fyrir áratuga
farsæl störf sín að sjávarútvegi á Dalvík. Svanfríður Inga
Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, heiðraði skipstjór-
ana fyrir hönd framkvæmdanefndar Fiskidagsins.
Í máli hennar kom fram að Helgi Jakobsson væri heiðr-
aður fyrir störf sín við sjávarútveg til sjós og lands og auk
þess sem hann hafi miðlað þekkingu sinni til þróunar-
landa, en hann starfaði um tíma hjá Sameinuðu þjóðunum
og var þá fulltrúi FAO við skipulagningu veiða á Indlandi
og í Tyrklandi og miðlaði þar reynslu og þekkingu Íslend-
inga á fiskveiðum til annarra þjóða.
Helgi Jakobsson hóf ungur sjósókn og var skipstjóri á
ýmsum skipum sem stunduðu bæði síldveiðar og bolfisk-
veiðar. Síðar rak hann fiskverkunar- og útgerðarfyrirtæki á
Dalvík um nær tveggja áratuga skeið.
Svanfríður Inga sagði að Sigurður Haraldsson væri
heiðraður fyrir störf sín við sjávarútveg á Dalvík, sérstak-
lega fyrir farsælan skipstjórnarferil í fjóra áratugi.
Hann hóf líka ungur sjósókn og var skipverji á ýmsum
skipum, bæði við síldveiðar og bolfiskveiðar. Árið 1967
varð Sigurður skipstjóri hjá Útgerðarfélagi Dalvíkinga hf,
sem nú er hluti af Samherja hf. og starfaði hann þar í nær
fjörutíu ár.
Í júlí í sumar lét hann af skipstjórn á skuttogaranum
Björgúlfi EA 312 en þar hafði hann verið skipstjóri frá því
togarinn kom nýr til Dalvíkur fyrir um 30 árum síðan.
Svanfríður Inga lét þess getið að við starfslok Sigurður hafi
það verið reiknað út að skipið hafði á þessum tíma aflað
um 110.000 tonna sem að útflutningsverðmæti væru um 30
milljarðar króna.
Togskipið sem Sigurður tók fyrst við hjá Útgerðarfélagi
Dalvíkinga, árið 1967, bar líka nafnið Björgúlfur. Sá sem
sótti þann Björgúlf, sem var svokallaður tappatogari, til
Austur-Þýskalands, þar sem hann var smíðaður, og var
skipstjóri á honum til að byrja með, var einmitt Helgi Jak-
obsson. Það var því skemmtileg tilviljun að þessir tveir
skipstjórar skyldu vera heiðraðir við sama tækifæri fyrir
störf sín í sjávarútvegi á Dalvík.
Helgi Jakobsson Sigurður Haraldsson.
Rúnar Júlíusson, rokkgoðið frá Kefla-
vík, á fullu gasi á sviðinu.
Fjöldi krakka reyndi fyrir sér í bryggju-
dorgi.
aegirgust06_lagad.qxp 9/11/06 9:42 AM Page 10