Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 7

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 7
I. árg. 1. tbl. 1938. MAL OG MENNING Við lifum á öld hinnar fullkomnu tækni. Það er orðið léttara en nokkru sinni áður að vinna auðinn úr skauti náttúrunnar. Löndin eru orðin ríkari, hönd mannsins og hugvit slyngari að knýja náttúruna til óþrjótandi gjafa. Tæknin hefir skapað nýja atvinnuhætti og ný menningarskilyrði. Einmitt nú eiga sér stað i heiminum stórkostlegri framfarir en nokkur dæmi þekkjast til áður úr sögu mannkynsins. Nú er svo langt koniið þroska og hæfni mannsins, að hver einstaklingur ætti að liafa möguleika til að lifa ríkulegu og menntandi lífi. Nú eru ekki tímar til böl- sýni eða úrræðaleysis, heldur bjartsýni og viturlegrar notkunar á valdi tækninnar i þjónustu mannfélagsheildarinnar. Nú eru tímar til aukinnar þróunar, en ekki tortímingar á lifi og menn- ingu þjóðanna. Hér á landi eigum við að fagna hinu liraðasta framfaraskeiði, sem íslenzka þjóðin hefir lifað. Tuttugasta öldin hefir gerbreytt aðstöðu íslendinga til að lifa betra og menntaðra lifi. ísland er rikt. Þjóðin á orðið margfalt betri hæfni til að uppskera auð þess. Öll menningarskilyrði hafa stórum batnað. í rauninni höf- um við nú í fyrsta skipti i sögu þjóðarinnar eignazt möguleika til verulégrar menningarstarfsemi, eftir þvi sem smæð okkar og aðstaða frekast leyfir. Við höfuin líka á hverju menningarsvið- inu af öðru séð spretta nýja viðleitni til starfs og afreka. Framlak, bjartsýni og dirfska hefir stjórnað gerðum íslendinga á þessari öld. Við höfum enga ástæðu til að hvika frá þessari stefnu ald- arinnar, sem fært hefir okkur margs konav sigra. Siðustu árin gætir þess hins vegar hjá forystumönnum þjóð- arinnar á sviði stjórnmála og atvinnumála, að vilja takmarka framfarir og menningarstarfsemi i hverri grein af annarri. Við sjáum úrræðaleysi þessara manna, verðum að hlusta á harmtölur þeirra. Þau miklu skilyrði til atvinnu og menningar, sem hér hafa þróazt, eru ekki notfærð. Við lieyrum fjargviðrast yfir vandræðum, fjárþröng og kreppu. En hvers vegna kreppa og kreppuhjal? Slíkur bölmóður er ósamboðinn okkar timum. Hvern- ig geta menn ætlazt til að þjóðin taki liann alvarlega? Því eru S*1 'l|l 1

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.