Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 21

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Blaðsíða 21
Tnikið, bæði í „Timarit Þjóðræknisfélags Vestur-íslendinga“ og sérstaklega i „Heiniskringlu“. En síðasta árið, eftir að hann vissi sig eflaust dauðvona þá og þegar, flokkaði hann þau kvæði ■og önnur, eldri og yrigri, sein óprentuð voru, og fól dr. Rögn- valdi meðferð þeirra að sér látnum. — Þessi kvæði eru nú að koma út á kostnað bókaútgáfunnar Heimskringlu hér í Reykja- vik, og mynda þau sjötta og síðasta bindið af „Andvökum“. Það var ekki hending, að Andrée Courmont, gáfaðasti og há- menntaðasti erlendur bókmennlafræðingur, að sögn þeirra, sem hann þekklu, sem hingað til lands hefir komið til einhverra starfa siðustu 100 árin, hafði ákveðið, að semja doktorsritgerð sina um Stephan. Dauðinn sló stryki yfir drögin af þeirri dok- torsritgerð, okkur íslendingum til ómetanlegs tjóns. En þótt Cour- mont auðnaðist ekki að ljúka doktorsritgerð sinni, og reisa sér þannig minnisvarða i meðvitund okkar íslendinga, með þeim ■ágætum, sem gáfur hans og lifsreynsla gáfu efni til, þá er þó ann- ar minnisvarði, a. m. k. jafn óbrotgjarn, kominn yfir þennan göfuga íslandsvin, en það er kvæðið, sem Steplian orti við fregn- ina um andlát hans, og alveg vafalaust á fyrir hendi eilíft líf i íslenzkum bókmenntum. — Þetta er eitt kvæðið i sjötta bind- inu. Og ef til vill kemur hvergi greinilegar i ljós en einmitt í i vi bindi, þroskaferill Stephans frá því að hann i upphafi beitir miklum en óþjálfuðum hæfileikum á misjafnlega þjál viðfangs- efni, unz vitsmunir og tækni er svo fullkomið sem aldurinn ■entist til. Þvi að Stephan dó svo fádæma sæll, að líf lians var sifelldur þroski fram i andlátið. Á þeim tæpum fjórum árum hins áttunda tugar, sem hann lifði, er síður en svo, að nokk- urrar hnignunar verði vart i ljóðformi eða hugsun. Hann er jafn viðbragðsfljótur til höggorustu eða hyllinga, eftir því, hvort i hlut á síngirnin, vömmin og ragmennskan eða baráttan fyrir sannleika og réttlæti. — Og vopnin og hljóðfærin eru jafn beitt og hljómskrúðug: Orðkynngigáfa, sem nýyrðir auðveldlega og aldrei virðist gleyma orði eða orðatiltæki, sem einu sinni hefir að borizt; vitsmunir, sem nærri óbrigðult vinza hismið frá kjarn- anum; heit og næm réttlætistilfinning, sem knýr eigandann liarð- ■ar en dæmi eru til um íslenzk skáld, til starfa eftir því lögmáli, að „lífsins kvöð og kjarni er það, að líða og kenna til i stormum sinna tiða“. Og að síðustu sú skaphöfn, sem ef til vill var merkilegasta gáfan, sem þessi auðkýfingur islenzks máls og hugsunar hafði 15

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.