Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 13

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 13
Mál og menning á hundruð talsmanna um allt land. Það er ekki einungis inikilsvert starf þeirra einstöku dugn- aðarmanna, sem safnað hafa tugum nýrra félaga, heldur engu síður fjölda annarra, sem unnið hafa að útbreiðslu félagsins. Við vitum ekki tölu á öllum þeim, sem hafa sent okkur umsóknir með nöfnum 2, 4, 6 og jafnvel 10 raanna, er þeir hafa safnað úr kunningjahóp sínum. Þessir menn allir eiga miklar þakkir skilið frá féiaginu. Það er einmitt með þessu áhugamikla samstarfi fjöld- ans, sem auðvelt er að vinna stóra sigra. Mál og menning hefir fengið verulegan hljómgrunn hjá þjóðinni. Félagið á hundruð talsmanna um allt land, og þeim fer allt af fjölgandi. Þess vegria getur félagið vaxið svona ört. Og nú skulum við hugsa okkur, að allir félagar i Mál og menning tækju þá ákvörðun, að útvega a. m. k. einn nýjan félagsmann á þessu ári, þá teldi Mál og menn- ing i lok ársins ekki 4000, heldur yfir 5000 félagsmenn. Á þessu samtaka starfi allra félagsmanna byggir Mál og menning traust sitt. Afgreiðslustarfið og skilvísi félagsmanna. Afgreiðslan á bókum félagsins hefir farið prýðilega úr hendi. Við höfum ekki dæmi nema um ein mistök, að bók var send í póstkröfu til konu, sem greitt hafði árgjaldið fyrirfram. Hvað starf þetta hefir heppnazt vel, á félagið fyrst og fremst að þakka Eiríki Baldvinssyni, kennara, sem af einstakri reglusemi hefir séð um spjaldskrár félagsins. Þá er sérstaklega vert að þakka skilsemi og orðheldni félags- manna. Það brást varla nokkur maður, sem hafði látið innrita sig í félagið. Félagsmenn greiddu árgjöld sín undantekningar- laust skilvíslega og allur þorri þeirra á réttum gjalddaga. í trausti þess, að félagsinenn hafi framvegis fullan skilning á þvi, hvað öll reglusemi í greiðslu er óhjákvæmileg nauðsyn fyrir félagið, þá sendum við öllum kröfulaust fyrstu bók þessa árs, hvort sem þeir hafa greitt tillagið eða ekki, og þó komið sé dálítið fram yfir gjalddaga, sem er 1. marz. Við getum vel skilið, að það sé erfitt fyrir marga að greiða svona snemma árs. En við viljum skora á alla félagsmenn, sem ráð hafa á, að borga árgjaldið það allra fyrsta. Það gerir starfsemi félags- ins mörgum sinnum léttari. Bezt væri og ódýrast fyrir báða aðila, að það þyrfti aldrei að senda bækurnar í póstkröfu, að félagsmenn sendu árgjald sitt til okkar í póstávísun i tæka tið,

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.