Ægir - 01.07.2006, Blaðsíða 25
25
S J A L D S É Ð I R F I S K A R
Fengs ÞH 207 á 180 m dýpi í Eyjafjarðarál.
Litla brosma er nokkuð algeng undan
Suðurlandi, en veiðist nú einstöku sinnum
undan Norðurlandi.
Lýr, Pollachius pollachius
Vorið 2005 veiddist lýr í hrognkelsanet
Fengs ÞH 207 út af Fjörðum. Í júní fékk
Harðbakur EA tvo, 68 og 95 cm langa, í
botnvörpu á Stokksnesgrunni og í desember
veiddi Dala Rafn VE þann fjórða undan
Ingólfshöfða.
Tuðra, Himantolophus albinares
Alls veiddust fjórar tuðrur í flotvörpu
Snorra Sturlusonar VE á Reykjaneshrygg í
maí. Þær voru 14,5-24 cm langar.
Lúsífer, Himantolophus groenlandicus
Í maí veiddust þrír í flotvörpu Snorra
Sturlusonar VE á Reykjaneshrygg rétt við 200
sjómílna fiskveiðilögsöguna, þeir voru 25-45
cm langir.
Litli lúsífer, Himantolophus mauli
Tveir fiskar veiddust í flotvörpu Snorra
Sturlusonar VE á Reykjaneshrygg (61°33’N,
28°23’V), þeir voru 19 og 23 cm langir.
Drekahyrna, Chaenophryne draco
Í maí veiddist ein í flotvörpu Snorra
Sturlusonar VE á Reykjaneshrygg (61°39’N,
28°56’V), hún var 12 cm löng.
Slétthyrna, Chaenophryne longiceps
Um miðjan júní veiddust tvær slétthyrnur í
botnvörpu á grálúðuslóðinni vestur af Víkurál
(65°20’N, 28°04’ V og 65°29’N, 28°02’V), þær
voru 11 og 18,5 cm langar. Veiðiskip var
Guðmundur í Nesi.
Svarthyrna, Oneirodes eschrichtii
Ein 12,5 cm löng svarthyrna veiddist í maí
í flotvörpu Snorra Sturlusonar VE á
Reykjaneshrygg (61°33’N, 28°28’V).
Sædjöfull, Ceratias holboelli
Kaldbakur EA veiddi í apríl 80 cm langa
sædjöfulshrygnu með áfastann hæng á 380 m
dýpi SV af Reykjanesi (63°21’N, 25°40’V). Í
maí veiddust þrír í flotvörpu Snorra
Sturlusonar VE á karfslóð á Reykjaneshrygg,
þeir voru 30-37 cm langir. Í júní veiddust
tveir í botnvörpu Guðmundar í Nesi RE á
900-1000 m dýpi á grálúðuslóð, þeir voru 37
og 88 cm langir.
Surtur, Cryptopsaras couesii
Einn surtur veiddist í maí í flotvörpu
Snorra Sturlusonar VE á Reykjaneshrygg
(61°42’N, 28°40’V), hann var 24 cm langur.
Surtla, Linophryne lucifer
Í mars veiddi Sturlaugur H. Böðvarsson
AK surtlu í Rósagarðinum (63°50’N, 12°35’V)
sem var 22 cm löng. Í maí veiddist ein 15 cm
löng í flotvörpu Snorra Sturlusonar VE á
Reykjaneshrygg rétt við 200 sjómílna
fiskveiðilögsöguna (61°33´N, 28°23´V)
Hornfiskur, Belone belone
Leifar af hornfiski komu upp úr
þorskmaga úti fyrir Austfjörðum í janúar.
Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar, en miðað
við stærð haussins gæti hornfiskurinn hafa
verið allt að 70 cm langur í lifanda lífi.
Gráröndungur, Chelon labrosus
Í byrjun september veiddist 50 cm í net
við Grjóteyri í Borgarfirði.
Rauðskoltur – Þessi sjaldséða tegund hefur fundist
víða um heimsins höf, þó sennilega ekki norðar en
hér við Ísland.
Rauðskoltur, Rondeletia loricata
Í janúar veiddi Guðmundur í Nesi RE einn
rauðskolt í botnvörpu á grálúðuslóðinni
vestur af Víkurál (Nátt. Kóp.).
Rauðskinni, Barbourisia rufa
Togarinn Barði NK veiddi rauðskinna í
maí, í botnvörpu á 950 m dýpi á grálúðuslóð
vestan Víkuráls (65°25´N, 28°06´V). Hann var
41 cm á lengd. Í sama mánuði veiddi Snorri
Sturluson VE rauðskinna, 37 cm langan, í
flotvörpu djúpt SV af Reykjanesi (61°33´N,
28°28´V). Í júní veiddi Örfirisey RE þann
þriðja, einnig í flotvörpu, á svipuðum slóðum
(61°55´N, 29°25´V) sem mældist 34 cm
langur.
Bjúgtanni, Anoplogaster cornuta
Í maí veiddust tveir bjúgtannar, 18 cm
hvor, á karfaslóðinni á Reykjaneshrygg.
Veiðiskip var Snorri Sturluson VE. Þá veiddi
Guðmundur í Nesi RE einn 15 cm langan á
grálúðuslóðinni.
Dökksilfri – Alltaf öðru hvoru veiðist þessi tegund við
Ísland, einkum á Reykjaneshrygg en einnig á Íslands-
Færeyjahrygg.
Dökksilfri, Diretmichthys parini
Í janúar veiddist 40 cm dökksilfri í
botnvörpu Snorra Sturlusonar VE á 290 m
dýpi í Hvalbakshalli (64°21´N, 12°27´V) og í
maí veiddi sama skip 27 cm fisk í flotvörpu á
Reykjaneshrygg. Ásgrímur Halldórsson SF
fékk 34 cm langan dökksilfra í kolmunna-
vörpu á Íslands-Færeyjahryggnum (63°24’N,
11°53°V) í maí. Í júní veiddi Guðmundur í
Nesi RE 32 cm langan dökksilfra á grálúðu-
slóðinni vestur af Víkurál og Bylgja VE fékk
einn 35 cm fisk í Grindavíkurdjúpi í des.
Búrfiskur, Hoplostethus atlanticus
Guðmundur í Nesi RE veiddi í júní 17 cm
langan búrfisk á 900-1000 m dýpi á
grálúðuslóðinni (65°29’N, 20°02’V). Þó svo
að búrfiskur hafi e.t.v. ekki verið talinn með
sjaldgæfum fiskum, þá er ekki oft sem þeir
sjást svona litlir.
Stóra sænál – Á undanförnum árum hefur óvenju
mikið verið um stóru sænál við Ísland.
Stóra sænál, Entelurus aequoraeus
Í janúar fannst stórasænál á netum við
fiskeldiskví í Eyjafirði, og í mars veiddi
Sturlaugur H. Böðvarsson AK aðra í
Rósagarði.
Tómasarhnýtill, Cottunculus thomsonii
Í mars veiddist 10 cm langur
tómasarhnýtill á 100 m dýpi NV af
Bjargtöngum (65°38’N, 25°16’V) og í júní 46
cm langur á 900-1000 m dýpi á
grálúðuslóðinni (65°29’N, 28°02’V). Þann fyrri
veiddi Sturlaugur H. Böðvarsson AK, en
Guðmundur í Nesi RE þann seinni.
Ennisfiskur – Við Ísland virðist ennisfiskur einkum
halda sig á Reykjaneshrygg og djúpt vestur af
landinu.
Ennisfiskur, Platyberyx opalescens
Tveir ennisfiskar bárust árið 2005. Þann
fyrri veiddi Snorra Sturlusonar VE í flotvörpu
í maí við Reykjaneshrygg, þann seinni
Guðmundur í Nesi RE á grálúðuslóðinni
vestur af landinu í júní.
Sars-álbrosma, Lycenchelys sarsi
Sturlaugur H. Böðvarsson AK veiddi 10
cm langa sars-álbrosmu á 550 m dýpi í
Rósagarði í maí.
Árið 2005 veiddist makríll allt í kringum landið.
Makríll, Scomber scombrus
Árið 2005 bárust óvenjulega margar
tilkynningar um makríl við Ísland. Hans varð
vart allt í kringum landið, einna mest þó fyrir
Norðurlandi þar sem hann ánetjaðist gjarnan
í þorska- og ýsunet. Hann veiddist einnig í
silunganet, á sjóstöng og handfæri og í botn-
og flotvörpu. Mest virðist hafa verið um hann
við landið í ágúst og september og voru um
380 kg skráð sem landaður afli. Þeir makrílar
sem mældir voru, voru flestir á lengdarbilinu
37-44 cm.
Eins og sjá má á þessu kort veiddist makrill víða
kringum landið árið 2005. Einkum veiddist makríll
fyrir austan og norðan land, en minnst fannst af
honum við suðurströndina.
aegirgust06_lagad.qxp 9/11/06 9:42 AM Page 25